Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Innkastið - Skautað yfir fótboltahelgina í Evrópu
    Fótboltadeildirnar í Evrópu fóru aftur á fulla ferð um helgina og þeir Elvar og Daníel skoðuðu allt það helsta. Eins og vanalega var enski boltinn í aðahlutverki.
    Meðal efnis: Lætin á Stamford Bridge, tíu í röð hjá Arsenal, frábær tölfræði Lamela, Shaqiri gerði gæfumun í heppnissigri Liverpool, hörmulegur varnarleikur hjá fokdýru Fulham, Gæði í Everton, stærsta áskorun Benítez, staðnaður Donnarumma, kæruleysi hjá Juve, erfitt ár Lopetegui, Meistaradeildin og færeyskur bjór.
    55 min
  • Miðjan - Nýtt þjálfarateymi kvennalandsliðsins
    Miðjan er að þessu sinni send út frá Laugardalsvelli. Jón Þór Hauksson var í dag kynntur sem nýr þjálfari kvennalandsliðsins en hann tekur við af Frey Alexanderssyni.
    Aðstoðarmaður Jóns verður Ian Jeffs, fyrrum leikmaður ÍBV og fyrrum þjálfari kvennaliðs ÍBV.
    Elvar Geir Magnússon fékk sér sæti með Jóni og Ian Jeffs eftir fréttamannafund í dag og við leyfum hlustendum að kynnast þeim tveimur betur í Miðju vikunnar.
    29 min
  • Hringborðsumræða - Stærstu mál íslenska fótboltans
    Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, heimsótti útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977 og var rætt um helstu mál íslenska boltans, innan vallar sem utan.
    Þórir ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór en meðal umræðuefna var: Viðar Örn Kjartansson leggur skóna á hilluna, fjárhagsmál íslenskra félaga, leikmannastefna, óboðlegur Laugardalsvöllur, ÍTF, komandi ársþing, möguleg mótframboð sem Guðni Bergs gæti fengið og lenging á Íslandsmótinu.
    Í klippunni hér að ofan er einnig viðtal við Þóri Guðjónsson, sem í gær gekk í raðir Breiðabliks frá Fjölni.
    1 hr 15 min
  • Jóhann Már um Chelsea - Man Utd: Mourinho fékk ósanngjarnar móttökur
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Jóhann Már Helgason, sérfræðingur um Chelsea, var á línunni eftir dramatískt 2-2 jafntefli Chelsea og Manchester United.
    Mikil læti sköpuðust í uppbótartíma leiksins.
    Í upptökunni er einnig umræða um furðulegan fréttamannafund Bayern München í gær.
    Jóhann ræddi við Elvar Geir og Tómas Þór um titilvonir Chelsea, Sarri og þeirra helstu leikmenn
    23 min
  • Miðjan - Grétar Rafn yfirmaður fótboltamála
    Grétar Rafn Steinsson, fyrrum landsliðsmaður, menntaði sig í fótboltafræðunum eftir að skórnir fóru á hilluna og er í dag yfirmaður fótboltamála hjá Fleetwood í ensku C-deildinni. Félagið á sér það markmið að komast upp í Championship-deildina og fer vel af stað á þessu tímabili.
    Grétar var í stuttri heimsókn hér á landi í vikunni og Fótbolti.net fékk hann í spjall. Hann sagði frá starfi sínu hjá Fleetwood og færði rök fyrir því að staða yfirmanns fótboltamála hjá KSÍ gæti hjálpað íslenskum fótbolta.
    Íslenska landsliðið, framtíðarpælingar og Joey Barton var meðal þess sem rætt var um í Miðjunni að þessu sinni.
    44 min
  • Innkast úr Laugardal - Ekki allir sem stóðust próf kvöldsins
    Komið er glænýtt Innkast frá Laugardalsvelli þar sem rýnt var í leik kvöldsins í Þjóðadeildinni, viðureignina gegn Sviss.
    Elvar Geir Magnússon og Arnar Daði Arnarsson ræddu um leikinn en með þeim var Tómas Þór Þórðarson. Sviss vann 2-1 útisigur.
    Rýnt var í frammistöðu leikmanna og allt sem tengist leiknum. Hvað á að leggja áherslu á í næsta landsleikjaglugga? Mikilvægi boltastráka, enska landsliðið og fleira bar á góma.
    48 min
  • Björn Berg Bryde og fréttir vikunnar í íslenska boltanum
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Elvar Geir og Tómas Þór fóru yfir fréttir vikunnar í íslenska boltanum.
    Björn Berg Bryde var á línunni en þessi hrikalega öflugi miðvörður yfirgaf Grindavík og gekk í raðir bikarmeistara Stjörnunnar.
    Hann er ekki eini lykilmaður Grindavíkur sem hefur horfið á braut. Elvar og Tómas ræddu meðal annars um stöðu Grindavíkur, fáa spennandi bita Inkasso-deildarinnar og þjálfaramál í þættinum í dag.
    36 min
  • Landsliðsumræða - Frakklandsförin og upphitun fyrir Sviss
    Elvar Geir og Tómas Þór ræddu um íslenska landsliðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Farið var yfir jafnteflið gegn heimsmeisturum Frakka og frábæra frammistöðu Íslands. Elvar er nýlentur frá Frakklandi og Tómas lýsti leiknum á Stöð 2 Sport.
    Leikurinn gegn Sviss á mánudag er mikilvægari en margan grunar. Hvernig verður byrjunarlið Íslands?
    53 min
  • Innkast frá Frakklandi - Pogba skaut út á bílastæði
    Komið er nýtt Innkast frá Frakklandi, þar sem Ísland leikur vináttulandsleik gegn heimsmeisturunum annað kvöld.
    Elvar Geir Magnússon, Daníel Rúnarsson og Henry Birgir Gunnarsson hituðu upp fyrir leikinn.
    Rætt var um sýningaræfingu Frakka, líklegt byrjunarlið Íslands, gagnrýni á Þjóðadeildina og fleira.
    32 min
  • Nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar um knattspyrnu kvenna
    Kominn er í loftið nýr hlaðvarpsþáttur þar sem fjallað verður um íslenska knattspyrnu kvenna. Fyrsti þáttur varð aðgengilegur í gær en í honum fara þáttastjórnendurnir, Hulda Mýrdal og Mist Rúnarsdóttir, yfir gang mála í Pepsi-deild kvenna í sumar. Ræða tímabilið og velja bestu leikmenn hvers liðs í deildinni.
    1 hr 24 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners