Friðhelgispjallið

Friðhelgispjallið

By Aðalsteinn HannessonTV & FilmTV ReviewsAfter Shows
Download on the App Store

Friðhelgispjallið episodes

  • S45 E13: Úps allir lögfræðingar

    Aðalsteinn og Sofia ræða lokaþátt 45. seríu af Survivor. 5 frækin eru eftir í leiknum og stórundarleg útkoma í final 5 þinginu setur strik í reikninginn. Við ræðum eldsmiðjukeppni, æsispennandi final tribal og hvernig allir í seríunni eru einhvernmeginn lögfræðingar!?

    1 hr 27 min
  • S45 E12: Kapteinn Ofurbrók

    Aðalsteinn og Sofia ræða 12. þátt 45. seríu af Survivor. Spennan magnast í þessum næst-seinasta þætti seríunnar og það er af nægu að taka. Rómantískt deit er truflað af þriðja hjólinu og á sama tíma er annar keppandi á brókinni einum klæða.

    1 hr
  • S45 E11: Aust-fanginn

    Aðalsteinn fær Sofiu í heimsókn til að ræða um 11. þátt 45. seríu af Survivor. Ástareldar tveggja keppanda og "óskarsverðlaunaframmistaða" annars er meðal umræðuefna í þessum þætti.

    53 min
  • S45 E10: Griðastaðagellur og gauragangur

    Aðalsteinn fær Söndru í heimsókn til að ræða tíunda þátt 45. seríu af Survivor. Jeff sendir fólk á griðastaðinn með bréf frá ástvinum í hönd og sólstrandargæjarnir halda uppi strákastemningu. Í lok þáttar tölum við aðeins um þá fjölmörgu ,,first boots'' sem gætu leynt á sér og eiga skilið annað tækifæri.

    1 hr 6 min
  • S45 E09: Kjúklingur deilt með þremur

    Aðalsteinn fær Söndru í heimsókn og saman ræða þau níunda þátt 45. seríu af Survivor. Jeff rænir þremur þátttakendum atkvæðunum sínum og verðlaunar þrjá aðra með 990 kr kjúkling úr Krónunni.

    44 min
  • S45 E08: Uppboð og augnaráð

    Aðalsteinn og Sofia taka seinkomna umræðu um áttunda þáttinn í 45. seríu af Survivor. Það er af mörgu að taka þar sem við sáum Survivor uppboðið í fyrsta skipti í langan tíma og fengum loksins (að mestu) venjuluegt samrunaþing.

    1 hr 2 min
  • S45 E07: Skipt í miðju

    Aðalsteinn og Gummi ræða sjöunda þáttinn af 45. seríu af Survivor. Jeff bauð upp á tveir fyrir einn tilboð á þingum og við sjáum áður hljóðláta keppendur vakna til lífsins. Gummi kemur svo með sitt spoiler-free álit á breska Survivor.

    1 hr 6 min
  • S45 E05: Pokémon Go to tribal
    Aðalsteinn og Sofia taka seinkomna en kærkomna umræðu um fimmta þáttinn í 45. seríu af Survivor. Umræðuefni þáttarins eru ótuggðir ormar, pokémon piltar og stolnar samlokur.
    34 min

About Friðhelgispjallið

From the publisher's feed

Íslenskt Survivor hlaðvarp. Vikulega fær Aðalsteinn til sín góða gesti og ræðir nýjasta þáttinn af raunveruleikaþáttunum Survivor á léttum nótum.