Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Enski boltinn - Ætla að sjá Tottenham taka við bikar í vor
    Tottenham stuðningsmennirnir Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson mættu skellhlæjandi á skrifstofu Fótbolta.net.
    Tottenham situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en í hlaðvarpsþættinum „Enski boltinn" í dag var rætt um sigur Spurs á Manchester City sem og aðra leiki helgarinnar í enska boltanum.
    Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.
    Meðal efnis: Taktík Mourinho, Kane kemur stanslaust á óvart, "stálu" Höjberg á þrjár milljónir punda, bóluefni fyrir bikaraafhendingu, aðrir stíga upp hjá Liverpool, brúðkaupið sem Salah fór í, styðja litlu liðin í skiptingunum, lélegt gengi Gautaborg í FM, engin flugeldasýning hjá Man Utd, breidd hjá Chelsea, leiðindi hjá Newcastle, breyta vítareglum, Parker og Bilic í stórhættu, hugmyndasnauðir, Arsenal menn, geðheilsa Arilíusar veltur á Arsenal, baráttuleysi Sheffield United og ótrúleg úrslit Aston Villa.
    40 min
  • Útvarpsþátturinn - Arnar Viðars, Sindri Kristinn og enski
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. nóvember.
    Elvar Geir og Tómas Þór ræða ítarlega við Arnar Þór Viðarsson, þjálfara U21 árs landsliðsins og yfirmann knattspyrnumála hjá KSÍ. Rætt er um frábæran árangur U21 landsliðsins og um leitina að næsta A-landsliðsþjálfara. Arnar hefur áhuga á stöðunni.
    Einnig heyrum við hljóðið í Sindra Kristni Ólafssyni, markverði Keflavíkur. Liðið vann Lengjudeildina í sumar.
    Þá var Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur í enska boltanum, einnig á línunni og athyglinni beint að viðureign Liverpool og Leicester.
    1 hr 43 min
  • Fantabrögð - Kaup og Salah
    Fantasy liðin okkar halda áfram að verða fyrir áföllum í landsleikjahléum. Stærstu fréttirnar eru þær að Mohamed Salah sýktist af kórónaveirunni en spurningin er hvort hann verður frá í einn leik eða lengur. Ef maður selur hann, hvern á maður að kaupa í staðinn? Eru Everton að fara að snúa við blaðinu þegar þeir fá sína bestu menn til baka? Á að selja Kane og Son? Á að taka þrjá í Aston Villa? Hver er hinn nýi Trent?
    Allt þetta og meira til í nýjustu Fantabrögðum.
    51 min
  • Innkastið - Íslenska blandan breytist en margt jákvætt í kortunum
    Innkastið eftir tap Íslands gegn Englendingum á Wembley. Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson, Ingólfur Sigurðsson og Magnús Már Einarsson fara yfir sviðið og ræða landsliðsmálin.
    Meðal umræðuefna: Frammistaðan gegn Englandi og einkunnir, Hamren og fleiri kveðja, hver verður næsti landsliðsþjálfari?, staða enska landsliðsins, U21 landsliðið á EM.
    Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.
    57 min
  • Útvarpsþátturinn - Þjálfaraskipti hjá Íslandi og Pepsi Max tíðindi
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. nóvember.
    Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Örvar Arnarsson, fréttamaður Fótbolta.net, er á línunni en hann var í Búdapest á fimmtudaginn þegar Ísland tapaði úrslitaleiknum gegn Ungverjalandi.
    Sigurbjörn Hreiðarsson fer yfir leikinn og ræðir um framhaldið. Hver mun taka við landsliðinu af Erik Hamren sem tilkynnti að hann muni ekki halda áfram við stjórnvölinn.
    Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ræðir um peningana sem íslensk félagslið missa af fyrst landsliðið komst ekki á EM.
    Þá er fjallað um fréttir vikunnar í íslenska boltanum og spjallað við Davíð Þór Viðarsson, aðstoðarþjálfara FH.
    1 hr 50 min
  • Innkastið - Ólýsanlegt svekkelsi en hvað gerist næst?
    Landsleikurinn gegn Ungverjum er gerður upp í boði White Fox, Viking og Domino's.
    Íslandi tókst ekki að koma sér á þriðja stórmótið í röð. Hrikalega svekkjandi tapleikur í Búdapest þar sem Ísland var yfir þar til á 88. mínútu.
    Hvað fór úrskeiðis og hvað tekur við? Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Ingólfur Sigurðsson fóru yfir leikinn í .Net hljóðverinu.
    53 min
  • Ungstirnin - Mikilvægt verkefni U21 og Luigi gestur
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Í þessum áttunda þætti er fjallað um Becir Omeragic (FC Zurich), Leonidas Stergiou (St. Gallen) og Florian Wirtz (Bayer Leverkusen).
    Rætt er um mikilvæga leiki U21-landsliðsins sem spilar gegn Ítalíu á fimmtudag og Írlandi á sunnudag. Þessir leikir skipta miklu máli í baráttunni um að komast í lokakeppni EM U21 landsliða á næsta ári en Ísland er í hörkubaráttu um að komast á mótið.
    Logi Tómasson (Luigi), leikmaður Víkings og tónlistarmaður, er gestur þáttarins og er rætt um það sem hefur verið í gangi á hans fótboltaferli og tónlistarferli.
    1 hr 50 min
  • Ítalski boltinn - Kvensjúkdómalæknirinn Lotito og lið umferða 1-7
    AC Milan trónir á toppnum þegar sjö umferðir eru liðnar af Serie-A. Lazio heldur áfram að safna stigum í uppbótartíma en utan vallar er liðið í vandræðum enda starfsmenn félagsins sakaðir um að svindla á Covid prófum. Eða hvað? Veit forseti liðsins betur en við öll hvernig veiran dreifir sér?
    Fiorentina nýtir landsleikjahléið til að ráða nýjan þjálfara sem þekkir Flórens betur en flestir og fyrstu leiðinlegu leikir ársins í Serie-A litu dagsins ljós um helgina.
    Í þættinum verður líka tekið saman úrvalslið umferða 1-7.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".
    Þátturinn er í boði Origo.
    44 min
  • Enski boltinn - Tom og Bjarni fóru yfir stóru málin
    Tómas Þór Þórðarson og Bjarni Þór Viðarsson á Síminn Sport kíktu á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir helgina í ensku úrvalsdeildinni.
    Þeir félagar ræddu um byrjun tímabils og einnig var rætt um stórleik Ungverjalands og Íslands.
    Meðal efnis: Firmino á að fara á bekkinn, þreyta í stórleiknum, fleiri skiptingar, Ole ennþá með klefann, Bruno Fernandes með heilt lið á bakinu, bakverðir Man Utd slakir, Aston Villa hljóp yfir Arsenal, geggjaður Grealish, lágt XG hjá Aubameyang, frískur Mourinho, Kane í bómul, dagarnir á toppnum hjá Southampton, gleðin búin hjá Everton, klókur Brendan, hrun Sheffield United, versta vítaspyrna sögunnar, þrír bestu á tímabilinu, bjartsýni fyrir leikinn í Ungverjalandi og margt fleira.
    1 hr 8 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners