Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Landsliðsveisla framundan: Hverjir byrja?
    Búið er að opinbera landsliðshópinn fyrir komandi leiki í undankeppni HM. Vegna ástandsins er þó enn talsverð óvissa og lykilmenn gætu verið fjarri góðu gamni gegn Þýskalandi.
    Arnar Þór Viðarsson treystir á gamla bandið en U21 landsliðið leikur í lokakeppni EM í sama landsleikjaglugga.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Magnús Már ræddu um komandi landsleikjaglugga. Hvernig verður byrjunarliðið og hvaða væntingar gerum við til komandi landsleikja?
    40 min
  • Ungstirnin - U21 hópurinn og heimsókn úr Garðabæ
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fotbolti.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Í þessum sextánda þætti er fjallað um Pierre Kalulu (AC Milan), Jesper Lindstrom (Bröndby) og Matteo Lovato (Hellas Verona)
    Farið var yfir U-21 landsliðshópinn fyrir EM og var stillt upp sameiginlegu byrjunarliði fyrIr leikina þrjá. Einnig var lauslega farið yfir suma hópa hjá öðrum þjóðum en það verður ítarlega skoðað í þættinum eftir viku.
    1 hr 52 min
  • Útvarpsþátturinn - Gluggadómar og enskt hringborð
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Í fyrri hluta þáttarins er félagaskiptaglugginn á Íslandi skoðaður. Hvaða einkunnir fá félögin í Pepsi Max-deildinni fyrir leikmannahræringar sínar?
    Í seinni hlutanum kemur Kristján Atli Ragnarsson og ræðir um ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu. Eru Haaland og Mbappe nýju Messi og Ronaldo? Þá opinberar hann val á úrvalsliði þriðja fjórðungs enska boltans.
    1 hr 38 min
  • Heimavöllurinn: Bríet Bragadóttir: Ekki hægt að skulda í dómgæslu
    FIFA-dómarinn Bríet Bragadóttir er gestur Heimavallarins að þessu sinni. Bríet ræðir um dómarastarfið við þær Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur en rödd dómara heyrist afar sjaldan í fjölmiðlum. Bríet gefur áhugaverða innsýn í þetta vanmetna en gríðarlega mikilvæga starf.
    Fastir liðir eins og Símasnilldin, Dominos spurningin og Hekla þáttarins eru svo að sjálfsögðu til staðar í boði bestu vina Heimavallarins. Símans, Dominos og bílaumboðsins Heklu.
    1 hr
  • Ítalski boltinn - Óásættanlegur Ronaldo, varnarmaður með óróapúls og Eurovision dramatík Zlatans
    Juventus var hent öfugu út úr Meistaradeild Evrópu og mikil umræða er um framtíð Ronaldos hjá félaginu. Chris Smalldini var púslið sem varnarleikur Rómverja vantaði, ekkert fær stöðvað Internazionale og Patric varnarmaður Lazio mælist enn með óróapúls. Íslensku stelpurnar í Napoli leggja sitt af mörkum í hörku fallbaráttu en liðinu er fyrirmunað að skora og Birkir Bjarnason er í toppstandi fyrir landsleikina framundan. Þetta allt saman, ásamt dramatískri Eurovision yfirferð, í þætti vikunnar af ítalska boltanum.
    40 min
  • Fantabrögð - Shaw's hunk redemption
    Fantabrögð skelltu sér í stúíóið á þriðjudegi, þó að leikur Manchester City og Southampton væri enn eftir. Það var enginn glaðari með það en Aron, sem horfði fram hjá tvöfaldri umferð City og setti fyrirliðabandið á Harry Kane.
    Strákarnir svöruðu spurningum hlustenda, veltu upp spurningunni um Gareth Bale, tóku fyrir Chelsea og Manchester City og róteringar á þeim og völdu fyrirliða í snúinni umferð sem er framundan.
    Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemía og GÓ Training.
    1 hr 14 min
  • Enski boltinn - Utanríkisráðherra ræðir vandræði Liverpool
    Manchester United vann grannaslaginn gegn Manchester City á meðan Liverpool tapaði sjötta heimaleik sínum í röð í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
    Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og stuðningsmaður Liverpool, og Ágúst Reynir Þorsteinsson, eigandi Bombay Bazaar og stuðningsmaður Chelsea, eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni.
    Meðal efnis: Man Utd stöðvaði sigurgöngu City, Solskjær gerir gott mót, lygasaga Liverpool, karakterslaust lið, þunnur hópur, Klopp á erfitt í brekkum, passa að Man City verði ekki Bayern, fjárfestingar hjá Liverpool í sumar, Lampard fór of snemma ofan í laugina, áhorfendaleysið truflar, Tuchel gerir Chelsea þýskara, mörk hafsenta mikilvæg, stjóraskipti Chelsea, gott að eldast, Henderson ógnar De Gea, Tottenham skorar gegn óþekktum liðum, Bale á flugi, ótrúlegur David Luiz, hörð fallbarátta og margt fleira.
    49 min
  • Útvarpsþátturinn - Ótímabær Pepsi Max spá og boltapólitík
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. mars
    Í fyrri hlutanum er opinberuð ný ótímabær Pepsi Max-spá. Úlfur Blandon ræðir við Elvar Geir og Tómas Þór um liðin tólf.
    Í seinni hlutanum kemur Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings og fyrrum formaður ÍTF, og ræðir um ólguna í fótboltapólitíkinni á Íslandi.
    Tillögur um fjölgun leikja í Pepsi Max-deildinni voru felldar á ársþinginu síðasta laugardag.
    1 hr 39 min
  • Fantabrögð - Fantabrögð x Davíð Örn Atlason
    Það er óhætt að segja að stærsta umferð tímabilsins hafi ekki staðið undir væntingum. 14 lið áttu tvo leiki en mikið rót var á liðunum og vandasamt verk að hitta á leikmenn sem spiluðu tvo leiki.
    Því brugðum við á það ráð að fá til okkar góðan gest, Davíð Atlason, en hann er í 3. sæti af Íslendingum í FPL eins og staðan er núna.
    Við fórum yfir 26. umferðina og skoðuðum aðeins hvað er framundan. Hvert er markmiðið hjá Davíð og hvað er leyndarmálið á bakvið þessa velgengni?
    Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemía og GÓ Training.
    55 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners