Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Miðjan - Óli Stefán fer yfir víðan völl
    Miðjan er nýr hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net. Þátturinn fer á fulla ferð í vetur en í hverjum þætti fáum við til okkar góðan gest.
    Við tökum forskot á sæluna í dag með ítarlegu viðtali við Óla Stefán Flóventsson.
    Tilkynnt var á dögunum að Óli Stefán muni hætta sem þjálfari Grindvíkinga eftir tímabilið eftir magnaðan árangur undanfarin þrjú ár.
    1 hr 11 min
  • Innkastið - Hrist upp eftir sjokk í landsleikjahléi
    Á að nýta þá landsleiki sem eftir eru á árinu í að hrista upp í landsliðshópnum?
    Elvar Geir, Magnús Már og Tryggvi Guðmundsson fengu sér sæti eftir 0-3 tapið gegn Belgíu á Laugardalsvelli í kvöld.
    Ísland er að fara að falla úr Þjóðadeildinni og rætt var um hvort ekki ætti að nýta þá leiki sem eftir eru á árinu, tvo Þjóðadeildarleiki og tvo vináttulandsleiki, í að yngja upp í liðinu.
    Einnig var að sjálfsögðu talað um leikinn í kvöld og frammistöðu íslenska liðsins.
    34 min
  • Innkastið - Djúp sár sleikt eftir Sviss og horft til Belgíuleiksins
    Á meðan íslenska landsliðið æfði á Laugardalsvelli í dag spjölluðu Elvar Geir og Magnús Már við Hörð Snævar, ritstjóra 433.is, um landsliðið.
    Rætt var um hamfarirnar í Sviss og komandi landsleikur gegn Belgíu var til skoðunar.
    Meðal efnis: Allt fór úrskeiðis í Sviss, hverjar eru helstu orsakirnar fyrir skellinum, hefði Hamren getað gert betur?, hvaða breytingar verða gerðar á byrjunarliðinu, öflugur mótherji morgundagsins.
    26 min
  • Landsliðsumræða frá Sviss - Elvar og Tómas ræða um leikinn
    Á morgun mætast Sviss og Ísland í Þjóðadeildinni en Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson eru staddir í Sviss.
    Þeir fengu sér sæti á varamannabekk á keppnisvellinum í St. Gallen, þar sem leikurinn fer fram, og spáðu í spilin.
    Stemningin í Sviss, líklegt byrjunarlið Íslands, úrvalslið leikmanna sem ekki eru í hópnum og ýmislegt fleira.
    46 min
  • Innkast frá Austurríki - Jón Daði og Viðar Örn gestir
    Íslenska landsliðið í fótbolta býr sig undir leiki gegn Sviss og Belgíu í Þjóðadeildinni. Liðið er við æfingar í Austurríki, í fögrum fjallabæ sem heitir Schruns, og heldur svo yfir til Sviss á morgun.
    Elvar Geir Magnússon er í Austurríki og fékk sér sæti með Selfyssingunum Jóni Daða Böðvarssyni og Viðari Erni Kjartanssyni.
    Það var nóg að ræða við þá tvo, ekki bara um komandi landsliðsverkefni heldur einnig um félagsliðaferil þeirra. Viðar gekk á dögunum í raðir Rostov í Rússlandi.
    27 min
  • Ástríðan í neðri deildunum - Æsispennandi lokabarátta framundan í 2. deild
    Það eru þrjár umferðir eftir í 2. deildinni og spennan mikil. Enn eru fimm lið sem eiga möguleika á að komast upp.
    Afturelding er í fínum málum eftir sigur á Gróttu í toppslagnum í síðustu umferð en þessi lið verma tvö efstu sætin.
    Ingólfur Sigurðsson mætti í kaffi til Elvars Geirs Magnússonar og rýnt var í gang mála fyrir lokasprettinn. Í lokin var rætt um 3. deildina þar sem einnig er líf og fjör.
    46 min
  • Innkastið - Í misjöfnu skapi inn í landsleikjahlé
    Heil umferð var leikin í enska boltanum um helgina og af því tilefni hlóðu þeir Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon í spánýtt Innkast. Um var að ræða 4. umferðina og vekur athygli að enn eru þrjú lið með fullt hús stiga. Þá var rýnt í dráttinn í Meistaradeildinni.
    Meðal þess sem rætt var í þættinum var: Rashford í gildru, Alisson sprell, frábær byrjun Chelsea, mat á byrjun Arsenal, markaþurrð hjá Ronaldo, draumalið Guardiola, vonbrigði Everton, hörmung West Ham og er Mourinho á réttri leið?
    1 hr 6 min
  • Innkastið - Spennustigið magnast og þjálfarasögum fjölgar
    Elvar Geir, Magnús Már og Gunni Birgis eru á sínum stað í Innkastinu en þar var 19. umferð Pepsi-deildarinnar skoðuð.
    Aðeins þrjár umferðir eru eftir af deildinni og Valsmenn með eins stigs forystu eftir umferðina.
    Meðal efnis: Engar lausnir finnast í Grafarvoginum, hungur Stjörnunnar eykst, áföll dynja á KA, hugur Guðmanns leitar til Reykjavíkur, flautumark Birkis gæti reynst dýrmætt, þunnskipaður dómarahópur, FH-ingar sýndu loks alvöru vilja, handbragð Rúnars Kristins, Blikar bíða eftir bikarúrslitum, Óli Stefán virðist fara annað, Shahab á Pizza 67, Castillion skorar bara fyrir Víking, spjallfélagarnir Kristján Guðmunds og Daníel Geir, auðvelt að dæma á Keflavík, kjaftæði um erfiðan útivöll og Gunni giskar á bikarúrslitaleikinn.
    1 hr 3 min
  • Óskar Hrafn talaði umbúðalaust um íslenska boltann
    Óskar Hrafn Þorvaldsson er þekktur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum en hann mætti í útvarpsþáttinn Fótbolti.net og ræddi um íslenska boltann.
    Óskar er núverandi þjálfari Gróttu og fyrrum íþróttafréttamaður og sérfræðingur Pepsi-markanna, um íslenska fótboltann.
    Ýmislegt mætti betur fara í íslenska boltanum eins og fram kemur í spjalli hans við Elvar Geir og Magnús Má.
    38 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners