Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Heimavöllurinn - Landsliðið okkar
    Fyrr í haust fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður knattspyrnu kvenna. Þátturinn er nú kominn með nafn og heitir „Heimavöllurinn“. í nýjum þætti fer Hulda Mýrdal, annar þáttastjórnandinn, yfir leikmenn landsliðsins með gestum sínum, þeim Anítu Lísu Svansdóttur þjálfara ÍA og Lilju Dögg Valþórsdóttur leikmanni KR.
    Í þættinum ræða þær meðal annars fyrsta æfingahóp Jón Þórs en æfingar fóru fram í byrjun nóvember. Þær fara einnig yfir bestu leikmenn landsliðsins og spennandi leikmenn sem eru að banka á dyrnar sem og fleiri mikilvæg málefni.
    Þá má benda á að hægt er að fylgja þættinum á Instagram undir nafninu „Heimavöllurinn“. Þar má meðal annars álgast nýjustu fréttir af leikmönnum ásamt því að Heimavöllurinn velur leikmann vikunnar og fær til sín gesti í hraðaspurningar.
    41 min
  • Innkastið - Grasið er ekki grænna á Old Trafford
    Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz snúa aftur með Evrópu-Innkast og nóg var að ræða!
    Í þættinum: Hitað upp fyrir Pub Quiz, áfall fyrir Suður-Amerískan fótbolta, Pochettino og Manchester Untied, Aron frakki á Gylfa, bakverðirnir vopn Liverpool, Özil og Emery, rautt fyrir dýfu, ánægja þegar Ranieri vinnur, Meistaradeildin, stór lið í vandræðum, leikmenn sem við viljum fá aftur.
    Innkastið er í samvinnu við Ölver í Glæsibæ
    59 min
  • Útvarpsþátturinn - Landsliðsárið 2018 gert upp
    Landsliðsárið 2018 var gert upp í útvarpsþættinum á X977. Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir hæðir og of margar lægðir.
    Fer Hamren inn í undankeppni EM í heitu sæti? Hver er landsliðsmaður ársins 2018? Hverjir þurfa að girða sig í brók? Gæti fótboltamaður orðið íþróttamaður ársins? Hvernig er draumariðill okkar fyrir undankeppni EM?
    Þessar spurningar og fleiri koma við sögu í þættinum.
    1 hr 18 min
  • Miðjan: Siggi Hlö og Jói Skúli ræða allt tengt Manchester United
    Það hefur ýmislegt gengið á hjá Manchester United á þessu tímabili en gengi liðsins hefur verið undir væntingum.
    Siggi Hlö og Jóhann Skúli Jónsson kíktu á Magnús Má Einarsson í Miðjuna í dag og ræddu ítarlega um Manchester United.
    Meðal efnis: Gengi Manchester United í vetur, Jose Mourinho og stælarnir í honum, vandræðin í vörninni, frammistaða Paul Pogba, vakning hjá Martial, markaþurrð Lukaku, hreinsun næsta sumar, sigurinn á Juventus, fyrirliðamálin, söngvarnir á Old Trafford og margt fleira.
    44 min
  • Innkast frá Belgíu - Freysi fer yfir strembið landsliðshaust
    Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari notaði 45 mínútur af afmælisdeginum sínum í að fara yfir landslðsmálin með Elvari Geir Magnússyni.
    Það hefur verið í nægu að snúast síðan Freyr og Erik Hamren tóku við. Úrslitin hafa ekki verið að óskum en Freyr segir að Ísland megi ekki hætta að hugsa stórt og markmiðið sé að komast á EM 2020.
    Innkastið að þessu sinni var tekið upp á hóteli landsliðsins í Spa í Belgíu en þar fer Freyr yfir fyrstu mánuði hans og Hamren í starfi.
    Meðal efnis: Ástæða meiðslahrinunnar, nýtt leikkerfi, ungu leikmennirnir, umdeilt val á Kolbeini, áhrif Arons, það jákvæða og neikvæða við landsliðshaustuð, gagnrýni á samfélagsmiðlum, samvinnan við Hamren, áhrif lykilmanna og fleira.
    45 min
  • Guðjón Lýðs heimsótti útvarpsþáttinn
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Guðjón Pétur Lýðsson, nýjasti leikmaður KA, var gestur þáttarins. Tómas Þór Þórðarson ræddi við hann.
    Guðjón yfirgaf Valsmenn eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Hlíðarendaliðinu síðustu tvö ár og bindur hann miklar vonir við skipti sín norður yfir heiðar.
    32 min
  • Landsliðsumræða - Tómas Þór ræddi við Kristján Guðmunds
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Tómas Þór Þórðarson stýrði þættinum og spjallaði við Kristján Guðmundsson um landsleikinn gegn Belgíu í Þjóðadeildinni sem tapaðist 2-0.
    Farið var yfir helstu umræðupunkta leiksins og hringt til Belgíu, þar sem Elvar Geir Magnússon fylgist með undirbúningi íslenska liðsins fyrir vináttulandsleik gegn Katar.
    33 min
  • Innkast frá Belgíu - Á vængbrotið lið Íslands möguleika?
    Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarson eru staddir í Brussel þar sem íslenska landsliðið mætir efsta liði heimslistans, Belgíu, í Þjóðadeildinni.
    Í Innkasti frá Belgíu ræða þeir um líklegt byrjunarlið Íslands, ótrúlega langan meiðslalista, verkefni Hamren, ljótan heimavöll Belgíu, umdeilda Twitter færslu, lukkudýr landsliðsins, ofmetna hluti og fleira.
    46 min
  • Útvarpsþátturinn: Arnar Grétars gestur - Landsliðið og fleira
    Hér má nálgast upptöku af útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 10. nóvember.
    Arnar Grétarsson var gestur í þættinum og var aðalumræðuefnið íslenska landsliðið, hópurinn sem opinberaður var á föstudaginn og komandi leikir gegn Belgíu og Katar.
    Félagaskipti í íslenska boltanum koma einnig við sögu í upptökunni og þá var Arnar spurður að því af hverju hann væri ekki að þjálfa í dag. Þá var rætt um stöðu yfirmanns fótboltamála hjá KSÍ en Arnar hefur ekki áhuga á þeirri stöðu.
    1 hr 24 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners