Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Enska hringborðið - Úrvalsliðið og ruslflokkurinn
    Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net á X977 laugardaginn 5. desember.
    Fyrsta fjórðungsuppgjör tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins um enska boltann, mætir í hljóðverið.
    Hann ræðir við Elvar og Tómas um tímabilið hingað til og opinberar val sitt á úrvalsliðinu og vonbrigðaliðinu.
    53 min
  • Heimavöllurinn: VIÐ ERUM Á LEIÐ TIL ENGLANDS!
    Ísland er komið á EM!
    Það var ljóst í gærkvöldi að landsliðið okkar bjargaði fótboltaárinu 2020 með því að tryggja sér sæti beint á Evrópumótið á Englandi 2022. Það voru því kallaðir út sérfræðingar til að fara yfir málið en þær Aníta Lísa yfirþjálfari hjá KR og Bára Kristbjörg þjálfari Augnabliks mættu á Heimavöllinn.
    52 min
  • Fantabrögð - Man City mættir aftur
    Manchester City tóku Burnley 5-0 á heimavelli, í fjórða skiptið í röð. Þau sem tóku sénsinn á Mahrez uppskáru ríkulega í Fantasy Premier League en 2 þáttastjórnendur settu bandið hins vegar á De Bryune sem gekk sömuleiðis vel.
    Ollie Watkins sá til þess að Ollie-hornið var ríkulegt að þessu sinni, en það er búið að fresta næsta leik hjá honum vegna hópsmits hjá Newcastle.
    Hvaða leikmann hræðistu mest að vera án? Á að kaupa Cavani? Er einhver ennþá með Arsenal menn? Hvern á að kaupa fyrir Jimenez?
    Fantabrögð eru í boði Dominos, Teq Ísland og Nemíu.
    1 hr 15 min
  • Enski boltinn - Mögnuð innkoma Cavani og reiður Klopp
    Hlaðvarpsþátturinn „Enski boltinn" er á sínum stað í dag líkt og eftir allar helgar í ensku úrvalsdeildinni.
    Gunnar Ormslev, lýsandi á Síminn Sport, og Jóhann Skúli Jónsson, þáttastjórnandi í hlaðvarpinu Draumaliðið, fóru yfir umferðina.
    Það eru White Fox, Viking gylltur (léttöl) og Domino's sem bjóða upp á þáttinn.
    Meðal efnis: Markaskorarinn Cavani, þreytt að ræða Pogba, miklar breytingar Solskjær, mistök De Gea líta aulalega út, VAR er drasl, fótbolti gæti breyst í handbolta, reiður Klopp, Minamino gerir lítið, aulalegt að vera ekki með fimm skiptingar, Mourinho skellihlægjandi, áhorfendleysi truflar, B-lið portúgalska landsliðsins stendur sig vel, Arteta leitar lausna, Aubameyang skorar ekkert, skelfilegt höfuðhögg, áhyggjur af Burnley, Mahrez í stuði, Gylfi fer ekki fet, Everton breytir um kerfi, covid bangsinn Lundstram.
    50 min
  • Maradona í faðmi ljónsins
    Seinni hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 28. nóvember.
    Orri Páll Ormarsson blaðamaður og rithöfundur mætti í þáttinn.
    Rætt var um goðsögnina Diego Maradona sem lést á dögunum. Maradona er einn besti, ef ekki besti, fótboltamaður allra tíma og var ótrúlegur karakter.
    Þá er einnig rætt um áhuga Íslendinga á enska boltanum. Orri skrifaði ástarsögu um þjóðaríþrótt Íslendinga, Í faðmi ljónsins, sem er komin í jólabókaflóðið.
    50 min
  • Þorvaldur Örlygs ræðir um stöðu íslenska boltans
    Fyrri hluti útvarpsþáttarins Fótbolti.net laugardaginn 28. nóvember.
    Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræða við Þorvald Örlygsson um stöðu íslenska boltans og um framtíðarpælingar.
    Þorvaldur lét nýlega af störfum hjá KSÍ þar sem hann þjálfaði U19 og U17 landsliðin. Hann er nú kominn til Stjörnunnar þar sem hann starfar við hlið Rúnars Páls Sigmundssonar.
    59 min
  • Ítalski boltinn - Táraflóð í Napolí og Inter berst við gamla djöfla
    Eftir vel heppnað landsleikjahlé ítölsku liðanna er deildin farin aftur af stað. Stuðningsmenn Napolí kveðja hetjuna sína sem féll frá í vikunni og Antonio Conte hefur ekki tekist að særa út úr Inter liðinu gamla djöfla. Í höfuðborginni standa yfir upptökur á þriðju Airplane! grínmyndinni en í þetta sinn tekur Claudio Lotito forseti liðsins við hlutverki Leslie Nielsens .
    Ítalski boltinn er hlaðvarpsþáttur sem fjallar einungis um ítalska boltann. Björn Már Ólafsson mun í vetur gera reglulega þætti þar sem hann fer yfir það sem er að gerast í ítalska boltanum. Verður fjallað um Íslendingana í deildinni, skemmtilegar sögur, rifjaðar upp goðsagnir og svo verða í hverjum þætti veitt veitt hin skemmtilegu verðlaun „gullna ruslatunnan", eða „Bidone d'oro".
    43 min
  • Ungstirnin - 2000 úrvalslið og Blikar koma í heimsókn
    Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Arnar Laufdal Arnarsson og Magnús Hólm Einarsson.
    Í þessum níunda þætti er fjallað um Yusuf Demir (Rapid Vienna), Marash Kumbulla (Roma) og Yunus Musah (Valencia).
    Drengirnir bjuggu báðir til úrvalslið úr leikmönnum sem eru fæddir árið 2000.
    Davíð Ingvarsson og Brynjólfur Andersen Willumsson leikmenn Breiðabliks voru gestir í þættinum og var rætt um Pepsi-Max tímabilið sem var að klárast sem og það sem hefur verið í gangi á ferli þeirra.
    1 hr 44 min
  • Miðjan - Siggi Bond var neyddur til að ræna apótek í Amsterdam
    Sigurður Gísli Snorrason varð Íslandsmeistari með FH árið 2015 en lífernið fór illa með hann. Fimm árum síðar fann hann botn í lífinu þegar hann mætti vopnaður byssu í apótek í Amsterdam og var handtekinn. Hann sneri lífinu við, tók sig á og átti gott tímabil með Þrótti í Vogum í sumar og stefnir hátt í fótboltanum að nýju. Siggi Bond segir sögu sína í Miðjunni í dag.
    Meðal efnis:
    - Hvaðan kemur gælunafnið Siggi Bond?
    - Gekk illa að ráða við hann á mótum
    - Andrúmsloftið eftir úrslitaleikinn 2014
    - Fyrstu leikir í meistaraflokki og titill með FH 2015
    - Skemmtilegt sumar með Pétri Péturs hjá Fram
    - Er skemmmtilegra að klobba eða skora?
    - Mætti beint af djamminu á æfingar hjá ÍR
    - Hætti eftir uppákomu um verslunarmannahelgina í eyjum
    - Í dagneyslu á kókaíni
    - Hætti eftir einn leik með ÍR 2019 og fór enn dýpra í ruglið
    - Handtekinn í Amsterdam í febrúar
    - Frelsissviptur í 36 tíma
    - Neyddur til að ræna apótek
    - Beint í meðferð í Krísuvík
    - Stóð sig vel með Þrótti Vogum í sumar
    - ÍBV vildi fá hann eftir tímabilið
    - Stefnir á að spila með FH aftur
    56 min
  • Fantabrögð - Lognið á undan storminum næstu helgi
    Það var fullur bátur af föntum í þættinum í dag. Hlutirnir virðast loks vera að færast í eðlilegt horf. Fantasy-guðirnir sýndu spilurum vægð þegar þeir leyfðu Bruno að skora. Liverpool hélt hreinu. Dominic Calwert-Lewin skoraði. Kane lagði upp. Chris Wood svaraði kallinu. Ekkert nýtt undir sólinni. Sem þýðir að í rauninni var allt nýtt undir sólinni.
    Þrátt fyrir það eru ákveðnar leikjasveiflur í gangi og næstu vikur munu skipta sköpum fyrir stjóra sem eru að elta uppi forskot.
    Hvaða liðum á að fjárfesta í? Af hverju eru stjórar ekki að hoppa á KDB eða Salah? Hverjir eru svipustrákarnir í ár?
    Þessi þriðjudagsþáttur er að sjálfsögðu í boði Dominos, TeqIsland og Nemíu.
    1 hr 29 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners