Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Fótboltapólitíkin með Birgi framkvæmdastjóra ÍTF
    Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. febrúar.
    Elvar og Tómas ræða við Birgi Jóhannsson, framkvæmdastjóra ÍTF, um helstu umræðuefnin í íslenskum fótbolta.
    Það var hiti í kringum aðalfund ÍTF í vikunni þar sem nýr formaður var kjörinn og framundan er ársþing KSÍ.
    Sjónvarpsrétturinn á íslenskum fótbolta er að losna eftir þetta tímabil og þá verður kosið um að breyta mótafyrirkomulaginu í efstu deild karla á þinginu næsta laugardag.
    1 hr 4 min
  • Ungstirnin - Jónatan x Hörður Ingi
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Í þessum fjórtánda þætti er fjallað um Tiago Tomás (Sporting), Noni Madueke (PSV) og Fransisco Trincão (Barcelona)
    Drengirnir búa báðir til lið ársins hingað til á tímabilinu einungis skipað ungstirnum.
    Jónatan Ingi Jónsson og Hörður Ingi Gunnarsson, leikmenn FH og U-21 árs landsliðs Íslands, eru gestir þáttarins. Drengirnir takast á spurningakeppni og er farið yfir það sem hefur verið í gangi á ferlinum hingað til.
    1 hr 57 min
  • Ítalski boltinn - Mihajlovic móðgar stuðningsmenn og toppsætið á flakki um Mílanóborg
    Sinisa Mihajlovic tókst að móðga hársára stuðningsmenn Bologna, toppsætið í Serie-A skiptir um hendur en helst innan Mílanóborgar og Juventus upplifir martraðarviku. Um helgina er svo Mílanóslagur þar sem titilbaráttan gæti skýrst enn frekar. Munu Conte og Internazionale standa uppi sem sigurvegarar í lok tímabilsins?
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni og skemmtilegar sögur rifjaðar upp um goðsagnir.
    33 min
  • Fantabrögð - Gúndi gefur
    Fantabrögð neyddust til að vera með þátt þegar tveimur leikjum var ólokið í umferð 24. Þáttastjórnendur voru þó þegar búnir að safna fullt af stigum enda gáfu leikmenn sem áttu tvöfaldar umferðir vel, þó þeir hafi ekki endilega spilað báða leikina. Efstur á blaði þar var Ilkay Gündogan sem launaði vel traustið fyrir fyrirliðabandið, hvað þá sem þrefaldur fyrirliði.
    En hvað er framundan? Er Bamford sjálfgefinn fyrirliði í næstu umferð eða eru aðrir kostir í stöðunni? Á að vera með þrjá í Leeds? Hvað með Southampton? Kane og Vardy orðnir heilir og líta vel út, á að kaupa þá? Er ennþá planið að Wildcarda núna?
    Allt þetta í nýjum þætti af Fantabrögðum.
    1 hr 4 min
  • Heimavöllurinn: Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari er mættur á Heimavöllinn
    Þorsteinn Halldórsson, nýráðinn þjálfari A-landsliðs kvenna, er gestur Heimavallarins að þessu sinni og ræðir við þáttastýrurnar Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir. Þorsteinn segir frá fyrstu vikunum í starfi landsliðsþjálfara, fer yfir næstu verkefni með liðinu, markmið og ýmislegt fleira tengt nýja starfinu sem og aðskilnaðinum við Íslandsmeistara Breiðabliks. Þá eru fastir liðir eins og Símasnilldin, Dominos spurningin og Hekla þáttarins að sjálfsögðu til staðar.
    1 hr 8 min
  • Enski boltinn - Framtíð Arsenal og basl Liverpool
    Það var líf og fjör í leikjum helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og farið var yfir gang mála í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag.
    Gestir þáttarins eru Arsenal stuðningsmennirnir Jón Kaldal og Engilbert Aron Kristjánsson.
    Meðal efnis: Sóknarleikur Arsenal að lagast, ungu leikmennirnir koma með orku, Aubameyang kominn í gang, Ödegaard lofandi, óskiljanleg kaup í WIllian, allt í vaskinn hjá Liverpool, dýrkeypt mistök Alisson, Rodgers spilar á styrkleikana, VAR lituð helgi, Rashford tók of margar snertingar, gaman að horfa á Bruno Fernandes, skemmtilegri Guardiola bolti, Gundogan minnir á Scholes, Southampton í ruglinu, Jói Berg í stuði, Lowton breyttist í Dani Alves, Netflix hetjan kláraði Everton, gengur allt upp hjá Tuchel.
    44 min
  • Hemmi Hreiðars - Fjölbreyttur þjálfaraferill og bransasögur
    Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net 13. febrúar.
    Gestur þáttarins er sjálfur Hermann Hreiðarsson.
    Hermann er þjálfari Þróttar í Vogum í 2. deildinni en hann hefur á þjálfaraferlinum tekið að sér ansi ólík verkefni.
    Í þættinum ræðir Hermann um þjálfunina, segir nokkrar skemmtilegar bransasögur frá ferlinum, talar um landsliðið, framtíðaráform og fleira.
    54 min
  • Ítalski boltinn - Titilbaráttur Evrópu í útrýmingarhættu og byrjunarlið Ítalíu á EM
    Titilbaráttur eru í útrýmingarhættu í Evrópu, nema á Ítalíu þar sem dramatíkin heldur áfram. Í þættinum verður fjallað um vandræði Napoli, varnarleik Juventus, markahrókinn Goran Pandev og svo verður staðan tekin á ítalska landsliðinu fyrir EM sem fer fram í sumar. Hvernig lítur líklegt byrjunarlið út?
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni og skemmtilegar sögur rifjaðar upp um goðsagnir.
    25 min
  • Miðjan - Sammi hefur fengið 90 útlendinga til Ísafjarðar
    Samúel Samúelsson hefur í fjölda ára verið í fararbroddi hjá Vestra á Ísafirði. Hann hefur fengið til félagsins stór nöfn eins og Guðjón Þórðarson, Bjarna Jóhannsson og Nigel Quashie auk um 90 erlendra leikmanna. Hann segir sögu sína í Miðjunni í dag.
    Meðal efnis:
    - Fiskur og fótbolti er líf mitt
    - Átti ekki merkilegan feril sem fótboltamaður
    - Fékk þrjú rauð spjöld sem stjórnarmaður
    - Nafn félagsins sem var kallað skástrikið en endaði á Vestra
    - Alfreð Elías kom liðinu upp en var sagt upp
    - Stressaður fyrir fyrsta fundinn með Gauja Þórðar
    - Með mjög mikla peninga árið 2011
    - Slógu út Breiðablik og mættu KR í stærsta leik félagsins
    - Seldi besta leikmanninn eftir að hann kýldi bróður hans
    - Gaui Þórðar var ósáttur við söluna
    - Hann og Gaui tóku oft erfið samtöl
    - Guðjón hjálpaði og breytti félaginu til frambúðar
    - Brottrekstur Guðjóns Þórðarsonar
    - Freyr Alexandersson var að taka við þegar Jörundur Áki kom
    - Andri Rúnar hafði það of gott heima hjá mömmu sinni
    - Tími Nigel Quashie á Ísafirði og afhverju var hann á Íslandi
    - Fundaði með Bjarna Jó á Tenerife og réði hann ári síðar
    - Merkti húsið SSS skrifstofur og Bjarni bjó þar fyrsta árið
    - 90 útlendingar komið á hans tíma hjá félaginu
    - Þolir ekki Þór
    - Löggan ræsti hann út allar helgar til að stoppa partý hjá Þórði Inga og Alexander Veigari
    - Skammarleg aðstaða og æft í reiðhöll
    - Vestri ætlar upp í Pepsi-deild í sumar
    1 hr 33 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners