Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Heimavöllurinn: Lengjufjör - Sögulegt á Króknum og Kef stoppar stutt
    Það er allt á suðupunkti í boltanum en í dag fær Lengjudeildin sviðsljósið á Heimavellinum. Nú er ljóst að Tindastóll og Keflavík fara upp um deild á meðan það fellur í hlut Fjölnis og Völsungs að falla. Knattspyrnuþjálfararnir Aníta Lísa Svansdóttir og Óskar Smári Haraldsson mæta í sett og skoða Lengjusumarið til þessa.
    1 hr 31 min
  • Fantabrögð - Ólýsanleg martröð
    Einhverntímann var manni kennt að það væri bannað að sparka í liggjandi mann. En Fantasy Premier League virðist ekki hafa kynnt sér þá reglu og lætur mann nú hafa það óþvegið viku eftir viku.
    Eins og kom fram í síðasta þætti þá tóku allir 3 stjórnendur Fantabragða Wildcard fyrir umferðina og það má segja að það hefði getað gengið betur. En við tjöldum ekki til einnar nætur í þessum bransa, heldur setjum hausinn upp og bíðum spenntir eftir næstu umferð.
    1 hr 5 min
  • Ungstirnin - Alex Þór og nýtt ungstirni Juventus
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Í þessum fimmta þætti er fjallað um Sergino Dest (Barcelona), Dejan Kulusevski (Juventus) og Michaël Cuisance (Bayern).
    Þá kemur Alex Þór Hauksson, fyrirliði Stjörnunnar, í heimsókn og er rætt um allt sem hefur verið í gangi hjá honum hingað til á ferlinum.
    1 hr 27 min
  • Boltinn á Norðurlandi: Æðri máttarvöld aðstoðuðu Magnamenn - Dramatík á Húsavík
    Farið yfir úrslit helgarinnar og kvöldins í kvöld. Einnig var aðeins rýnt í næstu leiki.
    Magni, Völsungur og Þór/KA með frábæra sigra. Stutt í titilinn hjá Tindastóli og óvænt markaflóð hjá KA. Víti eða ekki víti á Þórsvelli?
    Kormákur/Hvöt leikur úrslitaleik á morgun gegn ÍH.
    Rætt var við þá Anton Frey Jónsson um Magna og Egil Sigfússon um KA.
    1 hr 6 min
  • Innkastið - Mörg risastór atvik og rauð spjöld
    Innkastið fer yfir sunnudagsumferðina í Pepsi Max-deildinni og fer einnig yfir Lengjudeildina. Allt í boði White Fox!
    Elvar Geir, Ingó Sig og Gunni Birgis höfðu um nóg að ræða.
    Það er grimm Evrópubarátta, nóg af rauðum spjöldum og stórum atvikum. Haustlægðirnar herja á mótið og veðurguðirnir hafa sín áhrif.
    59 min
  • Útvarpsþátturinn - Leikstílar í Pepsi Max og óverðskuldaður sigur Man Utd
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. september.
    Elvar Geir og Tómas Þór gera upp síðustu umferð í Pepsi Max, ræða helstu fréttapunktana og opinbera úrvalslið og besta leikmann umferðarinnar. Þá er farið yfir niðurstöðuna í vali á besta leikmanni annars þriðjungs.
    Breki Logason, fyrrum fréttastjóri, er harður stuðningsmaður Vals og er á línunni en Valsmenn eru búnir að stinga af í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.
    Arnar Hallsson, þjálfari og leikgreinandi, kemur í heimsókn og ræður um leikstíla Breiðabliks og Víkings sem hafa verið í umræðunni.
    Þá er í lok þáttar fjallað um enska boltann og niðurstöðuna í leik Brighton og Manchester United. Friðrik Már Ævarsson á raududjoflarnir.is kom með skýrslu.
    1 hr 39 min
  • Ástríðan - Umdeilt bann og umtalað viðtal
    Loksins er kominn nýr þáttur af Ástríðunni! Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi.
    Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason en þeir skoða baráttuna í 2. og 3. deild karla.
    Það hefur nóg gengið á síðan síðasti þáttur var tekinn upp og boðið upp á þéttan pakka.
    Meðal efnis: Sewa farinn frá Tindastóli, umdeilt leikbann McAusland, stuðningsmenn á Dalvík, skandall ef Höttur/Huginn fer niður og umræðan um viðtalið við þjálfara Kórdrengja.
    1 hr 23 min
  • Boltinn á Norðurlandi: Til hamingju Tindastóll - Endurtekið efni og Völsungsvon
    Þeir Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson fóru yfir síðustu tvær vikurnar í boltanum á Norðurlandi.
    Endurtekið efni hjá KA - stefnir í met. Frægi lygni sjórinn hjá Þór, KF og Tindastóli, lífróður hjá Magna, D/R og Völsungi.
    Fjórir úrslitaleikir framundan hjá Þór/KA og Tindastóll í fyrsta sinn komið með lið í efstu deild.
    Hafa samband: [email protected]
    1 hr 5 min
  • Fantabrögð - Wild(card) boys
    2. umferðin í Fantasy Premier League þetta tímabilið sýndi okkur heldur betur hvað þessi leikur getur verið grimmur. Hún kenndi okkur hvað þolinmæði getur verið mikilvæg í þessum leik og spilarar sem héldu tryggð við leikmenn eins og Kane, Son og Mane eftir 1. umferð uppskáru nú ríkulega.
    En það var ekki staðan hjá Fantabrögðum. Þáttastjórnendurnir þrír áttu allir lélega umferð og sáu ekki annan valkost í stöðunni en að leggja í borðið hið villta spil. Aron, Gylfi og Gunni fóru yfir stöðuna á "nýju" liðunum sínum og reyndu að færa rök fyrir því að hoppa á þetta svo snemma.
    1 hr 27 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners