Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Útvarpsþátturinn - Leitin að varnarmönnum og goðsögn kvödd
    Útvarpsþátturinn laugardaginn 16. september.
    Jörundur Áki Sveinsson yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ er gestur. Landsliðsglugginn er gerður upp og rætt um stöðu landsliðsins.
    Arnar Björnsson fréttamaður minnist goðsagnarinnar Bjarna Fel sem lést í vikunni.
    Í seinni hluta þáttarins er svo farið yfir fótboltahelgina, meðal annars hitað upp fyrir bikarúrslitaleik Víkings og KA.
    1 hr 44 min
  • Óskar Hrafn: Sá möguleiki rennur endanlega úr sögunni á sunnudag
    Framundan hjá Breiðabliki er riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Fyrst er þó heimaleikur í Bestu deildinni gegn FH á sunnudag.
    Sá leikur var fyrst settur á morgundaginn (laugardag) en sökum veðurs var hann færður fram á sunnudag.
    Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, ræddi við Sæbjörn Steinke um komandi átök, stöðuna á hópnum, möguleikann á styrkingu og Laugardalsvöll.
    Hann ræðir einnig um ferðalagið til Ísraels, æfingaleiki eftir að Íslandsmótinu lýkur og svo leik Íslands gegn Bosníu sem fram fór á mánudagskvöld. Í þeim leik byrjaði sonur hans, Orri Steinn, sinn fyrsta landsleik.
    17 min
  • Heimavöllurinn: Þrír í röð hjá Val, rán í Krikanum og biluð botnbarátta
    Valskonur eru Íslandsmeistarar þriðja árið í röð og gátu fagnað heima í sófa í gærkvöldi. Það er þó enn að mörgu að keppa í Bestu deildinni. Silfrið er enn í boði og svo á eftir að koma í ljós hvaða lið fellur niður um deild. Þær Elíza Gígja Ómarsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur. Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
    1 hr 6 min
  • Eggert Aron - Ákvörðunin
    Það vakti mikla athygli í lok félagaskiptagluggans að Eggert Aron Guðmundsson skyldi ákveða að vera um kyrrt hjá Stjörnunni þegar honum stóð til boða að semja við félög erlendis.
    Eggert ræddi við Sæbjörn Steinke um ákvörðun sína. Ákvörðunin var erfið en Eggert þurfti að horfa í marga hluti þegar hann var að vega og meta hvað væri best fyrir sig.
    Eggert ræðir í viðtalinu einnig um U19, U21, Jökul Elísabetarson, föst leikatriði Stjörnunnar og ýmislegt fleira.
    27 min
  • Ástríðan 21. umferð - Blóðug barátta á mörgum vígstöðum
    Seint og um síðir þá komu ástríðubræður saman og fóru yfir 21. umferð í 2. og 3. deild. Það er allt á suðupunkti í þremur af fjórum vígstöðum, aðeins fallbaráttan í 2. deild er ráðin.Ástríðan er í samstarfi við Bola léttöl, Waterclouds, Unbroken, Preppbarinn, Jako Sport og ICE nikótínlausa púða.
    1 hr 45 min
  • Heimavöllurinn: Uppgjör á Lengjudeildinni 2023
    Lengjudeildinni lauk með látum síðastliðinn laugardag og komið að því að gera deildina upp hér á Heimavellinum. Gestir þáttarins þekkja deildina inn og út en það eru knattspyrnuþjálfararnir Anton Ingi Rúnarsson og Magnús Örn Helgason. Þátturinn er í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
    1 hr 50 min
  • Innkastið - Sætur sigur sem nærir sálina
    Elvar Geir, Tómas Þór og Guðmundur Aðalsteinn í nýju hljóðveri á Laugardalsvelli strax eftir 1-0 sigurinn gegn Bosníu. Alfreð Finnbogason skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.
    Það er enn möguleiki á að ná öðru sætinu en þá þarf allt að ganga upp. Rýnt er í frammistöðu leikmanna, stöðuna í riðlinum og stemninguna á Laugardalsvelli.
    U21 landsliðið og mögulegar formannsbreytingar hjá KSÍ eru einnig til umræðu.
    1 hr 4 min
  • Ungstirnin - Lærlingur Messi og treystum Heimi
    Nýjasti þátturinn af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttastjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein.
    Í þessum þætti kynna þeir til leiks Benja Cremaschi (2005) en þessi 18 ára miðjumaður hefur verið að gera frábæra hluti með Lionel Messi og félögum í Inter Miami. Fjallað er um Oscar Gloukh (2004) en hann var keyptur í janúar til Salzburg og er haldið að það sé ástæðan af hverju Hákon Haraldsson fór ekki til Slazburg í janúar.
    Dujuan Richards (2005) er einnig kynntur til leiks en þetta er leikmaðurinn sem Heimir Hallgrímsson sat undir gagnrýni fyrir að velja í A-landslið Jamaíka, en þessi leikmaður hefur nú skrifað undir samning hjá Chelsea.
    Í þættinum er farið yfir hvað gerðist í þessum leiðinlega landsleikjaglugga, frammistaða helgarinnar, hvað var að frétta hjá yngri landsliðunum okkar, Stjarnan lang bestir í 2. flokki, Lamine Yamal að gera allt vitlaust með spænska landsliðinu, farið var aðeins yfir NBA og NFL og svo margt margt fleira.
    1 hr 17 min
  • Tiltalið: Danijel Dejan Djuric
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Í þessum þætti fengum við til okkar leikmann Víkings í tiltal, Danijel Dejan Djuric og fórum við yfir ferilinn hjá honum til þessa.
    2 hr 1 min
  • Innkastið - Mikið í húfi fyrir lokaumferð Lengjudeildarinnar
    Lengjudeildin undir smásjánni í þessum Innkastþætti. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds skoða 21. umferðina. Það er brjáluð spenna fyrir lokaumferðina sem verður á laugardaginn.
    ÍA er með öll spil hendi á fyrir lokumferðina, úrslitakeppnin er að taka á sig mynd og mörg lið eru í fallhættu fyrir lokaumferðina.
    Dalvík/Reynir er til umræðu en liðið er búið að tryggja sér sigur í 2. deildinni og leikur í Lengjudeildinni á næsta ári. Verður það ÍR eða KFA sem fylgir?
    1 hr 9 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners