Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Tankurinn að tæmast
    Svartur sunnudagur í íslenska boltanum. U21 landsliðið og A-landsliðið eru samtals með 0 stig.
    Slæmt tap gegn Armeníu, áttum ekkert skilið, trúin ekki til staðar, kallað eftir kynslóðaskiptum. Er vonin úti? Getur gamla bandið komið okkur til Katar?
    Einnig er rætt um U21 landsliðið. Auglýsingaglugginn sem vonast var eftir er mölbrotinn.
    Elvar Geir, Magnús Már og Tómas Þór fóru yfir landsliðsdaginn.
    52 min
  • Útvarpsþátturinn - Landsliðin beint í æð og staðan á íslenska boltanum
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. mars.
    Elvar Geir og Tómas Þór voru á sínum stað og landsliðin voru í brennidepli.
    Tómas Ingi Tómasson var á línunni þegar farið var yfir síðustu leiki U21 landsliðins og A-landsliðsins. Rýnt var í næstu leiki.
    Hringt var til Armeníu þar sem Hafliði Breiðfjörð fylgir A-landsliðinu og til Ungverjalands þar sem Sæbjörn Steinke fylgist með U21-landsliðinu.
    Þá var Páll Kristjánsson, formaður KR, á línunni. Rætt var um íþróttastoppið og einnig mögulegar breytingar á Íslandsmótinu í fótbolta.
    1 hr 31 min
  • Heimavöllurinn - Ótímabær spá fyrir neðri deildirnar 2021
    Í síðustu viku opinberaði Heimavöllurinn ótímabæra spá sína fyrir Pepsi Max-deildina og nú er komið að því að spá fyrir um neðri deildirnar. Sparkspekingurinn Baldvin Már Borgarson mætir í sett og spáir í Lengjudeildina og 2. deild ásamt Heimavallarstýrum, þeim Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
    Fastir liðir eins og Dominos-spurningin, Hekla þáttarins og Símasnilldin eru að sjálfsögðu á sínum stað.
    1 hr 20 min
  • Innkastið - 1-7 tapdagur Íslands
    Tvöfaldur tapdagur hjá íslenska landsliðinu í dag. U21 landsliðið tapaði sannfærandi fyrir Rússlandi í fyrsta leik sínum á EM og A-landsliðið átti ekki möguleika gegn Þýskalandi í fyrsta leik sínum í undankeppni HM.
    Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson, ritstjórar Fótbolta.net, fengu Harald Árna Hróðmarsson, þjálfara hjá Val, til að fara yfir landsleikjadaginn.
    Rætt er um frammistöðu leikmanna og allt tengt leikjunum og framhaldinu.
    Það eru White Foxog Domino's sem bjóða upp á þáttinn.
    41 min
  • Ungstirnin - EM U21 upphitunarþátturinn
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Þessi þáttur er upphitun fyrir EM U-21 árs.
    Í þessum sautjánda þætti er farið ítarlega yfir öll sextán liðin sem taka þátt í riðlakeppni EM U-21 árs sem fer fram í Ungverjalandi og Slóveníu 24. mars - 31. mars.
    Drengirnir velja sitthverja 5 leikmenn til að sérstaklega fylgjast með á mótinu.
    1 hr 56 min
  • Enski boltinn - Spurs, landsleikir og draumalið
    Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, eru gestir vikunnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn."
    Þeir ræddu gengi Tottenham, leiki helgarinnar, landsleikina framundan og tóku þátt í leik þar sem þeir stilltu upp draumaliðum sínum í ensku úrvalsdeildinni með ákveðnum reglum.
    Meðal efnis: Ófyrirgefanlegt í Zagreb, endurnýjun hjá Tottenham, Mourinho endar ofar en Tuchel, Alli í fýlu, Kane fer ekki, Newcastle í brekku, hjólin á West Ham vagninum að detta af?, Ödegaard frábær, Football manager, Tottenham celeb á Ölver, hátt fjall hjá U21, A landsliðið þarf 6 stig, Viðar Örn Kjartansson og draumalið úr öllum liðum í ensku úrvalsdeildinni.
    43 min
  • Útvarpsþátturinn - Óskar Hrafn og Arnar Viðars
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Í fyrri hlutanum er Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks gestur. Rætt er við hann um þróun mála hjá Blikaliðinu síðan hann tók við stjórnartaumunum.
    Í seinni hlutanum er rætt við Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfara en hann er í Þýskalandi þar sem Ísland hefur leik í undankeppni HM á fimmtudag. Einnig er farið yfir fréttir vikunnar og Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolta.net, er í beinni frá Ungverjalandi þar sem U21 landsliðið verður í eldlínunni.
    1 hr 34 min
  • Heimavöllurinn - Harpa Þorsteins, U23 og apakettir í USA
    Það er engin önnur en landsliðskonan og markamaskínan Harpa Þorsteinsdóttir sem er gestur Heimavallarins að þessu sinni. Hún fer yfir allt það helsta í boltanum í dag ásamt vallarstýrunum Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur. Því er fagnað að U23 ára landslið verði sett í gang á árinu og Harpa velur sitt U23 ára lið. Landsliðið er svo áfram til umræðu og það er erfitt að horfa framhjá þeirri óvissu sem hefur skapast í fótboltaheiminum í kjölfar útbreiðslu Covid 19.
    1 hr 12 min
  • Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir Pepsi Max 2021
    Það er komið að ótímabærri spá fyrir Pepsi Max-deild kvenna 2021. Í þetta skiptið fengu þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir góða gesti til að fara yfir málin með sér enda ekki nema 47 dagar í fyrsta leik. Gestaspákonur þáttarins eru þær Aníta Lísa Svansdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir sem þekkja deildina út og inn.
    Auk spánnar verða að sjálfsögðu fastir liðir í boði Bílaumboðsins Heklu, Símans og Dominos. Þá erum við að tala um Símasnilldina, Dominos-spurningina og auðvitað Heklu þáttarins.
    1 hr 33 min
  • Fantabrögð - Fjögurra leikja fjör
    28. umferðin var heldur döpur í Fantasy Premier League. 5 vinsælustu fyrirliðarnir klikkuðu allir og meðalstigafjöldinn var einungis 43 stig.
    Aron og Gunni mættu í stúdíóið aðallega til að skoða hina fátæklegu umferð 29 og hvað skal gera í henni.
    Á að wildcarda? Free Hita? Hvorugt? Verður Kane fyrirliði hjá öllum?
    Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.
    51 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners