Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Heimavöllurinn: Sigurreifar í Meistaradeild á meðan Selfyssingum svíður
    Það er hart tekist á undir lok íslenska fótboltasumarsins. Í kvöld varð endanlega ljóst að Selfoss kveður Bestu deildina, Valur og Stjarnan fara í ferðalag í góðum gír og Þróttarar hafa fundið markaskónna á ný. Enn er svo barist um að fylgja Víkingum upp í efstu deild. Af ýmsu er að taka og þau Elísa Gígja Ómarsdóttir og Sverrir Örn Einarsson mæta á Heimavöllinn til að fara yfir það helsta. Í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
    58 min
  • Enski boltinn - Úr svarthvítu í litað sjónvarp með 'Big Ange'
    Söngvarinn Robbie Williams elskar Ange Postecoglou það mikið að hann gerði textabút honum til heiðurs.
    Þessi nýi stjóri Tottenham er að vinna hug og hjörtu stuðningsmanna félagsins eftir flotta byrjun á tímabilinu.
    Í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag voru Hjammi og Jóhann Alfreð, skemmtikraftar og stuðningsmenn Tottenham, í heimsókn þar sem þeir ræddu um byrjunina flottu á tímabilinu og Ange-ball.
    Einnig var rætt um stórleik Arsenal og Manchester United, Jadon Sancho, mögulegar stjórabreytingar og margt fleira í þætti dagsins.
    46 min
  • Ástríðan 20. umferð - Hvenær skýrast línurnar?
    20 umferðum er lokið í deildunum tveimur og enn skýrast línurnar ekki neitt. Toppbaráttan galopin í 2. deild og botnbaráttan stórbrotin í 3. deild. Sverrir og Gylfi fóru saman yfir málin.Ástríðan er í boði JakoSport, Bola Léttöl, Preppbarsins, Waterclouds, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.
    1 hr 26 min
  • Tiltalið: Elín Metta Jensen
    Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Þróttar og læknaneminn Elín Metta Jensen. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
    2 hr 19 min
  • Ungstirnin - Gjöfin frá Nígeríu og ítalskur Messi
    Þáttur númer 43 af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttarstjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein.
    Í þessum þætti kynna þeir til leiks Bradley Barcola (2002) sem var nýlega keyptur frá Lyon til PSG á 45 milljónir evra. Einnig er kynntur til leiks Gift Orban (2002) en hann leikur fyrir Gent í Belgíu - sem Blikar munu mæta í Sambandsdeildinni - en Orban er búinn að vera gjörsamlega á eldi í Belgíu. Simone Pafundi (2006) er einnig kynntur til leiks en hann er yngsti A-landsliðsmaður Ítala í yfir 100 ár og leikur hann fyrir Udinese og minnir mikið á Lionel Messi oft á tíðum.
    Í þættinum er farið yfir uppáhalds félagsskipti Ungstirna sem áttu sér stað í sumar, 15 uppáhalds Ungstirni utan efstu 5 deilda Evrópu, Skandinavíuhornið góða, Kristian Hlynsson að gera góða hluti með Ajax og svo margt margt fleira.
    1 hr 30 min
  • Innkastið - Vonir KA fuku, ÍA á toppnum og byrjunarlið Íslands
    22. umferð Bestu deildarinnar var leikin í dag og það er komið að tvískiptingunni. KA situr eftir með sárt ennið.
    Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars gera upp umferðina. Einnig er fjallað um Lengjudeildina og spennuna sem þar ríkir. Er í lagi að selja heimaleikinn sinn? Landsliðsverkefnið sem er framundan er skoðað. Sæbjörn setur saman líklegt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Lúxemborg á föstudag.
    1 hr 9 min
  • Útvarpsþátturinn - Risaverkefni Blika og enskt gluggauppgjör
    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 2. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
    Í fyrri hlutanum: Íslenski boltinn. Flosi Eiríksson formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks mætir og ræðir um afrek Kópavogsliðsins, verkefnin framundan og það sem er í gangi hjá félaginu. Einnig er rætt um Bestu deildina.
    Í seinni hlutanum: Kristján Atli Ragnarsson gerir upp sumargluggann í enska boltanum. Glugginn er lokað og enn og aftur var eyðslumet slegið.
    1 hr 45 min
  • Innkastið - Áþreifanleg spenna fyrir lokasprett Lengjudeildarinnar
    Það eru þrjár umferðir eftir af Lengjudeildinni, áður en kemur að úrslitakeppninni. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds rýna í stöðu mála í þessum sérstaka aukaþætti af Innkastinu.
    - ÍA andar í hálsmál Aftureldingar í baráttunni um toppsætið, eina beina sætið upp í Bestu deildina.
    - Hvaða lið fara í úrslitakeppnina og verða skrefi frá 50 milljóna króna leiknum á Laugardalsvelli?
    - Hvaða lið fellur með Ægismönnum?
    1 hr 23 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners