Mannlegi þátturinn

Frásagnarlist, húslestur Braga og Bergþóru og Stefán hreindýrabóndi


Listen Later

Að kunna þá list að segja skemmtilega frá, svo skemmtilega að fólk færi sig fram á sætisbrúnina og hangi á hverju orði sem fellur af vörum þínum, er öfundsverður eiginleiki sem getur gagnast hvar sem er. Tæknin við að segja sögur er námskeið á vegum Endurmenntunar HÍ þar sem fjallað verður meðal annars um frásagnarlist frá mörgum ólíkum hliðum. Hvernig hún nýtist bæði við formlegar og óformlegar aðstæður, á opinberum vettvangi og í góðum félagskap vina og fjölskyldu. Við fengum Andrés Jónsson almannatengil, sem er annar þeirra sem stjórna námskeiðinu, í þáttinn til að segja okkur frá því hvernig á að segja frá..
Borgarbókasafnið í Menningarhúsinu Gerðuberg býður uppá húslestra í vetur og á morgun verða rithöfundarnir Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson með lesturinn. Þau ætla að lesa upp texta sem eru í uppáhaldi hjá þeim og textarnir koma víða að og í þeim er að finna töfra og dulúð. Bergþóra og Bragi Páll eru bæði rithöfundar og eins og segir í kynningartexta: hún er húsmóðir og hann sjómaður. Bergþóra gaf út sína fyrstu skáldsögu í fyrra, Svínshöfuð, sem sló rækilega í gegn og hlaut einróma lof gagnrýnenda. Bragi Páll gaf einnig út sína fyrstu skáldsögu í fyrra, Austur, sem hefur verið lýst sem harmrænni hrakningasögu, sem þó er drepfyndin. Þau komu í þáttinn í dag.
Hreindýrin eru hans eins og sauðféð er bóndans á Íslandi er sagt um Stefán Hrafn Magnússon hreindýrabónda á Grænlandi. Stefán kom í heimsókn á Strandir fyrir stuttu og Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, ræddi við hann um ástæður þess að hann fór í upphafi til Grænlands og settist þar að.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners