Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Ótímabær spá fyrir Pepsi Max byggð á sandi - Blaut tuska fyrir Fjölni
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fóru yfir nýja ótímabæra spá fyrir Pepsi Max-deildina. Spá sem er byggð á sandi!
    Í klippunni er einnig viðtal við Ásmund Arnarsson, þjálfara Fjölnis. Grafarvogsliðið missti fyrirliða sinn þegar Bergsveinn Ólafsson tilkynnti að hann væri ekki lengur með áhuga fyrir fótbolta og lagði skóna óvænt á hilluna.
    1 hr 18 min
  • Miðjan - Bjarnólfur var til í að koma nakinn fram fyrir frægðina
    Bjarnólfur Lárusson var tilbúinn að gera allt fyrir frægðina, meðal annars að koma nakinn fram. Hann var atvinnumaður í Englandi og Skotlandi en sneri svo heim og þótti óheiðarlegur leikmaður sem fékk ótal spjalda. Hann var líka lengi Íslandsmethafi í kúluvarpi. Bjarnólfur er gestur vikunnar í podcastþættinum Miðjan hér á Fótbolta.net.
    Meðal efnis:
    - Stofnaði ráðgjafafyritæki í haust
    - Hluthafi í Passion bakaríi
    - Átti Íslandsmet í kúluvarpi í áratug
    - Mjög efnilegur í handbolta
    - Samkeppni Týs og Þórs
    - Pabbi hans rifti fyrsta atvinnumannasamningnum brjálaður
    - Auðvelt að æsa hann upp
    - Stálu treyjum andstæðinga
    - Rekinn heim frá Rangers eftir þjófnað í klefanum
    - Slegist á æfingum fyrstu árin hjá ÍBV
    - Fögnin og Slor og skítur skapaði stemmningu
    - Skoruðu alltaf jafnmikið og undirbúnu fögnin
    - Atli Eðvalds henti varamönnunum því þeir pöntuðu pizzu á bekkinn
    - Ók áfram fullur með lögguna hangandi á bílnum
    - Draumamarkið gegn Stuttgart
    - ÍBV bannaði honum að æfa því hann fór frítt til Hibernian
    - Allt tryllt þegar Walsall komst upp úr 2. deildinni
    - Bretum fannst hann illa klæddur
    - Sneri heim til ÍBV til að einbeita sér að námi
    - Nakinn á forsíðu Mannlífs
    - Dónaleg samskipti við Tómas Inga innan vallar en nánast í sleik eftir æfingu
    - Æskuvinur hans drullaði yfir hann í fyrsta leik KR í eyjum
    - Spjaldavesenið og atvikið með Reyni Leós
    - Aldrei séð 30 barða karlmenn eins og þegar hann tók við Víkingi
    - Aðstoðaði Þrótt í lokaleiknum í fyrra með Tómas Inga í eyranu
    1 hr 50 min
  • Heimavöllurinn: Varamaður úr KR keyptur fyrir metupphæð í Hruninu
    Anna Björk Kristjánsdóttir var leggjalangur framherji í yngri flokkunum. Þegar hún var 18 ára gömul var hún ennþá varamaður í KR og hafði einungis spilað 11 leiki í efstu deild.
    Hún gekk í gegnum mikinn missi sumarið 2008 sem hafði mikil áhrif á hennar næstu skref. Máni Pétursson sannfærir hana um að koma í miðlungslið Stjörnunnar og hún endar á því að spila 168 leiki fyrir Stjörnuna, vera goðsögn í Garðabænum og vinna sex stóra titla.
    Anna hefur síðustu fjögur tímabil spilað sem atvinnukona í Svíþjóð og Hollandi og stefnir á að spila á Íslandi í sumar.
    Anna Björk fór yfir ferilinn með Huldu Mýrdal á Heimavellinum.
    Meðal efnis:
    - Uppvaxtarárin í Vesturbænum
    - Engin áhugi að verða afreks fimleikakona
    - Risa yngriflokka þjálfarar
    - Aðrir sem tóku fram úr í yngri flokkum
    - Olga Færseth hringir í U-16 þjálfarann
    - Að æfa með A-landsliðinu í KR
    - Pirringur yfir litlum spilatíma
    - Bróðurmissir og sorg
    - Af tilviljun sett í hafsent
    - Máni sagður bilaður að kaupa varamann úr KR
    - Fer á fund með pabba sínum hjá miðlungsliði Stjörnunnar
    - Fyrsti Íslandsmeistaratitillinn
    - Ætlaði ekki að raka á sér lappirnar ef hún yrði Íslandsmeistari
    - 17 ára Glódís úr HK/Víking stígur á tær
    - Doktor Big og Rússlandsferðirnar
    - Mikilvægur U-23 ára landsleikur
    - 18-0-0 tímabil Stjörnunnar og öll markmiðin
    - Blóðið rann hægt í litlu leikjunum
    - Tekin á fund fyrir að vera svart og hvítt með þriggja daga millibili
    - Grétar Rafn kveikti á hausnum
    - Át gras í fyrsta A-landsliðsverkefninu
    - Sjokkið að detta úr byrjunarliðinu korter fyrir EM
    - Afreksíþróttakona sem lærði á klukku í Svíþjóð
    - Sandra Sigurðardóttir og þolinmæðin í landsliðsferðunum
    - Vöðvasöfnun og góð ráð
    - Leiðtogahlutverið í Svíþjóð
    - Hungruð í fleiri landsleiki
    - Deildin flautuð af út í Hollandi þegar PSV var á toppnum
    - Ætlar að spila á Íslandi í sumar
    1 hr 28 min
  • Útvarpsþátturinn - Þórsarar og Magni Grenivík
    Seinni hluti af norðurferð útvarpsþáttarins Fótbolti.net, Halló Akureyri!
    Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas heimsækja 1. deildarfélögin Þór og Magna í þessum seinni hluta.
    Rætt er við Pál Viðar Gíslason þjálfara Þórs og formanninn Óðinn Svan Óðinsson.
    Þá var Heimir Ásgeirsson, Eyjabitakóngur og Magnamaður, heimsóttur í nýtt vallarhús Magna á Grenivík.
    1 hr 38 min
  • Útvarpsþátturinn - Halló Akureyri! Heimsókn til KA
    Fyrri hluti af norðurferð útvarpsþáttarins Fótbolti.net, Halló Akureyri!
    Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas heimsækja KA í þessum fyrri hluta en seinni hlutinn kemur inn á morgun.
    Rætt er við Hallgrím Jónasson, spilandi aðstoðarþjálfara KA, og framkvæmdastjóra félagsins, Sævar Pétursson.
    Þá var sagt frá því hvernig dreifa á leikjum fyrstu umferðar Pepsi Max-deildarinnar og rætt um fréttirnar af kaupum Vals á Aroni Bjarnasyni.
    52 min
  • Fantabrögð - Draumaliðsdeild Eyjabita - upphitunarþáttur
    Draumaliðsdeild Fótbolti.net og Eyjabita er farin af stað, en stefnt er að því að Pepsi Max deild karla hefjist 13. júní.
    Eins og undanfarin ár velur fólk 15 leikmenn úr liðunum 12 og má mest hafa 3 leikmenn úr hverju liði. Leikmenn kosta á bilinu 4 til 12 milljónir króna en þjálfarar hafa 100 milljónir til að kaupa leikmenn.
    Þeir Fantabragðabræður Aron og Gylfi fóru yfir málin og opinberuðu sitt fyrsta liðsval.
    Kóði í deild Fantabragða er 36rRP4tkhv
    55 min
  • Fótbolta Quiz Þorkels - Lokakeppnin
    Íþróttafréttamaðurinn Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson á RÚV leggur sitt að mörkum í að stytta fólki stundirnar í því ástandi sem er í gangi.
    Það er sjöundi miðvikudagurinn í samkomubanni og sjöunda og síðasta spurningakeppni Þorkels, í bili að minnsta kosti, er komin í loftið.
    Um er að ræða 30 spurninga Pod Quiz sem hægt er að spreyta sig á. Ert þú með allt á hreinu í boltanum? Taktu þátt og skoraði á vini og kunningja.
    38 min
  • Miðjan - Gummi Torfa valdi fótboltaferil fram yfir tónlistina
    Guðmundur Torfason var í hljómsveitum með Mezzoforte strákunum og hefði getað orðið næsti Björgvin Halldórsson en valdi farsælan fótboltaferil framyfir það. Hann heillaði meðal annars Sir Alex Ferguson þegar hann skoraði þrjú, eða fjögur, mörk í sama leiknum á Old Trafford. Gummi Torfa fór yfir ferilinn í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag.
    Meðal efnis:
    - Uppvaxtarárin í Vestmannaeyjum
    - Vildi ekki fara í frjálsar eins og pabbi hans
    - Valdi Fram þó pabbi hans hafi viljað KR
    - Söngvari í hljómsveit Mezzoforte strákanna
    - Hefði verið næsti Björgvin Halldórsson
    - Tekur kannski upp plötu í ellinni
    - Drukku Finlandia á heimleið úr unglingalandsliðsferð
    - Skilinn eftir á flugvellinum og sagt að hann yrði aldrei aftur í landslið
    - Valdi fótboltann fram yfir tónlistina
    - Spilaði á balli í stað þess að spila fyrsta bikarúrslitaleikinn
    - Sigur Fram gegn Rapid Vín við vondar aðstæður
    - Sagði við Ásgeir Elíasson að hann ætlaði að skora 20 og jafnaði metið
    - Hvort viltu markamet eða Íslandsmeistaratitil?
    - Í sýningatúr með Willie Reinke um alla Evrópu
    - Tæklaður illa á fyrstu æfingu í Belgíu en náði fram hefndum
    - Í einkaflugvél með ítalska landsliðinu
    - Kýldur af Terry Butcher í fyrsta leik með St. Mirren
    - Brjálaðir stuðningsmenn Celtic mættu á leik St. Mirren gegn Rangers
    - Í lögreglufylgd út á flugvöll heim í jólafríið
    - Sagður hafa skorað úr 9 af hverjum 10 aukaspyrnum
    - Skoraði þrjú eða fjögur í sigri á Man Utd á Old Trafford
    - Alex Ferguson vildi kaupa hann til Man Utd
    - Sleit krossband og eins og fílamaðurinn eftir nokkur andlitsbrot
    - Ósætti St. Mirren þegar hann gaf kost á sér í landsleik gegn Frökkum
    - Mældur skotfastasti leikmaður Skotlands
    - Hafnaði góðum samningi í Hong Kong og valdi Fylki í staðinn
    - Miðvörður síðustu árin á Íslandi
    - Þjálfaraárin
    - Stjórnarstörfin og salan á Herði til Juventus
    - Framboðið til stjórnar KSÍ
    - 19 marka klúbburinn
    2 hr 4 min
  • Heimavöllurinn - Tilbúin í sitt tuttugasta tímabil
    Heimavöllurinn er laus úr sóttkví og það er nóg um að vera í þætti dagsins. Leikjahæsti leikmaður Pepsi Max, landsliðskonan og Íslandsmeistarinn Sandra Sigurðardóttir, er á leið inn í sitt tuttugasta tímabil og kíkir í heimsókn. Hildur Antonsdóttir opinberar hvaða andstæðingar hafa reynst henni erfiðastir og þeir erlendu leikmenn sem hafa skarað fram úr hérlendis eru til umræðu.
    1 hr 7 min
  • Sumargleði útvarpsþáttarins - Boltahringborð
    Boltahringborðið er dregið fram í þriðja sinn í samkomubanninu. Nú er sérstök sumargleði í tilefni dagsins.
    Elvar Geir, Tómas Þór, Magnús Már og Benedikt Bóas eru við hringborðið. Hver og einn kemur með sitt umræðuefni að borðinu, umræðuefni sem tengjast íslenska boltanum, enska boltanum og heimsfótboltanum.
    Einnig var rætt um áhugaverðar niðurstöður á fundi UEFA sem fram fór fyrr um daginn.
    1 hr 28 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners