Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Miðjan - Janus var landsliðsmaður í handbolta og fótbolta
    Janus Guðlaugsson var á sama ári landsliðsmaður í handbolta og fótbolta, endaði í þriðja sæti í langstökki í bikarkeppni FRÍ og þjálfaði vonarstjörnur þjóðarinnar til Íslandsmeistaratitils í 2. flokki í handbolta. Seinni varð hann atvinnumaður í Þýskalandi í nokkur ár og fékk eftir ferilinn það verkefni að bjarga KR frá falli. Janus segir sögu sína í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag.
    Meðal efnis:
    - Rekur eigið fyrirtæki í heilsueflingu í dag
    - Braut rúður í næsta húsi í fótbolta
    - Fór útaf í hálfleik til að spila handboltaleik
    - Hljóp hálfmaraþon, spilaði leik og hljóp sömu leið til baka
    - Bikarúrslitaleikurinn gegn ÍBV um miðjan nóvember
    - Keyrði traktor og tyrfði Kaplakrika í fyrsta sinn
    - Dúxaði á Laugavatni og tók útskriftina fram yfir leik
    - Þaggaði niður í tyrknesku áhorfendunum með draumamarki
    - Settu upp apagrímur þegar Ísland mætti
    - Sóttur á Laugavatn í alla handboltaleiki en æfði ekki með liðinu
    - Spilaði HM í handbolta 1978
    - Gerði Kristján Arason og félaga að Íslandsmeisturum í 2. flokki
    - Þriðji í langstökki í bikarkeppni FRÍ
    - Hafnaði þremur tilboðum um atvinnumennsku útaf skólanum
    - Fékk símtöl frá fyrrverandi liðsfélögum í bankahruninu með boð um peningagjöf
    - Fetaði í fótspor liðsfélaganna með yfirvaraskeggi
    - Lærði að mála og portraitmynd af Tony Schumacher kom í Bild
    - Málaði 20 myndir fyrir opnun á tennishöll í Köln
    - Fór nýjar leiðir til að losna frá ofþjálfun
    - Spilaði sem sweeper en skoraði 15 hraðaupphlaupsmörk í fótbolta
    - Spilaði með George Best gegn Manchester United í tvígang
    - Fékk sig ekki lausan frá Fortuna Köln svo hann fór og þjálfaði FH
    - Bitinn af lögregluhundi í upphitun og missti af leiknum
    - Var kallaður bjargið í Sviss
    - Hundfúll eftir ómanneskjulega tæklingu Þorvalds Örlygssonar
    - Tók við þjálfun KR í fallbaráttu og lét þá fara í stórfiskaleik
    - Fékk Fálkaorðuna hjá Guðna forseta 17. júní í fyrra
    2 hr 13 min
  • Ástríðan - Markahrókurinn Alexander
    Alexander Már Þorláksson, leikmaður Fram, er gestur í Ástríðunni að þessu sinni.
    Alexander Már var markahæsti leikmaður 3. deildarinnar í fyrra þegar hann skoraði 28 mörk í 21 leik með KF, sem fór upp um deild.
    Alexander Már fór yfir ótrúlegt tímabil sitt í fyrra, skoðaði helstu fréttir undanfarna daga og ræddi getumuninn á milli deilda. Leikmannamarkaðurinn er farinn á fullt eftir Covid 19, en þar ber helst að nefna félagaskipti Viktors Segatta í Þrótt Vogum.
    Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi.
    Umsjón: Ingólfur Sigurðsson.
    37 min
  • Heimavöllurinn - Spá fyrir Pepsi Max 2020
    Í nýjasta þætti Heimavallarins er boðið upp á spá fyrir Pepsi Max deild kvenna sem hefst eftir 3 vikur. Gestur þáttarins er Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir og hún ræðir komandi tímabil við þáttastýrurnar Huldu Mýrdal og Mist Rúnarsdóttur.
    Verja Valskonur Íslandsmeistaratitilinn? Halda nýliðarnir sér uppi? Hvaða lið gerðu vel á félagaskiptamarkaðnum? Hvaða leikmenn verða mikilvægastar sínum liðum? Þetta og ýmislegt fleira í þætti dagsins.
    1 hr 28 min
  • Niðurtalningin - Gústi og Gróttusumarið
    Niðurtalningin er hnitmiðaður hlaðvarpsþáttur sem er á dagskrá í hverri viku fram að Íslandsmóti. Í þáttunum er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar.
    Í þessum öðrum þætti er byrjað á fótboltafréttayfirliti og svo er rætt við Ágúst Gylfason, þjálfara Gróttu, um komandi tímabil.
    Hann kemur meðal annars með sína spá um Íslandsmeistara í sumar.
    Umsjón: Elvar Geir og Magnús Már.
    36 min
  • Bikarmeistararnir Ágúst Hlyns og Óttar Magnús
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Gestir þáttarins voru Ágúst Eðvald Hlynsson og Óttar Magnús Karlsson, ungir leikmenn bikarmeistara Víkings.
    Báðir fóru þeir mjög ungir erlendis í atvinnumennsku en eru í dag lykilmenn hjá Víkingum.
    30 min
  • Boltahringborð - Sögulínur sumarsins í Pepsi Max
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Elvar Geir Magnússon, Tómas Þór Þórðarson og Ingólfur Sigurðsson tóku fyrir nokkur umræðuefni fyrir Pepsi Max-deild karla í sumar. Hvernig verða sögulínur deildarinnar?
    Skemmtileg umræða um íslenska boltann.
    Daníel Geir Moritz, eigandi ÍBV, var einnig á línunni.
    1 hr 5 min
  • Miðjan - Augnabliks fíflalæti og fyndnar sögur
    Í lok ársins 1981 var knattspyrnufélagið Augnablik stofnað en lið þeirra vakti mikla athygli næstu árin fyrir almenn fíflalæti og uppákomur. Fræg er til dæmis sagan af því þegar reynt var að stofna félagið hjá ÍSÍ. Jón Orri Guðmundsson og Andrés Pétursson rifja upp gamla tíma í podcastþættinum Miðjunni hér á Fótbolta.net í dag.
    Meðal efnis:
    - Stofnað í lok ársins 1981
    - Ekki allir sáttir við stofnun félagsins
    - Gerðu í því að vera með fíflalæti
    - Vildi láta liðið heita Kakó fyrst
    - Fyndið símtal til ÍSÍ
    - Sendu vallarstjóranum póstkort í öllum ferðum
    - Leigðu flugvél í fyrsta leik á Hellissandi
    - Óvæntar bókagjafir til andstæðinganna
    - Dreifðu karamellum til áhorfenda fyrir leik
    - Mættu með lífverði á limósíum beint í leik gegn FH
    - Kölluðu gamla þjálfarann heim frá Danmörku til að tapa
    - Lögreglan handtók fyrirliðann á vellinum rétt fyrir leik
    - Gáfu andstæðingunum fisk fyrir leik
    - Dómarinn rak annan línuvörðinn af velli í miðjum leik
    - Spiluðu í sundbolum gegn Hildibröndum sem enduðu á pungbindum
    - Friðrik Þór hnýtti í þá í bók Einars Kárasonar
    - Komu ríðandi á völlinn og á Traböntum
    - Markahrókurinn skipti á treyju við tvíburabróður sinn
    - Gerðu menn brjálaða með því að sprengja upp ílu á árshátíð
    - Duttu í það milli leikja á vestfjörðum og skyrtan sem týndist
    - Uppljóstrað hver skrifaði 'Fíflalæti á knattspyrnuvelli' í velvakanda
    - Stöðvuðu tillögu um fjölgun liða með gríntillögu um Monrad kerfið
    - Fóru til Austurríkis og spiluðu upp á bjórkút
    - Þriðja liðið átti að heita Blix en var hafnað
    1 hr 12 min
  • Niðurtalningin - Maggi Bö og skemmtilegustu vellirnir
    Niðurtalningin er hnitmiðaður hlaðvarpsþáttur sem er á dagskrá í hverri viku fram að Íslandsmóti. Í þáttunum er hitað upp fyrir fótboltasumarið með góðum gestum og nýjustu fréttirnar úr boltanum skoðaðar.
    Þáttur dagsins hefst á fótboltafréttayfirliti og svo er rætt við Magnús Val Böðvarsson, vallarstjóra KR, um vallarmálin á Íslandi. Hann velur skemmtilegustu velli landsins og er settur í létta spurningakeppni.
    Umsjón: Elvar Geir og Magnús Már.
    43 min
  • Ástríðan - Sumarið framundan í 2. og 3. deild
    Það styttist óðum í fótboltasumarið og því er tímabært að setjast niður og ræða neðri deildirnar. Að þessu sinni var athyglin á 2. og 3. deild.
    Baldvin Már Borgarsson, aðstoðarþjálfari Ægis, og Óskar Smári Haraldsson, leikmaður Tindastóls, þekkja deildirnar betur en flestir og voru fengnir til þess að koma með áhugaverða umræðupunkta. Ingólfur Sigurðsson stýrði umræðunum.
    Meðal efnis:
    - Bikarkeppni fyrir neðri deildir
    - Mikael Nikulásson stýrir Njarðvík eftir 10 ára pásu frá þjálfun
    - Gríðarlega öflugt lið Kórdrengja
    - Óvænt þjálfaraskipti hjá Kára
    - Venslafélögin í 3. deild
    - Nýtt lið og nýr þjálfari hjá Vængjum Júpíters
    45 min
  • Atli Sigurjóns um hæðir og lægðir - „Var erfitt að mótivera sig"
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Atli Sigurjónsson, leikmaður Íslandsmeistara KR, kom í hljóðver í skemmtilegt spjall.
    Atli var hreinskilinn þegar hann horfði til baka á ferilinn og viðurkennir að metnaður sinn fyrir íslenska fótboltanum hafi ekki verið nægilega mikill þegar hann sá drauma um atvinnumennsku erlendis hverfa.
    Honum líður gríðarlega vel hjá KR og sér sig ekki snúa aftur til Akureyrar.
    29 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners