
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum þætti fær Aðalsteinn hana Herdísi í þáttinn í gegnum töframátt internetsins til að ræða nýjasta útspil Jeff. Keppendur gæða sér á eintómum pylsum á félagsstundinni, og við veltum fyrir okkur framtíðarmöguleika keppenda nú þegar samruninn er á næsta leiti.
Í þessum þætti ræða Aðalsteinn og Sofia 4. þátt 47. seríu af Survivor. Skiptar skoðanir eru á uppátækjum Rome og sömuleiðis á hinni sígíldu Survivor spurningu, "á að slátra hænsnunum eða nýta sér eggin?" Við stiklum ekki á stóru málunum í friðhelgisspjallinu, og sérstaklega ekki eftir svona svakalegan þátt af Survivor.
Í þessum þætti fær Aðalsteinn hana Hildi Maríu í heimsókn og þau ræða 3. þátt 47. seríu af Survivor. Allir ættbálkarnir senda einn fulltrúa í leiðangur þar sem þau eiga á hættu að missa atkvæðin sín. Keppendur stinga sér til sunds í friðhelgiskeppninni og Teeny og Kishan standa á krossgötum í ættbálknum sínum.
Aðalsteinn og Gummi ræða eftirminnilegan 2. þátt 47. seríu af Survivor. Rome heldur áfram að útskúfa sig, Sam tekur að sér barnapíustörf og Gabe sér sér leik á borði eftir ágreining í ættbálknum. Allt þetta og fleira verður rætt út í þaula.
Aðalsteinn, Sofia og Gummi fara yfir fyrsta þáttinn af nýjustu survivor seríunni. Við fylgjumst með keppendunum eiga fyrstu kynni við hvort annað og mynda tengsl. Ótrúleg atburðarrás hjá einum keppanda kemur honum í klandra, en var rétta manneskjan kosin út í lokin? Við reynum eftir fremsta megni að svara þessari spurningu ásamt því að slá á létta strenga í þessum eftirminnilega frumsýningaþætti seríu 47.
Aðalsteinn, Sofia og Gummi fara yfir keppendur í 47. seríu af Survivor. Við vegum og metum ágæti hvers og eins, og komum með okkar spár fyrir seríuna. Við munum svo örruglega hafa kolrangt fyrir okkur þegar upp er staðið.
Í þessum þætti ræða Aðalsteinn, Sofia og Gummi rosalegan lokaþátt 46. seríu af Survivor. Umdeilt atvik í byrjun þáttarins er krufið til mergjar og hörkubarátta á lokaþinginu skiptir kviðdómnum og þáttastjórnendum í tvennt! Farið er yfir seríuna í heild sinni, og auðvitað nöldrað smá í endan.
Aðalsteinn fær Gumma í heimsókn og þeir ræða rosalegan 12. þátt 46. seríu af Survivor. Sagan virðist endurtaka sig endalaust en við erum samt með hökuna á gólfinu eftir hvern einasta þátt. Tveir bandamenn snúast gegn hvorum öðrum en aðeins einn getur staðið uppi sem sigurvegari! Fumble ársins og margt annað rætt í þessum þetti af Friðhelgispjallinu.
Eftir fjóra magnaða þætti í röð kom einn hljóðlátur en fyndinn þáttur sem leggur á borð fyrir svakalegan endasprett. Aðalsteinn og Sofia ræða þennan óvænta þátt, og fara yfir nokkur stór mistök leikmanna í þessari umferð.
Aðalsteinn og Sofia ræða 10. þátt af 46. seríu af Survivor. Hreint út samt ótrúleg útkoma úr verðlaunakeppni snemma í þættinum hrindir af stað brjálæðiskasti og keppendur falla fyrir sömu lygi í þriðja skiptið í röð á tribal. Vertu með álpappírshattinn á hasunum þegar þú hlustar á þennan óborganlega þátt.
From the publisher's feed
Íslenskt Survivor hlaðvarp. Vikulega fær Aðalsteinn til sín góða gesti og ræðir nýjasta þáttinn af raunveruleikaþáttunum Survivor á léttum nótum.