Bergþór Grétar Böðvarsson er Reykvíkingur ársins 2018 en hann er þjálfari knattspyrnuliðsins FC Sækó. Verkefnið FC Sækó eða „geðveikur fótbolti“ hófst í Nóvember 2011 sem samstarfsverkefni Hlutverkaseturs, Velferðarsviðs Reykjavíkur og geðsviðs Landspítalans. Böðvar starfar hjá batamiðstöðinni hjá Landspítalanum við Klepp og þekkir geðfötlun vel af eigin raun og hefur náð miklum bata. Bergþór kom í þáttinn í dag.
Sirkus Íslands leggur nú lokahönd á undirbúning fyrir sýningar sumarsins, en sirkusinn fagnar tíu ára sirkusstarfsemi á Íslandi með tveimur sýningum, fjölskyldusýningu og nýjustu útgáfu fullorðinssýningarinnar Skinnsemi. Þetta er fjórða sumarið sem Sirkus Íslands fer í ferðalag með tjaldið sitt. Jón Gunnar Sigurðsson og Bryndís Torfadóttir komu í þáttinn og sögðu frá sumrinu, en Jón ferðaðist um Nýja-Sjáland með þarlendum sirkus og Bryndís er mastersnemi í lögfræði,en hún ætlar að sækja sirkusnám í Kaupmannahöfn næsta árið.
Við heyrðum frásögn úr safni Útvarpsins, úr þætti sem bar heitið: Konungurinn hraut eins og gamall Ölvisingur, í umsjón Þorsteins Mattíassonar frá árinu 1980. Hann skráði minningar Lúvísu Magneu Ólafsdóttur en Lúvísa var prestsdóttur fædd 1891 að Sandfelli í Öræfum, hún rifjar upp æskuárin að Sandfelli og einnig frá Arnarbælií Ölfusi, þar sem hún bjó mestan hluta ævi sinnar. Hér kennir ýmissa grasa úr viðburðaríkri ævi. Við heyrum af Kossabindindisfélagi sem móðir hennar stofnaði, koníakstunnu sem rak á land og öll sveitin gerði sér glaðan,börn og fullorðnir og síðast en ekki síst konungsheimsókninni að Arnarbæli þegar Friðrik áttundi og krónprinsinn Kristján tíundi gistu á heimilinu.