Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Ítalski boltinn - Paolo Rossi kvaddur og leikmenn þvingaðir í æfingabúðir
    Paolo Rossi er fallinn frá og því er farið ítarlega yfir hans feril í þessum áttunda þætti ítalska boltans. Íslendingarnir eru farnir að láta til sín taka á nýjan leik eftir erfiðar vikur, félög eru farin að loka leikmennina sína inni á æfingasvæðinu yfir jólin og Ronaldo skorar út vítaspyrnum. Allt er eins og það á að vera á Ítalíu. Í þætti vikunnar verður líka farið yfir 10 efnilegustu leikmenn Serie-A að mati Björns.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".
    44 min
  • Enski boltinn - Gylfi í stuði og toppbaráttan harðnar
    Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar helgar í ensku úrvalsdeildinni.
    Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, og Orri Freyr Rúnarsson, útvarpsmaður á Rás 2 og stuðningsmaður Manchester United, fóru yfir leiki helgarinnar að þessu sinni.
    Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.
    50 min
  • Ungstirnin - Ísak Bergmann er gestur
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Í þessum tíunda þætti er fjallað um Karim Adeyemi (RB Salzburg), Nuno Mendes (Sporting) og Kang-in Lee (Valencia).
    Drengirnir bjuggu báðir til úrvalslið úr leikmönnum sem eru fæddir árið 2001.
    Hinn sautján ára Ísak Bergmann Jóhannesson, leikmaður Norrköping, er gestur þáttarins að þessu sinni. Ísak hefur verið orðaður við stórlið en rætt var við hann um það sem hefur verið í gangi á unga atvinnumannaferli hans og margt fleira áhugavert.
    1 hr 36 min
  • Fantabrögð - Vardy party
    Dominic er aaalveg að verða búinn. Það eru nýir svipustrákar í bænum. Styttist í jólatörnina og áfram höldum við að undirbúa okkar lið fyrir hana. Við myndum bæta við að Son og Kane hafi haldið áfram að leggja upp mark hvor á annan en það er ekki lengur fréttnæmt svo við ætlum ekki að nefna það hér.
    Fantabrögð eru í boði Dominos, Teq Ísland, Nemíu og GÓ Training.
    1 hr 13 min
  • Útvarpsþátturinn - Fótbolti.net - Djúpar boltaumræður með Arnari og Arnari
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 12. desember. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir,
    Fyrri hlutinn: Landsliðsumræður og rætt við Helga Kolviðsson, fyrrum aðstoðarþjálfara landsliðsins. Helgi er opinn fyrir því að snúa aftur til starfa fyrir KSÍ ef krafta hans er óskað.
    Seinni hlutinn: Rætt um leikfræði við Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Víkings, og Arnar Hallsson, þjálfara ÍR. Spjallað var um hugmyndafræði stjóra í ensku úrvalsdeildinni, möguleika á framþróun í íslenskum fótbolta og landsliðið okkar. Alvöru nördaspjall!
    1 hr 35 min
  • Fantabrögð - Gyllta fimman og aðrar nauðsynjavörur
    Vitringarnir þrír settust niður og ræddu framtíðina. Helstu lúxusleikmennirnir skiluðu allir sínu og nú sitja margir stjórarnir með höfuðverk. Stutt á milli umferða og jólatörnin á næsta leyti. Hvern er best að hafa? Og hvað með Dominic-Alveg-Búinn? Nóg af spurningum, nóg af svörum.
    Fantabrögð eru í boði Dominos, Teq Ísland, Nemíu og GÓ Training.
    1 hr 18 min
  • Ítalski boltinn - Íslendingur til Napoli eftir 107 ára bið!
    Í þætti vikunnar snýst allt um nágrannaslagi. Torino tapar sem fyrr gegn nágrönnum sínum í Juventus og þjálfari Birkis og Hólmberts í Brescia fékk stígvélið daginn fyrir nágrannaslaginn mikla sem kenndur er við strengjahljóðfæri - Derby del violino. AC Milan heldur sigurgöngu sinni áfram, í leik þar sem Norðurlandabúar voru í aðalhlutverkum og íslendingar eiga knattspyrnumann í Napoli, 107 árum eftir að það gerðist síðast.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".
    38 min
  • Innkastið - Lokkandi riðill og óvissuástand í Laugardal
    Fótbolti.net blæs í Innkast. Elvar Geir, Magnús Már og Gunnar Birgis ræddu málin.
    Farið var yfir riðil íslenska landsliðsins í undankeppni HM en dregið var í gær. Þýskaland, Rúmenía, Norður-Makedónía, Armenía og Liechtenstein eru í riðli Íslands.
    Þá var rætt um landsliðsþjálfaramálin og rennt yfir þá sem eru komnir og farnir í Pepsi Max-deild karla.
    52 min
  • Enski boltinn - Fjögurra hesta kapphlaup um titilinn
    Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar helgar í ensku úrvalsdeildinni.
    Hlynur Valsson, lýsandi á Síminn Sport, og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir umferðina að þessu sinni.
    Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.
    Meðal efnis: Son og Kane í banastuði, góð kaup hjá Spurs, Tottenham getur orðið meistari, Arteta eins og snákasölumaður, öruggur Curtis Jones, Klopp fær allt út úr hópnum, framlína Wolves floppaði, lúðalegur Kelleher geggjaður í markinu, munur á hálfleikjum hjá Man Utd, Bruno Fernandes gerir alla betra, fjögurra hesta barátta, Chelsea búið að finna varnarlínuna, Manchester City að komast í gang, leiðarlok hjá Aguero, vilja sjá Messi í Man City, Sheffield United ekki yfir 20 stig?, eins og önnur íþrótt með áhorfendum, Zaha í stuði og margt fleira.
    38 min
  • Landsliðsumræða - Trúnaðarbrestur og þjálfaraleit
    Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. desember.
    Elvar Geir og Tómas Þór ræða um landsliðsþjálfaramálin og stóru fréttirnar af því að Jón Þór Hauksson hafi farið yfir strikið í ummælum sínum við leikmenn kvennalandsliðsins. Starf Jóns Þórs er í hættu.
    Rætt er um leitina að næsta þjálfara karlalandsliðsins en Tómas telur að Lars Lagerback sé líklegastur í stólinn.
    Rætt er við Víði Sigurðsson, yfirmann íþróttadeildar Morgunblaðsins, um þjálfaraleitina og einnig um bókina Íslensk knattspyrna 2020 sem er væntanleg í verslanir.
    Á mánudag verður dregið í undankeppni EM, hvernig er martraðariðill Íslands og hvernig er draumariðillinn?
    Þá er Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður á línunni og ræðir um Brexit áhrif á íslenskan fótbolta.
    55 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners