Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Leiðin á Laugardalsvöll - Einn leikur í viðbót og töfrar á Króknum
    Í gær voru átta-liða úrslitin í Fótbolti.net bikarnum, þeirri yngstu og sprækustu, spiluð í heild sinni og er núna ljóst hvaða lið spila í undanúrslitum. Nú þarf bara að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll.
    Liðin sem eru komin í undanúrslit:
    Selfoss (2. deild)
    KFA (2. deild)
    Árbær (3. deild)
    Tindastóll (4. deild)
    Það verður dregið í undanúrslitin á morgun en Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar, og Sölvi Haraldsson, fréttamaður Fótbolta.net, mættu í stúdíó í dag og fóru aðeins yfir málin. Arnar Ólafsson, hetja Tindastóls, er einnig á línunni og fer yfir ævintýrið á Sauðárkróki.
    55 min
  • Hugarburðarbolti Upphitun
    Hugarburðarbolti fór aftur á stað í kvöld með upphitun fyrir komandi tímabil. Farið var yfir breytingar á reglum í fantasy leiknum og breytingar á þættinum þar sem nýr sérfræðingur gekk til liðs við félaganna. Sérfræðingarnir fóru yfir nokkur ráð fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Palmer fékk mestu hækkun sem leikmaður hefur fengið á milli tímabila og er fyrsta pikkið hans Vignirs. Vignir hlær að því að Gunni og Dóri séu ekki með neina Arsenal menn í sínum liðum eins og er og þeir reyna að færa rök fyrir afhverju.
    1 hr 29 min
  • Útvarpsþátturinn - Stórtíðindi á færibandi
    Þetta var ótrúleg fréttavika í íslenska fótboltanum. Elvar Geir og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta í útvarpsþættinum Fótbolti.net.
    Risafréttir í þjálfaramálunum á Íslandi, Evrópuleikir, heimkoma Arons Einars, Besta deildin, Lengjudeildin og fleira.
    Þátturinn er auðvitað í verslunarmannahelgargírnum og heyrt er í Tom í Herjólfi, Steinke á Akureyri, Páli Sævari um KR og Kela í París.
    1 hr 34 min
  • Enski boltinn - Man Utd aftur í Meistaradeildina
    Manchester United endaði síðasta tímabil vel og nokkur ánægja er með félagaskiptagluggann til þessa og frekari liðsstyrkur er orðaður við félagið.
    Þeir Aksentije Milisic og Egill Sigfússon eru djúpir í United fræðunum og fóru yfir hópinn, sumarið og spáðu í spilin með Sæbirni Steinke.
    Hvar þarf að styrkja hópinn frekar? Hverjir geta komið inn? Hverjir eru á förum? Ungir leikmenn sem gætu komið inn í hlutverk og fleira skemmtilegt til umræðu. Þá er einnig horft í hin toppliðin og félagaskiptagluggann almennt.
    50 min
  • Túfa tekur aftur til starfa á Hlíðarenda: Þetta gerðist allt mjög hratt
    Það var tilkynnt seint í gærkvöldi að Arnar Grétarsson hefði verið látinn taka pokann sinn hjá Val. Srdjan Tufegdzic, alltaf kallaður Túfa, tekur við og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Haukur Páll Sigurðsson verður aðstoðarmaður Túfa.
    Tíðindin komu nokkrum klukkutímum eftir að Valur hafði tapað gegn St. Mirren frá Skotlandi í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
    Túfa hefur síðustu árin þjálfað Öster og Skövde í B-deild Svíþjóðar. Áður en hann hélt út, þá var hann aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar hjá Val og aðalþjálfari KA og Grindavíkur.
    Túfa ræddi við Fótbolta.net í dag um nýja starfið sitt. „Ég er bara góður og mjög spenntur fyrir verkefninu. Ég er mjög þakklátur fyrir tækifærið. Ég er byrjaður að vinna. Ég mætti á Hlíðarenda snemma í dag og byrjaði vinnuna mína," sagði hann.
    27 min
  • Útvarpsþátturinn - Gluggaslúður, Evrópa og þeir bestu í 2. deild
    Hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. júlí.
    Elvar Geir skoðar helstu fótboltafréttir vikunnar með sérfræðingunum Baldvini Borgarssyni þjálfara Árbæjar og Sölva Haraldsson fréttamanni Fótbolta.net. Sæbjörn Steinke er á línunni frá Akureyri.
    Misjafnt gengi íslensku liðanna í Evrópu, gluggaslúður, Óskarlistinn, Besta deildin, Lengjudeildin og fleira.
    Í seinni hlutanum er rætt um 2. deild karla og hverjir hafa verið bestu leikmenn deildarinnar í sumar? Brynjar Kristmundsson þjálfari Víkings í Ólafsvík kemur í heimsókn.
    1 hr 52 min
  • Enski boltinn - Nýir vindar og erfitt að spá í spilin
    Sumarglugginn er galopinn í enska boltanum og nokkuð áhugavert í gangi þó þetta hafi nú verið frekar rólegt lengi vel.
    Man Utd farið að haga sér eins og fótboltafélag, læti og nýr stjóri hjá Chelsea, Arne Slot tekinn við af kóngnum hjá Liverpool, City ætlar að vinna fimmta árið í röð, Arsenal sækir hinn sjóðheita Calafiori, Tottenham fær tvo bráðefnilega og Aston Villa að gera mjög skemmtilega hluti.
    Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Harald Örn Haraldsson og Sölva Haraldsson í heimsókn í dag til að taka aðeins stöðuna þegar það eru akkúrat þrjár vikur í fyrsta leik í deildinni.
    1 hr 8 min
  • Innkastið - Falldraugurinn færist nær KR og Víkingar eru valtir
    Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar (sem er þó ekki alveg búin vegna kerfisvillunnar).
    Fjör í Kópavoginum þar sem Breiðablik vann fallbaráttulið KR og Víkingur tapaði gegn funheitum KA-mönnum.
    Lengjudeildarhornið en það er líka farið niður í 2. og 3. deild. Svo er það blessuð Sambandsdeildin.
    Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Baldvin Borgars.
    1 hr 7 min
  • Útvarpsþátturinn - Ferðasögur og fótboltafréttir
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 20. júlí.
    Elvar Geir og Tómas Þór skoða helstu fótboltafréttir vikunnar. Íslensku liðin í Evrópu, Besta deildin, félagaskipti og Lengjudeildin.
    Börkur formaður Vals er í beinni frá Albaníu, Tom segir ferðasögu frá Dublin og Jökull þjálfari Stjörnunnar er á línunni.
    Þá er einnig farið yfir erlendar fréttir.
    1 hr 47 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners