Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Liverpool getur ekki skorað
    Erkifjendurnir í Liverpool og Manchester United gerðu markalaust jafntefli í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.
    Rikki G, lýsandi á Stöð 2 sport, og Hrafn Kristjánsson, körfuboltaþjálfari og stuðningsmaður Liverpool, fóru yfir leiki helgarinnar í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" að þessu sinni.
    44 min
  • Útvarpsþátturinn - Stórleikurinn, Rooney og íslenski
    Útvarpsþátturinn 16. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Í fyrri hluta þáttarins: Rætt um feril Wayne Rooney og fjallað um íslenska boltann. Rætt var við Ágúst Gylfason, þjálfara Gróttu, og Orra Frey Hjaltalín, nýjan þjálfara Þórs.
    Í seinni hlutanum: Enska hringborðið. Hitað upp fyrir stórleik Liverpool og Manchester United. Gestir: Einar Matthías Kristjánsson á kop.is og Þorsteinn Hjálmsson á raududjoflarnir.is.
    1 hr 35 min
  • Fantabrögð - Allt í skrúfunni fyrir tvöfalda umferð
    Umferð 18 er að baki í Fantasy Premier League og við tekur umferð 19. Margir notuðu Free Hit í 18 umferð enda lítið af leikjum og nú er spurning hvort það taki því að nota Bench Boost eða Triple Captain í þeirri 19.
    Fer leikur Leeds og Southampton fram eða ekki? Á maður að þora að tiple captaina De Bruyne? Hvaða þrjá West Ham menn á að vera með? Hvað með Salah og Liverpool?
    Þetta og allt annað í nýjasta þættinum af Fantabrögðum. Hlustendur þurfa að hafa hraðar hendur því fresturinn lokar kl. 11 á morgun!
    1 hr
  • Enski boltinn - Tekist á fyrir stórleik ársins
    Liverpool og Manchester United mætast í toppslag í ensku úrvalsdeildinni á Anfield á sunnudaginn.
    Hörður Magnússon og Magnús Gylfason fylgjast með hverju sparki hjá sínum liðum og þeir mættu í spjall í dag þar sem hitað var upp fyrir leik helgarinnar.
    Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.
    Meðal efnis: Stórleikurinn á sunnudag, dauðafæri fyrir Manchester United, frelsarinn Klopp, Bailly eins og Song, meiðslapjakkurinn Matip, banter, fólskuleg líkamsárás, var farinn að trúa orðum Magga Gylfa, áhorfendaleysið, Pogba og umboðsmaðurinn, Gylfi svarar gagnrýni, Manchester City líklegastir, Mourinho bara með plan A, VAR ekki gengið upp, sóttvarnarreglur á Íslandi og margt fleira!
    1 hr 3 min
  • Ítalski boltinn - Róm - höfuðborg alheimsins
    Í þætti vikunnar verður farið yfir umferð síðustu umferð þar sem Juventus marði sigur á spræku Sassuolo-liði og Inter og Roma gerðu jafntefli í toppslag umferðarinnar. Framundan er stór helgi í ítalska boltanum. Lazio og Roma eigast við í hörðum nágrannaslag og Juventus og Inter mætast í „Derby d'Italia".
    B-deildin fer af stað aftur eftir stutt hlé um síðustu helgi og þær fregnir voru að berast að Hólmbert Aron Friðjónsson var að missa keppinaut um framherjastöðuna í Brescia.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".
    34 min
  • Ungstirnin - Heimsókn úr Breiðholti og íslensk ungstirni seld út
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Í þessum tólfta þætti er fjallað um Ilaix Moriba (Barcelona), Pierre Dwomoh (Genk) og Benoit Badashile (Mónakó)
    Rætt var um félagaskipti ungra íslenskra leikmanna en Finnur Tómas, Karólína Lea og Sveindís Jane hafa öll verið seld út í atvinnumennskuna á síðustu dögum.
    Drengirnir búa báðir til úrvalslið úr leikmönnum sem eru fæddir árið 2003.
    Í seinni hluta þáttarins koma Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis, og Vuk Oskar Dimitrijevic, leikmaður FH, í heimsókn. Þeir voru báðir lykilmenn hjá Leikni sem komst upp í Pepsi Max-deildina í fyrra.
    Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, á Spotify eða í gegnum Podcast
    1 hr 43 min
  • Útvarpsþátturinn - Óli Kristjáns, Emil og enski
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 9. janúar.
    Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fréttir vikunnar og tóku svo upp símann og ræddu við góða viðmælendur.
    Ólafur Kristjánsson, þjálfari Esbjerg, ræddi um lífið í Danmörku og það góða skrið sem hans lið hefur verið á en það trónir á toppi B-deildarinnar.
    Emil Pálsson ræddi um sín mál en hann ætlar að takast á við nýja áskorun á sínum ferli eftir þrjú ár hjá Sandefjord.
    Gylfi Sigurðsson umboðsmaður var líka á línunni og gaf hlustendum innsýn inn í það hvernig er að vera umboðsmaður í kvennafótboltanum.
    Þá ræddi Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur um Liverpool, um enska boltann en það styttist í toppslag Liverpool og Manchester United.
    1 hr 39 min
  • Ítalski boltinn - Toppliðin tapa stigum, Juve hrekkur í gang og nýr bad boy tekur við af Balotelli
    Í þætti vikunnar verður farið yfir umferð vikunnar þar sem Juventus vann toppslaginn gegn AC Milan sem tapar sínum fyrsta leik síðan í mars.
    Inter og Napoli tapa óvænt stigum og ungstirnið Nicolo Zaniolo er með hjálp móður sinnar að taka við af Balotelli sem óþekki strákur ítalska boltans.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".
    37 min
  • Fantabrögð - Free Hiti í mönnum
    Fyrsti þáttur Fantabragða á árinu 2021 var heldur betur viðburðaríkur. Aron og Gunni mættu í stúdíóið og fóru yfir umferð 17 auk þess að spá í spilin fyrir umferðir 18 og 19 sem liggja saman og krefjast nokkurrar íhugunar, enda liðin með mismarga leiki.
    Meðal efnis í þættinum:
    -Markmannarússíbaninn
    -Er Dominic Alveg-Búinn?
    -Hvaða leikmenn eru skyldueign í Free Hit lið í 18. umferð?
    -Hvaða lið eiga bestu leikina í tvöföldu umferðinni (19)?
    -Er möst að kaupa Kevin De Bruyne?
    -Á að selja Salah?
    1 hr 7 min
  • Enski boltinn - Manchester liðin í stuði
    Það hefur verið líf og fjör í ensku úrvalsdeildinni að undanförnu og farið var yfir gang mála í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" á Fótbolta.net í dag.
    Hlynur Valsson og Gunnar Ormslev, lýsendur á Síminn Sport, voru gestir þáttarins að þessu sinni.
    Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.
    Meðal efnis: Kórónuveiran truflaði ekki Manchester City, náðugt í fyrsta leik Steffen, taflan ójöfn, Lampard fær lengri tíma, Man Utd á flugi, Pogba kominn í gang, Bruno Fernandes má ekki meiðast, Solskjær treður sokkum, stórleikur ársins 17. janúar, hversu lengi nenna leikmenn Mourinho?, Meslier vaxinn eins og trjágrein, hræðilegur leikur á Goodison Park, konfekt mörk hjá Arsenal, Lacazette skorar og skorar, Sammi fellur í fyrsta skipti, Arteta var stressaður yfir snjónum, Leicester nær ekki að klára dæmið, fjör á Amex leikvanginum, Úlfarnir sakna Raul Jimenez, kemst Liverpool aftur á sigurbraut í kvöld?
    44 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners