Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Miðjan - Emil ræðir erfitt tímabil á Ítalíu, landsliðið og framtíðina
    Íslenska landsliðið leikur á laugardaginn leik gegn Albaníu í undankeppni EM 2020. Hafnfirðingurinn, Emil Hallfreðsson leikmaður Udinese í Serie A á Ítalíu er í hópnum en hann er kominn til baka eftir erfið meiðsli.
    Emil settist niður með Arnari Daða Arnarssyni og fór yfir landsleikinn á laugardaginn og síðustu mánuði með landsliðinu. Auk þess fóru þeir yfir nýafstaðið tímabil Emils á Ítalíu þar sem hann gekk undir aðgerð í desember og skipti um félag í miðri endurhæfingu.
    Einnig var rætt um uppeldisfélag Emils, næstu skref á ferlinum og hvað Emil ætlar að gera að ferlinum loknum.
    32 min
  • Innkastið - Íslandsmeistarar í botnsæti
    Sögulínurnar verða bara stærri og merkilegri í Pepsi Max-deildinni!
    Valsmenn eru í neðsta sæti þegar sjö umferðir eru búnar. ÍBV kom öllum á óvart með því að vinna ÍA og Breiðablik var í miklum ham gegn FH.
    Elvar Geir, Tómas Þór og Gunni Birgis fóru yfir 7. umferð Pepsi Max-deildarinnar í Innkastinu.
    1 hr 11 min
  • Umdeilt val á Kolbeini
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Framundan eru landsleikir á Laugardalsvelli, gegn Albaníu næsta laugardag og svo gegn Tyrklandi þremur dögum síðar.
    Um er að ræða gríðarlega mikilvæga leiki í undankeppni EM.
    Landsliðshópurinn var opinberaður á fréttamannafundi á föstudaginn og helsta umræðuefnið er valið á Kolbeini Sigþórssyni.
    Rætt var við Frey Alexandersson í þættinum.
    15 min
  • Almarr ræðir um vítið sem allir eru að tala um
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Almarr Ormarsson, leikmaður KA, var á línunni og ræddi meðal annars um vítspyrnukeppnina gegn Víkingi Reykjavík í Mjólkurbikarnum.
    Almarr tók spyrnu í keppninni og flestir telja að boltinn hafi verið inni en aðstoðardómarinn dæmdi ekki mark og KA féll úr leik.
    20 min
  • Evrópuboltinn - Jóhann Már um tímabilið hjá Chelsea
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Elvar Geir og Benedikt Bóas stýrðu þættinum að þessu sinni.
    Þeir ræddu um úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hjörvar Hafliðason var í beinni frá Madríd.
    Þá ræddi Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, um sigur liðsins í Evrópudeildinni. Farið var yfir tímabilið hjá Chelsea og framhaldið.
    33 min
  • Heimavöllurinn - Fulltrúi Pepsi Max á HM og unglingar í A-landsliðið
    Það er ýmislegt í umræðunni í nýjasta þætti Heimavallarins en þáttastýrurnar Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir fara yfir helstu atburði síðustu daga með gesti þáttarins, Brynju Dögg Sigurpálsdóttur.
    Þær fara yfir tvær síðustu umferðir Pepsi Max-deildarinnar, spjalla um neðri deildirnar og heyra í Betsy Hasset, leikmanni KR og Nýja Sjálands, sem er á leið á sitt þriðja Heimsmeistaramót.
    1 hr 30 min
  • Inkasso-hornið - Rafn Markús og áhugaverður árangur hans með Njarðvík
    Fótbolti.net fjallar vel um Inkasso-deild karla og í samvinnu við Inkasso bjóðum við upp á hlaðvarpsþætti um deildina í sumar.
    Arnar Daði Arnarsson er umsjónarmaður þáttarins.
    Í þessum þætti ræðir hann við Rafn Markús Vilbergsson þjálfara Njarðvíkur sem hefur náð áhugaverðum árangri með liðið síðan hann tók við því í mikilli fallbaráttu í 2. deildinni sumarið 2016.
    26 min
  • Innkastið - Óður til Sarri og Liverpool sameinað Spurs
    Lokaþáttur Evrópu-Innkastsins þetta tímabilið! Sportbarinn Ölver í Glæsibæ býður þér upp á þáttinn!
    Elvar og Daníel ræddu málin eftir að Chelsea rúllaði yfir Arsenal í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Daníel var sár og svekktur.
    Hitað var upp fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Hvernig yrði sameiginlegt lið Liverpool og Tottenham?
    Stjóramálin, Balotelli og Atalanta koma einnig við sögu í Evrópu-yfirferðinni.
    43 min
  • Innkastið - Hvaða þjálfarasæti eru farin að hitna?
    Það er komið að Innkastinu eftir 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar.
    Elvar Geir, Gunni Birgis, Magnús Már og Tómas Þór ræða málin.
    Meðal efnis: Hvaða þjálfarasæti eru farin að hitna í deildinni? Valsvandræðin, Íslandsmeistaravonir Skagamanna, ummæli Rúnars Kristins um Bjögga Stef, enginn átti að fá stig í Kórnum, Gunni giskar og Inkasso hornið.
    1 hr 9 min
  • Enska hringborðið - Enskir úrslitaleikir framundan
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Kristján Atli Ragnarsson, stuðningsmaður Liverpool og sérfræðingur þáttarins um enska boltann, mætti við enska hringborðið með Elvari og Tómasi.
    Hann gerði upp tímabilið á Englandi, valdi besta leikmanninn og mestu vonbrigðin.
    Rætt var um meistarana í Manchester City, vonbrigðin hjá grönnum þeirra og hitað upp fyrir komandi úrslitaleiki í Evrópukeppnunum.
    Chelsea og Arsenal eigast við í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á mivikudag og næsta laugardag eigast við Liverpool og Tottenham í Meistaradeildinni.
    51 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners