Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Mögnuð Meistaradeildarbarátta
    Það er skammt stórra högga á milli í ensku úrvalsdeildinni en fjöldi leikja fór fram í vikunni og heil umferð er framundan um helgina.
    Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í hlaðvarpsþáttinn „enski boltinn" og fóru yfir stöðuna hjá sínum liðum sem og öðrum.
    Meðal efnis: Bragðarefurinn Tuchel, lukkupottur Chelsea, leiðinlegt VAR, Mount fyrstur á blað, sögulega lélegur árangur Liverpool, pirraður Salah, sumarkaup Liverpool ekki skilað sér, markaþurrð hjá Man Utd, þreyta hjá Bruno Fernandes, Henderson í markið, ótrúleg sigurganga Manchester City, umræðan um Gylfa að snúast, Fulham líklegri en Newcastle og besti maður tímabilsins.
    44 min
  • Ástríðan - Ótímabær spá fyrir 2. deildina
    Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi.
    Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason fara yfir 2. deild karla og opinbera ótímabæra spá sína fyrir deildina. Rennt er yfir öll liðin en búast má við jafnri og spennandi keppni í sumar.
    1 hr 7 min
  • Ungstirnin - Landsliðsval Musiala og Víkingar
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Í þessum fimmtánda þætti er fjallað um Tanguy Nianzou (Bayern), Kamaldeen Sulemana (Nordsjælland) og Adam Hlozek (Sparta Prag).
    Farið er yfir landsliðsval ungstirnisins Jamal Musiala, hvort hann velji að spila fyrir England eða Þýskaland sem og komandi landsliðshóp U21 landsliðsins.
    Atli Barkarson og Karl Friðleifur leikmenn Víkings Reykjavík eru gestir þáttarins, drengirnir takast á í spurningakeppni og er farið yfir það sem hefur verið í gangi á ferlinum hingað til.
    2 hr 6 min
  • Enski boltinn - Everton, Newcastle og vondir stórleikir
    Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag en þar er farið yfir helstu atriði helgarinnar í enska boltanum.
    Jón Júlíus Karlsson, stuðningsmaður Newcastle, og Viðar Guðjónsson, stuðningsmaður Everton, eru gestir vikunnar en rætt var ítarlega um þeirra lið sem og leiki helgarinnar í enska boltanum.
    Meðal efnis: Everton orðið ítalskara, léttara yfir Gylfa, færri stuðningsmenn gagnrýna Gylfa, Rabiot og Aarons á leiðinni?, Bruce heppinn með áhorfendabann, Joelinton ein verstu kaup sögunnar, Jonjo Shelvey pirrandi leikmaður, úrslitaleikur um fall í vor?, æfingaleikjastemning, neikvætt upplegg Manchester United, óskiljanlegar vítaspyrnureglur, forgjöfin hjá Gareth Bale, meiðslahrina Liverpool, tuttugu sigurleikir City, ótrúlegt atvik hjá Brighton og margt fleira.
    54 min
  • Útvarpsþátturinn - Ótímabær Lengjuspá og Alexander Scholz
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. febrúar.
    Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Rætt er um fréttir vikunnar og Rafn Markús Vilbergsson opinberar ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina. Fjallað er um öll lið deildarinnar.
    Enski boltinn kemur einnig við sögu og þá er rætt við Alexander Scholz, fyrrum leikmann Stjörnunnar. Scholz er lykilmaður hjá dönsku meisturunum í Midtjylland.
    1 hr 35 min
  • Ítalski boltinn - Grannaslagur, skattsvik og túristar í Meistaradeild Evrópu
    Ný vika, ný vandamál. Ítölsku liðin hafa átt erfiðu gengi að fagna í Evrópu. Vel þekktur eigandi Íslendingaliðs sætir skattrannsókn enn á ný og þátttaka Zlatans á Sanremo tónlistarhátíðinni sætir gagnrýni.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni og skemmtilegar sögur rifjaðar upp um goðsagnir.
    33 min
  • Fantabrögð - Risaumferð framundan
    Aron og Gylfi settust niður yfir leik Leeds og Southampton og fóru yfir málin fyrir RISAumferð 26 í Fantasy Premier League. 14 af 20 liðum deildarinnar eiga tvo leiki í umferðinni og því má reikna með að margir spili spilum eins og þrefalda fyrirliðanum, bekkjarbombunni eða jafnvel hinu villta spili.
    Það er því að mörgu að huga og þurfa þjálfarar að vera á tánum til að fá sem mest af stigum út úr komandi leikjum.
    Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.
    54 min
  • Enski boltinn - Hvað er í gangi hjá Liverpool?
    Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag en þar er farið yfir helstu atriði helgarinnar í enska boltanum.
    Liverpool hefur frá jólum einungis unnið tvo af ellefu leikjum í ensku úrvalsdeildinni en liðið hefur tapað fjórum leikjum í röð á Anfield.
    Einar Matthías Kristjánsson, Magnús Þór Jónsson og Sigursteinn Brynjólfsson frá kop.is mættu í þátt dagsins og fóru yfir málefni Liverpool sem og aðra leiki helgarinnar.
    Meðal efnis: Söguleg taphrina á Anfield, Klopp þarf að breyta til, tæpt að Liverpool nái topp fjórum, varnarlínan of hátt, aukaleikarar að klikka, kaup Liverpool í sumar, Gylfi ískaldur á vítapunktinum, leikstíll Guardiola skilar sér, Manchester United aftur í gang, Newcastle í alvöru fallbaráttu, Leicester mun halda flugi og margt fleira.
    47 min
  • Arnór Smára spilar í fyrsta sinn í íslensku deildinni
    Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. febrúar.
    Arnór Smárason, leikmaður Vals, kom í heimsókn. Arnór er 32 ára og er að fara að spila sitt fyrsta tímabil í íslensku deildinni.
    Hann hefur verið erlendis frá unga aldri og spilað í Skandinavíu, Hollandi og Rússlandi. Hann gekk í raðir Valsmanna í vetur.
    Í þessari klippu er einnig símaviðtal við Helga Val Daníelsson sem er kominn aftur í baráttuna eftir erfið meiðsli.
    35 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners