Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • EM hringborðið - Systurnar fara yfir 16-liða úrslitin
    Í gær kláruðust 16-liða úrslitin á Evrópumótinu og er það ljóst núna hvernig átta-liða úrslitin verða.
    Það var margt áhugavert sem gerðist í 16-liða úrslitunum: Bellingham var ótrúlega lélegur en var samt hetja leiðinlegra Englendinga, Ronaldo grét þegar mikið var eftir, Þjóðverjar fóru áfram eftir VAR-leikinn mikla, Spánverjar eru ofboðslega skemmtilegir og Frakkar eru þéttir til baka.
    Systurnar Ásta Eir og Kristín Dís Árnadætur komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir 16-liða úrslitin og framhaldið.
    57 min
  • Útvarpsþátturinn - Innkastið í beinni á X977
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 29. júní.
    Innkastið í beinni útsendingu þar sem Elvar Geir, Benedikt Bóas og Baldvin Borgars skoða 12. umferð Bestu deildarinnar, helstu tíðindi og fréttir og Lengjudeildina. Góð umferð að baki fyrir Víking.
    Svo er hitað upp fyrir 16-liða úrslit EM. Örvar Arnarsson fréttaritari Fótbolti.net í Austurríki er á línunni.
    1 hr 51 min
  • EM hringborðið - Riðlunum lokið og útsláttarkeppni framundan
    Riðlakeppninni á Evrópumótinu í Þýskalandi er lokið og framundan eru 16-liða úrslitin.
    Almarr Ormarsson og Adda Baldursdóttir, sem eru bæði að vinna í kringum mótið fyrir RÚV, komu í heimsókn í dag og ræddu um riðlakeppnina og 16-liða úrslitin sem eru framundan.
    Það verður áhugavert að sjá hvernig mótið þróast en 16-liða úrslitin hefjast á laugardaginn.
    1 hr 3 min
  • Innkastið - Blikar brugðust og lið umferða 1-11
    Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn gera upp 11. umferð Bestu deildarinnar.
    Blikum tókst ekki að fara á toppinn, KR mætti með varnarleikinn að vopni og náði í stig gegn Víkingi og markvörður Vestra var í vandræðum gegn Val.
    Í þættinum er opinberað val á liði umferða 1-11, besta leikmanninum, besta þjálfaranum, besta unga leikmanninum og besta dómaranum.
    1 hr
  • Útvarpsþátturinn - Freysi og kraftaverkið í Kortrijk
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 22. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Freyr Alexandersson þjálfari Kortrijk er gestur þáttarins. Víða er komið við í spjalli við Frey en hann náði á magnaðan hátt að halda liðinu uppi í belgísku úrvalsdeildinni þegar nær allir voru búnir að útiloka það. Hvernig fór hann að því?
    Einnig er rætt um landsliðið, Bestu deildina, EM og fleira.
    1 hr 49 min
  • EM hringborðið - Lárus Orri og Óðinn Svan ræða fyrstu vikuna
    Þeir Lárus Orri Sigurðsson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður, og Óðinn Svan Óðinsson, fréttamaður RÚV, eru gestir í fyrsta uppgjörsþættinum á þessu Evrópumóti.
    Sæbjörn Steinke stýrir þættinum og fer yfir fyrstu vikuna á EM með þeim Lárusi og Óðni.
    Þjóðverjar hafa farið vel af stað, eitthvað slen er yfir Englendingum og Belgar í brasi. Farið er yfir það helst á mótinu til þessa og spáð í spilin. Þá tók Lárus Orri góða ræðu um VAR en hann vill fá myndbandstæknina til Íslands sem allra fyrst.
    Þátturinn var tekinn upp fyrir leik Spánar og Ítalíu
    38 min
  • Innkastið - Gregg rekinn og deildin opnast upp á gátt
    Innkastið eftir 10. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er íþróttafréttamaðurinn og markvarðasérfræðingurinn Runólfur Trausti.
    Runólfur er stuðningsmaður KR en í morgun var staðfest að Gregg Ryder hefði verið rekinn. Það er fyrsta mál á dagskrá þáttarins.
    Þá er farið yfir alla leiki umferðarinnar, þar á meðal stórskemmtilegan toppslag Vals og Víkings. Deildin er galopin á toppi og botni.
    1 hr 15 min
  • Útvarpsþátturinn - Bestu og verstu kaupin í Bestu, bikarinn og EM
    Hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. júní.
    Elvar Geir skoðar helstu fótboltafréttir vikunnar með sérfræðingunum Baldvini Borgarssyni þjálfara Árbæjar og Sölva Haraldsson fréttamanni Fótbolta.net.
    Rætt er um bestu og verstu kaupin í Bestu deildinni, besta leikmann Lengjudeildarinnar, leiki vikunnar í bikarnum, landsliðið og fleira.
    Í seinni hlutanum er sjónum síðan beint að EM. Björn Már Ólafsson sérfræðingur í ítalska boltanum rýnir í liðið sem ríkjandi Evrópumeistarar senda á mótið.
    1 hr 40 min
  • Leiðin á Laugardalsvöll - Ástríðan í Fífunni og Bjarni Jó í viðtali
    Önnur útgáfan af Fótbolti.net bikarnum hefst á sjálfan þjóðhátíðardaginn á mánudaginn þegar KFA og ÍH mætast. Svo eru hinir leikirnir spilaðir á miðvikudaginn.
    Í kringum keppnina verða hlaðvarpsþættir hér á síðunni og er þetta fyrsti þátturinn í sumar.
    Arnar Laufdal og Eysteinn Þorri, leikmenn Augnabliks, mættu í spjall um ástríðuna í Fífunni og fóru yfir leikina í 32-liða úrslitunum.
    Þá var Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, á línunni undir lok þáttarins en hann er virkilega spenntur að taka þátt í þessu móti í fyrsta sinn.
    1 hr 2 min
  • Allir riðlarnir á EM skoðaðir með Gunna Birgis og Jóa Ástvalds
    Evrópumótið í fótbolta hefst núna á föstudaginn með opnunarleik Þýskalands og Skotlands. Það er afar spennandi mót framundan og mörg lið sigurstrangleg.
    Guðmundur Aðalsteinn fékk nýverið Gunnar Birgisson og Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, í heimsókn til að hita upp fyrir mótið.
    Farið var í gegnum alla riðlana og liðin skoðuð. Skemmtileg yfirferð svona stuttu fyrir mót.
    1 hr 27 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners