
Sign up to save your podcasts
Or


Í þessum þætti ræða Aðalsteinn og Sofia 12. þátt 48. seríu af survivor og nú loks er kominn hiti í leikinn. Úrslitin eru á næsta leiti og allt í einu er leiðin greið fyrir, tjahh, allflesta leikmenn að hreppa hnossið í lokin. Ekki missa af þessum ástríka þætti af Friðhelgispjallinu
*þið vonandi afsakið að hljóðið er smá asnalegt, fattaðist ekki fyrr en eftir á :'(
Í þessum þætti ræða Aðalsteinn, Sofia og Gummi 11. þátt af 48. seríu af Survivor. Eftir nokkrar frústrerandi Survivor þætti upp á siðkastið var eftirvæntingin fyrir þessum þætti mikil, en allt kom fyrir ekki. Við ræddum gang seríunnar í grófum dráttum en vorum mögulega heldur neikvæð hehe.
Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflur, Kjúklingur og Vöfflar,
Í þessum tvöfalda post-páskafrí þætti af friðhelgispjallinu ræða Aðalsteinn og Sofia svaðalega þáttatvennu; þátt 8 og 9 af seríu 48 af Survivor. Meirihlutabandalag massana heldur áfram að vera með minnimáttarkennd og mitch pitch-ar eitthvað sem gæti breytt gangi seríunnar, en mun rétta fólkið bíta á öngulinn?
Í þessum þætti af friðhelgisspjallinu ræða Aðalsteinn og Sofia 7. þátt af seríu 48... sem var.... þáttur.... Það verður stiklað á stóru í strategíunni og tvískipt þing hendur tveimur leikmönnum úr leiknum. Ekki missa af þessum þætti af Friðhelgispjallinu.
Í þessum "ekki merge" merge þætti ræða þau Aðalsteinn, Sofia og Gummi allt sem gerðist í 6. þætti af 48. seríu af Survivor. Jeff fer í einhverja maníu á tribal og allir keppendurnir nema einn eru neydd til að synda í gegnum drullupoll. Ekki missa af þessum drullugóða þætti af Friðhelgispjallinu.
Í þessum þætti ræða Aðalsteinn, Sofia og Gummi tilfinningaþrunginn 5. þátt 48. seríu af survivor. Jeff var í essinu sínu, og felldi meira að segja tár yfir friðhelgiskeppninni, en hvaða áhrif hefur þessi atburður á keppendurna í leiknum? og hvað er málið með þetta blindside i lok þáttar?!?
Aðalsteinn og Sofia ræða svaðalegan fjórða þátt 48. seríu af Survivor. Jeff heldur keppendunum á tánum og skiptir upp ættbálkunum, sumum til ánægju en öðrum til ama. Við ræðum fyrstu viðbrögð við þessum nýju breytingum og þeim áhugaverðu stöðum sem nýju ættbálkurinn býr til. Ekki missa af þessum swap-alega þætti af Friðhelgispjallinu!
Aðalsteinn og Sofia taka tvíhleypu að þessu sinni og ræða bæði 2. og 3. þátt af seríu 48 af Survivor í þessum smekkfulla þætti.
Vandræðagangur Vula heldur áfram að setja svip sinn á seríuna, og við ræðum meðal annars umdeilt þing og atkvæðareglur Survivor.
Ekki missa af þessum frábæra þætti af Friðhelgispjallinu.
Ef þið viljið spreyta ykkur á púslinu úr þætti 2 getið þið gert það hér: https://maximama.github.io/PuzzleS48E2/puzzleS48E2.html
Í þessum hressa og skemmtilega frumsýningarþætti fyrir seríu 48 af Survivor ræða þau Aðalsteinn, Sofia og Gummi allt það sem gerðist í eftirminnilegum þætti survivor. Einnig gefum við út okkar opinberu "meðmæli" þegar kemur að atkvæðagreiðslunni fyrir seríu 50: In the hands of the fans!
From the publisher's feed
Íslenskt Survivor hlaðvarp. Vikulega fær Aðalsteinn til sín góða gesti og ræðir nýjasta þáttinn af raunveruleikaþáttunum Survivor á léttum nótum.