Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Heimavöllurinn - Steini fékk giggið, gullfótur í Kópavog og stórliðin horfa til Íslands
    Þær Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fá til sín sérlega góða gesti á Heimavöllinn að þessu sinni. Knattspyrnuþjálfarinn og spekúlantinn Daði Rafnsson mætir í sett og ræðir um íslenska uppeldiskerfið og af hverju svona margar íslenskar knattspyrnukonur eru að semja við stórlið úti í heimi. Þá kíkir nýjasti leikmaður Breiðabliks, Andrea Mist Pálsdóttir, í heimsókn. Fer yfir vistaskiptin, síðustu verkefni og framtíðarmarkmið auk þess sem hún velur fimm „gullfætur“ úr efstu deild. Nýi landsliðsþjálfarinn kemur svo að sjálfsögðu mikið við sögu sem og allt það helsta og fréttnæmasta.
    1 hr 19 min
  • Fantabrögð - Sjaldan er Kane báran stök
    Þessi umferð var ekki alveg jafn góð og sú síðasta, enda færri leikir og mikil vonbrigði þar að auki. Metfjöldi setti bandið Bruno Fernandes sem klikkaði en Manchester City leikmenn skiluðu heldur betur.
    Liverpool vann Tottenham sannfærandi og það sem verra er fyrir Spurs virðist Harry Kane vera meiddur.
    Er Mane kominn í form? Hvað með Trent? Hver er besti ódýri miðjumaðurinn? En dýri varnarmaðurinn?
    Þetta og meira í nýjasta þættinum af Fantabrögðum.
    Fantabrögð eru í boði Dominos, Nemíu og GÓ Training.
    1 hr 13 min
  • Enski boltinn - Manchester City menn í stuði á toppnum
    Manchester City situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir fjöruga leiki í vikunni.
    Magnús Ingvason og Sigurður Helgason, stuðningsmenn Manchester City, mættu í hlaðvarpsþáttinn „Enski boltinn" í dag og ræddu um City og leiki vikunnar.
    Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.
    Meðal efnis: City lengi að ná flugi, Dias smollið inn, vörnin öflug, framherjalausir en skora samt, Messi og Haaland á óskalistanum, Guardiola besti þjálfari sögunnar, misheppnuð hvíld hjá Solskjær, dapur varnarleikur Man Utd, fékk Lampard ekki mennina sem hann vildi?, Lars hafði ekki engan áhuga á Ödegaard, ungu strákarnir blómstra hjá Arsenal, erfitt að standa undir því að vera undrabarn, sömu stjórarnir í áratugi, í City treyju á Old Trafford, innkaupalisti Sigga Helga, Moyes gerir magnaða hluti, stíflan hjá Liverpool og margt fleira.
    43 min
  • Ungstirnin - Nikola Djuric og ný vonarstjarna Grikkja
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Í þessum þrettánda þætti er fjallað um Ali Akman (Bursaspor), Christos Tzolis (PAOK) og Talles Magno (Vasco De Gama).
    Drengirnir bjuggu báðir til úrvalslið leikmanna sem fæddir eru 2004 þar sem aðal áherslan var á íslenska stráka.
    Nikola Dejan Djuric, fyrrum leikmaður Midtjylland og Hauka, var gestur í þættinum og valið var lið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni higanð til.
    1 hr 50 min
  • Fantabrögð - Stigaflóð eftir tvöfalda umferð
    Fantabrögð mættu með fullskipað lið til að gera upp lengstu umferð sögunnar í Fantasy Premier League. John Stones var óvænt stigahæsti leikmaður umferðarinnar á meðan Mohamed Salah klikkaði og fékk fjögur. Michail Antonio verðlaunaði síðan þá sem keyptu hann ríkulega með 18 stigum.
    Margt gekk upp en margt klikkaði einnig. Þáttastjórnendur voru allir töluvert yfir meðaltali þessa umferðina en einn var þó áberandi minnst sáttur.
    Hvern á að kaupa fyrir Kevin De Bryune sem er meiddur? En Jamie Vardy? Hvað gerist hjá Chelsea með stjóraskiptum? Þetta og allt annað í nýjasta Fantabrögðum.
    1 hr 11 min
  • Íslenski boltinn - Fréttir vikunnar og Matti Villa í viðtali
    Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net 23. janúar.
    Matthías Vilhjálmsson er kominn heim úr atvinnumennskunni og farinn að spila á ný með FH.
    Matti kom í útvarpsþáttinn og ræddi meðal annars um heimkomuna, árin í Noregi og framtíðina. Hann á fjóra Noregsmeistaratitla að baki með stórliði Rosenborg.
    50 min
  • Geir Þorsteins í ítarlegu spjalli um stöðu íslenska boltans
    Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net 23. janúar.
    Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri ÍA og fyrrum formaður KSÍ, kom í heimsókn. Rætt var um stöðu íslenska boltans frá ýmsum hliðum.
    Elvar Geir og Tómas Þór ræddu ýmislegt tengt íslenska boltanum, meðal annars umræðu um fjölgun leikja í Pepsi Max-deildinni og áhrif Covid-19 á síðasta tímabil.
    Þá ræddi Geir um starf sitt hjá ÍA en hann hefur staðið í ströngu við að laga fjárhagsstöðu félagsins.
    55 min
  • Enski boltinn - Krísa Chelsea og topplið Man Utd
    Það er skammt stórra högga á milli í ensku úrvalsdeildinni þessa dagana og sveiflurnar miklar á toppnum.
    Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í hlaðvarpsþáttinn „enski boltinn" og fóru yfir stöðuna hjá sínum liðum sem og öðrum.
    45 min
  • Ítalski boltinn - Sex skiptingar og VAR dramatík á ítalska þinginu
    Það vantaði ekki dramatíkina á Ítalíu þessa vikuna, hvorki innan vallar né utan. Eftir að hafa keypt Mario Balotelli til Monza er Adriano Galliani farinn að láta til sín taka á ítalska þinginu, Rómverjar gera hver mistökin á fætur öðrum og Juventus reynir eftir fremsta megni að stimpla sig út úr titilbaráttunni.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".
    35 min
  • Heimavöllurinn - Markahæsti markvörðurinn kælir hanskana og 101 eignast fótboltalið
    Þær fréttir bárust á dögunum að markvörðurinn öflugi, Sonný Lára Þráinsdóttir, ætlaði sér ekki að leika áfram með Breiðablik þar sem hún hefur átt magnaðan tíma síðustu ár. Sonný Lára mætir í spjall til Huldu Mýrdal og Mistar Rúnarsdóttur og fer yfir málin. Þá koma einnig KM-leikmennirnir Júlía Óladóttir og Hrund Steinarsdóttir í spjall en KM stendur fyrir Knattspyrnufélag Miðbæjar og liðið ætlar að taka þátt í 2.deild í sumar.
    1 hr 12 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners