Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Miðjan - Lárus Guðmunds um bikartitla, mútugreiðslur og fleira
    Lárus Guðmundsson var á sínum tíma eldfljótur og brögðóttur markahrókur sem fékk mikið lof hjá mönnum eins og Sir Alex Ferguson. Hann var sigursæll, bæði Íslandsmeistari og svo bikarmeistari í Belgíu og Þýskalandi en var líka sakaður um mútur og átti í útistöðum við landsliðsþjálfara Íslands. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag.
    Þátturinn í dag er í boði Boðleiðar. Með lausnum frá Boðleið er vinnustaðurinn þar sem þú ert, fullkomnar lausnir í fjarvinnu. Nánar er hægt að kynna sér málið á www.bodleid.is
    Meðal efnis:
    - Spilaði með landsliðinu gegn Man City og Englandi á Laugardalsvelli
    - Deilurnar við Tony Knapp sem henti honum úr landsliðinu
    - Hann og Arnór 16 ára í framlínu Víkings
    - Íslandsmeistaratitilinn 1981
    - Tæklingaæfing í klukkutíma með Middlesbrough
    - Pfaff fiskaði hann útaf og kallaði hann íslenska aumingjann
    - Skoraði tvö og tryggði bikartitil í Belgíu
    - Hræddur og flúði stuðningsmenn á hlaupum í bikarfögnuði
    - Sir Alex Ferguson kallaði Lárus stórsnjallan sóknarleikmann
    - Lenti í mútumáli en var sýknaður
    - Þjóðhetja í Þýskalandi eftir sigur á Bayern í bikarúrslitum
    - Ótrúleg endurkoma í Evrópuleik - 6 mörk í seinni hálfleik
    - Fyrir ofan Maradona á lista markahæstu manna
    - Stærstu mistök ferilsins að fara til Kaiserslautern
    - Erfitt að sætta sig við að vera búinn á því
    - Dómgreindarskortur að taka við þjálfun Víkings
    - Stofnaði KFG fyrir 12 árum en hætti í vetur
    - Gat ekki verið sáttasemjari milli dómara og Sali Heimis Porca
    - Dómarar á landsbyggðinni fagna því að hann sé hættur
    1 hr 33 min
  • Áratugarlið efstu deildar - Samantekt
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net hélt upp á tíu ára afmæli sitt á X977 á síðasta ári með því að velja úrvalslið áratugarins í efstu deild á Íslandi, 2009-2019.
    Heyrt var í öllum leikmönnum liðsins og þjálfari valinn fyrir þetta magnaða lið.
    Hér er samantektarþáttur þar sem spiluð eru brot úr viðtölum við þessa fræknu kappa sem komust í þetta magnaða lið.
    Liðið: Gunnleifur Gunnleifsson; Pétur Viðarsson, Daníel Laxdal, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Bjarni Ólafur Eiríksson; Davíð Þór Viðarsson, Bjarni Guðjónsson, Baldur Sigurðsson, Atli Guðnason, Óskar Örn Hauksson, Atli Viðar Björnsson. Þjálfari Heimir Guðjónsson.
    1 hr 10 min
  • Útvarpsþátturinn - Fjárhagsáhyggjur í fótboltaheiminum
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður hlaðvarpsþátturinn Fótbolti.net á meðan samkomubann er í gangi.
    Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Íslandsbanka og fótboltaáhugamaður, er gestur þáttarins. Björn ræðir meðal annars ræða um hvaða áhrif ástandið í heiminum hefur á tekjuöflun fótboltafélaga, hér heima og erlendis.
    Þá eru ýmsar vangaveltur um það hvernig fótboltaheimurinn tekst á við það ástand sem nú er í gangi.
    Elvar Geir og Tómas Þór ræða svo um hverju það gæti breytt fyrir íslenska landsliðið ef EM verður frestað um ár og gefa hlustendum hugmyndir í leit þeirra að afþreyingarefni sem tengist fótbolta.
    1 hr 14 min
  • Fantabrögð - 29. Umferð - Rússíbanareiðir
    29. umferðin í Fantasy Premier League var ekki sú besta. Allavega ekki fyrir okkur sem settum allt traust á leikmenn sem áttu að eiga tvöfalda umferð, því hún varð það svo alls ekki eftir að frestuðum leik Manchester City og Arsenal var frestað aftur.
    Gamlar hetjur síðan fyrr í vetur eins og John Lundstram og Jamie Vardy sneru aftur með bombur en Harvey Barnes var stigahæstur í umferðinni með 19 stig.
    Stigahæstur í Budweiser deildinni var hins vegar Valtýr Njáll með 107 stig.
    55 min
  • Miðjan - Tómas Ingi Tómasson fer yfir ferilinn
    Tómas Ingi Tómasson fór víða á fótboltaferlinum, var eini atvinnumaður Íslands í Austur Þýskalandi og náði flottum árangri hér á landi sem ytra. Eftir ferilinn breytti hann leiknum í fótboltaumfjöllun í sjónvarpi og fór svo í þjálfarastörf. Undanfarin ár hefur hann átt í erfiðri baráttu við heilsuna. Hann er gestur podcastþáttarins Miðjunnar á Fótbolta.net í dag.
    Þátturinn í dag er í boði Boðleiðar. Með lausnum frá Boðleið er vinnustaðurinn þar sem þú ert, fullkomnar lausnir í fjarvinnu. Nánar er hægt að kynna sér málið á www.bodleid.is
    Meðal efnis:
    - Spilaði með pabba sínum í framlínu ÍBV
    - Skipti um númeraplötur á lögreglubílnum
    - Drukku þrjú 2 lítra stígvél af bjór á dag í æfingaferðinni
    - Atvinnumaður í Austur Þýskalandi þegar múrinn var að falla
    - Maður skotinn fyrir utan húsið hans
    - Í stríði við kallana á hólnum í eyjum
    - Ekki hrifinn af klefaöskri Gauja Þórðar
    - Stórundarleg æfing hjá Sogndal
    - Luka Kostic bannaði honum að taka skæri
    - Einn af 10 mestu fávitum ævinnar í Raufoss
    - Dúxaði í nuddnámi í Noregi
    - Heil vetrarvertíð á línubát til að geta strítt Heimi Hallgríms
    - Keypti sér veðhlaupahest í Noregi
    - Datt í það þegar díllinn við Scunthorpe klúðraðist
    - Hafnað af ÍBV en fór í Þrótt og átti þátt í 21 af 27 mörkum
    - Svikinn um 3 milljónir af Þrótti
    - Ranglega tekið af honum mark í úrslitaleik deildarinnar 2001
    - Átti skilið betri framkomu frá ÍBV fyrir riftun samningsins
    - Blöskraði drasl þættir um fótbolta og bauð sig fram í Pepsi mörkin
    - Sendi Eyjólfi Sverrissyni bréf og bað um að vera aðstoðarmaður hans
    - Rekinn frá HK tveimur dögum eftir lokaleik á EM
    - Ósætti milli U21 og A-landsliðsins
    - Tók Jón Jónsson af lífi og fékk hann svo til að syngja fyrir sig
    - Misheppnuð mjaðmaaðgerð og 8 mánuðir á sjúkrahúsi
    - Taldi sig af náð heilsu en endaði í tveimur aðgerðum í nóvember
    1 hr 40 min
  • Innkastið - Tómar stúkur, rauð Manchester og feðgar á ferð
    Það er tíðindamikil helgi að baki í Evrópufótboltanum.
    Enski boltinn er að vanda í aðalhlutverki í þættinum en Elvar Geir Magnússon, Daníel Geir Moritz og Magnús Már Einarsson fóru yfir allt það helsta.
    Meðal efnis: Leikið fyrir luktum dyrum, United á réttri leið, Gilmour magnaður, Henderson og Henderson, markverðir í stuði, Real Madrid núllar út El Clasico og KA leit skelfilega út.
    51 min
  • Heimavöllurinn - Varnarsinnuð vonbrigði
    Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir taka stöðuna á boltanum ásamt Lilju Dögg Valþórsdóttur í nýjasta þætti Heimavallarins. Landsliðin eru áberandi í þætti dagsins en bæði A-landsliðið og U19 eru stödd á Spáni þar sem þau taka þátt í æfingamótum og undirbúa sig fyrir krefjandi verkefni. Þá er einnig farið yfir helstu fréttir og boðið upp á nokkra slúðurmola.
    52 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners