Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Fótbolta Quiz Þorkels - Sjötta keppnin
    Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi.
    Það er sjötti miðvikudagurinn í samkomubanni og sjötta spurningakeppni Þorkels af sjö er komin í loftið.
    Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.
    35 min
  • Miðjan - Damir upplifði mikið heimilisofbeldi
    Damir Muminovic lenti ungur í því að faðir hans yfirgaf fjölskylduna og hefur ekki átt neitt samband við hann síðan. Hann upplifði mikið heimilisofbeldi á sínum yngri árum og leitaði mikið í djamm. Í gegnum fótboltann náði hann svo góðri reglu á lífinu. Damir segir sögu sína í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net í dag.
    Ekkert barn á að þurfa að þola ofbeldi eða verða vitni að ofbeldi.
    Allt ofbeldi á heimili þar sem börn dvelja, er jafnframt ofbeldi gagnvart börnum. Ef þú býrð við slíkar aðstæður eða þekkir eitthvert barn sem býr við slíkar aðstæður þá áttu að hafa samband við 112. Þar getur þú rætt málin við lögreglu í fullum trúnaði. Samband er haft við barnaverndarnefnd ef ástæða er til. Mikilvægt er að hafa samband þótt þú sért í vafa. Einnig er hægt að hafa samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða netspjallið 1717.is. 1717 er opið allan sólarhringinn og þar er hægt að ræða við sérþjálfaða ráðgjafa í nafnleynd og fullum trúnaði.
    Sjá meira á vef lögreglunnar
    Meðal efnis:
    - Æfa 2-3 saman úti á götu í dag
    - Berfættur í fótbolta í Serbíu
    - Pabbi hans lét sig hverfa í skjóli nætur og kom aldrei aftur
    - Flutti 10 ára til Íslands
    - Grenjaði á hverjum degi og vildi fara heim
    - Mikið heimilisofbeldi kærasta móður hans
    - Þorði ekki að hringja í lögreglu eða segja frá
    - Slóst við ofbeldismanninn tvítugur
    - Byrjaði ungur að drekka og oft settur í agabönn
    - Laug því að hann væri að vinna því hann nennti ekki á æfingu
    - Varð tengdasonur Óla Kristjáns og náði sér á strik
    - Fór til Breiðabliks tímabilið sem Óli hætti
    - Settur í agabann fyrir að fara edrú á Októberfest 2016
    - Missti móður sína úr krabbameini 2017
    - Eignaðist foreldra úr Blikafjölskyldunni
    - Vildi ekki gervigras en er mikill stuðningsmaður þess í dag
    - Pirrandi að Blikar misstu marga menn í fyrra
    - Miklar breytingar með komu Óskars Hrafns Þorvaldssonar
    - Nýja leikkerfið hjá Breiðabliki
    - Líður vel í Serbíu en vill ekki flytja þangað með börnin
    - Íhugaði að breyta nafninu í Damir Smári Muminovic
    1 hr 1 min
  • Útvarpsþátturinn - Bjarni Jó og Andri Fannar
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í hlaðvarpsformi meðan samkomubann gildir. Elvar Geir og Tómas Þór fengu ansi ólíka en skemmtilega gesti þessa vikuna.
    Fyrri gesturinn er reynsluboltinn Bjarni Jóhannsson, þjálfari Vestra. Rætt var við Bjarna um það hvernig komandi Íslandsmót geti farið fram og einnig voru rifjaðir upp gamlir tímar.
    44:00 - Seinni gestur þáttarins er svo einn mest spennandi fótboltamaður Íslands í dag, hinn 18 ára Andri Fannar Baldursson. Andri spilar fyrir Bologna og varð fyrr á árinu yngsti Íslendingurinn til að spila í einni af bestu deildum Evrópu.
    Í lok þáttarins fóru Elvar og Tómas svo yfir fréttir vikunnar og val á þeim leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar sem hafa verið mestu vonbrigði tímabilsins.
    1 hr 36 min
  • Fótbolta Quiz Þorkels - Keppni fimm
    Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi.
    Það er fimmti miðvikudagurinn í samkomubanni og fimmta spurningakeppni Þorkels af sjö er komin í loftið.
    Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.
    34 min
  • Miðjan - Guðmundur Mete: Æskuvinur Zlatan um Malmö, Keflavík og fleira
    Guðmundur Viðar Mete flutti ungur að árum til Malmö með fjölskyldu sinni og varð strax vinur Zlatan Ibrahimovic. Saman fóru þeir upp í aðallið Malmö en eftir að leiðir skyldu héldu þeir alltaf vinskap. Guðmundur Viðar kom svo heim til Íslands og spilaði með frábæru liði Keflavíkur í nokkur ár sem átti í hatrammri baráttu við ÍA. Guðmundur Viðar Mete segir sögu sína í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net í dag.
    Meðal efnis:
    - Liðsfélagarnir gáfu honum tvær vikur í starfi en er að ná 14 árum
    - Afi hans gaf rautt spjald með rauðum Winston í leik
    - Ekki sáttur við að flytja til Malmö
    - Slagasmál, hnífar og handjárnaðir kennarar í skólanum
    - Fyrsti vinurinn var Zlatan Ibrahimovic
    - Hann og Zlatan svindluðu í útihlaupum með strætókortið
    - Zlatan stal reiðhjóli í miðju hlaupi og reiddi hann
    - Þurfti að spila leik á útskriftardaginn og missti af djamminu
    - Hafnaði Lilleström
    - Svíar báðu hann að skipta um ríkisfang
    - Mestu mistökin að yfirgefa Malmö
    - Erfiðir stuðningsmenn í Norrköping
    - Þjóðverjar hræktu og kýldu hann gegn U21 liði Íslands
    - Kvartaði undan umgjörð hjá U21 liðinu
    - Þóttist vera hundur í göngutúrum Keflavíkur liðsins
    - Framkvæmdastjóri Midjylland var algjör skíthæll
    - Rígur ÍA og Keflavíkur, rauða spjaldið, tæklingin og kynþáttafordómarnir
    - Mark Bjarna Guðjóns sem gerði allt vitlaust
    - Fór á reynslu í Tyrkalandi en þjálfarinn rekinn degi fyrr
    - Svekkjandi að tapa titlinum til FH
    - Áttum að gefa skít í að horfa á þennan leik
    - Willum vildi gera hann að miðjumanni
    - Eina markið á Íslandi kom í 31 - 0 sigri Hauka
    - AuPair hjá Zlatan eftir ferilinn
    - Kynnin af Mourinho, Gattuso, Beckham og fleirum
    1 hr 31 min
  • Útvarpsþátturinn - Stóru málin við páskahringborðið
    Boltahringborðið í síðasta mánuði vakti mjög góð viðbrögð og í útvarpsþætti vikunnar er leikurinn endurtekinn.
    Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Benedikt Bóas eru við hringborðið. Hver og einn kemur með sitt umræðuefni að borðinu, umræðuefni sem tengjast íslenska boltanum, enska boltanum og heimsfótboltanum.
    1 hr 23 min
  • Fótbolta Quiz Þorkels - Keppni fjögur
    Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi.
    Það er fjórði miðvikudagurinn í samkomubanni og fjórða spurningakeppni Þorkels því komin í loftið. Tilvalið að halda fjölskyldukeppni um páskana!
    Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.
    36 min
  • Miðjan - Stefán Logi: Strokubarnið sem samdi við Bayern Munchen
    Stefán Logi Magnússon strauk að heiman 13 ára gamall og lýst var eftir honum í blöðunum. Rúmlega þremur árum síðar var hann orðinn atvinnumaður hjá Bayern Munchen. Ferillinn hans var þó eins og jójó því næstu árin var hann atvinnumaður en kom heim og spilaði í 2. og 3. deild áður en ferillinn fór á flug að nýju og hann varð atvinnumaður og landsliðsmarkvörður Íslands. Stefán Logi er gestur í podcastþættinum Miðjunni á Fótbolta.net í dag.
    Meðal efnis:
    - Strauk að heiman 13 ára og lýst eftir honum í blöðunum
    - Samdi við Bayern Munchen 16 ára
    - Grjótharðar refsingar hjá Bayern
    - Varð vinur Gerd Muller án þess að vita hver hann væri
    - Lothar Matthaus öskraði á hann á æfingu
    - Vinskapurinn við Owen Hargreaves
    - Heppinn að missa ekki fótinn hjá Bayern
    - Ottmar Hitzfeld lokaði á hann fyrir að svara ekki í símann
    - Saga um að hann hafi stolið peysu
    - Byrjaði meistaraflokksferilinn á að slá út Ravelli
    - Æfði með danska landsliðinu fyrir HM 2002
    - Spes tími hjá Bradford á Englandi
    - Hætti í fótbolta 23 ára og varð meðferðarfulltrúi í Svíþjóð
    - Endaði óvænt með KS í 1. og 2. deild og féll fyrir félaginu
    - Seldur til Hvatar í 3. deild á háa upphæð fyrir einn leik
    - Sló Stjána Finnboga út hjá KR
    - Tíminn með landsliðinu eftir að hafa gagnrýnt þjálfarann
    - Liðsfélagi í Selfossi gekk útaf í miðjum leik
    - Lenti saman við Helga Sig eftir tap gegn FH í fyrra
    - Er hann hættur í fótbolta?
    - Skjaldarmerkið á öxlinni
    2 hr 2 min
  • Útvarpsþátturinn - Farið yfir málin með Hannesi og Begga Ólafs
    Útvarpsþátturinn er aðeins í hlaðvarpsformi á meðan á samkomubanni stendur.
    Gestir í þætti vikunnar eru Hannes Þór Halldórsson landsliðsmarkvörður og leikmaður Vals og Bergsveinn Ólafsson fyrirliði Fjölnis.
    Elvar Geir og Tómas Þór áttu áhugaverðar umræður við þá félaga um ýmis mál tengd boltanum og í lok þáttarins var svo farið yfir fréttir vikunnar.
    1 hr 14 min
  • Fótbolta Quiz Þorkels - Þriðja keppnin
    Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi.
    Það er þriðji miðvikudagurinn í samkomubanni og þriðja spurningakeppni Þorkels því komin í loftið.
    Um er að ræða 30 spurninga keppni sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.
    32 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners