Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Ítalski boltinn - Afskorið svínshöfuð og ljót skilaboð
    Fimm umferðir eru nú liðnar af leiktíðinni á Ítalíu og sumir stuðningsmenn eru þegar farnir að hóta eigendum liðsins með afskornu svínshöfði og ljótum skilaboðum. Íslendingar eru farnir að byrja, koma inná og skora. Í þættinum verður líka farið yfir umferð þar sem Juventus missteig sig gegn Verona, AC Milan og Roma skildu jöfn í æsispennandi markaleik og haustþokan í Reggio Emilia gerði áhorfendum erfitt fyrir.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".
    Þátturinn er í boði Origo.
    34 min
  • Fantabrögð - Botnlaus Bamford Brunch
    Mest óþolandi tímabil allra tíma heldur áfram í Fantasy Premier League. Mörkunum fækkaði heldur betur og stjórar sátu eftir með sárt ennið. Leeds var eina liðið sem skoraði meira en tvö mörk í umferðinni og það var Bamford brunchinn sem hélt áfram með þrennu.
    Manchester United og Chelsea stoppuðu í götin með því að stilla upp 5 manna vörn, á meðan Salah klikkaði sem vinsælasti fyrirliðinn. Wolves vill ekki skora fyrr en á 80. mínútu og Arsenal vill bara alls ekki skora mörk, allavega ekki lögleg.
    Þetta og allt hitt um vonbrigði helgarinnar í nýjasta þættinum af Fantabrögðum.
    1 hr 27 min
  • Enski boltinn - Hægt spil Arsenal og líklegir Liverpool menn
    Það var Arsenal þema í hlaðvarpsþættinum „enski boltinn" í þessari viku.
    Einar Guðnason og Jón Kaldal, stuðningsmenn Arsenal, fóru þar yfir leiki helgarinnar á Englandi.
    Meðal efnis: Hugmyndasnauðir Arsenal menn, vantar markaskorara, stjóraskipti hjá Man Utd og Chelsea, bæta við kílóum á Rúnar Alex, sorgarsaga Özil, vélmenni í VAR, Cavani, Liverpool langlíklegastir, óvissa með Guardiola, Kane skorar úr ekki færum, klikkaður Bielsa, öflugur Ward-Prowse, alls konar lið í toppbaráttu, sakna Wenger.
    44 min
  • Heimavöllurinn: Treystir Jón Þór á ungar í stórleiknum við Svíþjóð?
    Hulda Mýrdal og Mist sameinast loksins í stúdíóinu og fara yfir málin. Það á að klára Íslandsmótin en áður en það gerist er RISA leikur á dagskrá þegar Ísland mætir Svíþjóð ytra. Hvernig er staðan á leikmannahópnum og hvernig stillir Jón Þór upp? Hvað gera Pétur og Valskonur svo til að undirbúa sig fyrir Meistaradeildarslaginn sem má líklega ekki æfa saman fyrir? Og hvað gerist í Maxinu miðað við nýjustu fréttir?
    1 hr 9 min
  • Útvarpsþátturinn - Íslenski boltinn og Logi Ólafs
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 24. október.
    Flaggskip X977 fullmannað. Elvar Geir og Tómas Þór halda um stjórnartaumana og ræða um teikningarnar að því hvernig klára skal Íslandsmótið.
    Logi Ólafsson, þjálfari FH, kom í viðtal. Rætt var um stöðu mála, endurkomu hans í fótboltann, sögusagnir um að hann hætti eftir tímabilið, landsliðið og fleira.
    Þá var rætt um enska boltann, Pele og Arnar Sveinn Geirsson, formaður Leikmannasamtakana, svaraði fyrir umræðu í Pepsi Max-Stúkunni á Stöð 2 Sport.
    1 hr 38 min
  • Ítalski boltinn - Zlatan sýningin í Derby della Madonnina
    Í þætti vikunnar verður farið yfir Zlatan showið í Derby della Madonnina, Juventus sem missteig sig djúpt í suðrinu og Napoli sem leit út eins og Atalanta gegn Atalanta. Þá verður líka fjallað um Fabio Quagliarella sem skoraði fyrir Sampdoria um helgina, og á að baki ótrúlegan feril bæði innan vallar sem utan.
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".
    Ef þú hefur ábendingar eða spurningar, hvort sem það snýr að ítölsku deildinni eða bara ferðalögum um Ítalíu almennt, endilega hafðu þá samband á Twitter við @bjornmaro
    39 min
  • Fantabrögð - Hvað skal gera við Kevin?
    Enski boltinn sneri aftur eftir landsleikjahlé með viðburðaríkri umferð. Rauð spjöld, vítaspyrnur, ótrúleg jafntefli og meiðsli lykilmanna.
    Á að losa sig við Trent? Hvað með Kevin De Bruyne og Van Dijk sem eru báðir meiddir? Á að kaupa Agüero?
    Þetta og margt fleira í nýjum þætti af Fantabrögðum.
    Fantabrögð eru í boði Dominos og Elko.
    1 hr 30 min
  • Útvarpsþátturinn - Landsliðið, ástandið og enski
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 17. október.
    Kristján Guðmundsson fótboltaþjálfari er sérstakur gestur þáttarins og er hann við boltahringborðið í fyrri hlutanum.
    Rætt er um ástandið í íslenska boltanum en mótahald er aftur stopp og þá var landsleikjaglugginn gerður upp og þessir þrír leikir sem Ísland lék.
    Í þættinum er einnig rætt við Kristján Atla Ragnarsson, sérfræðing þáttarins um enska boltann og Davíð Snorra Jónasson sem stökk óvænt í það hlutverk að vera við stjórnvölinn þegar Ísland mætti Belgíu í Þjóðadeildinni.
    Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson stýra þættinum að þessu sinni þar sem Elvar og Tómas voru báðir fjarri góðu gamni.
    1 hr 43 min
  • Ungstirnin - Mosfellingarnir Arnór Gauti og Róbert Orri
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Í þessum sjötta þætti er fjallað um Exequiel Palacios (Bayer Leverkusen), Naci Ünüvar (Ajax) og Maarten Vandervoordt (Genk).
    Gestir þáttarins eru Mosfellingarnir Arnór Gauti Jónsson sem spilar með Fylki og Róbert Orri Þorkelsson hjá Breiðabliki.
    1 hr 35 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners