Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn var í síðustu viku. Að búa við góða andlega og líkamlega heilsu er líklega stærsti þátturinn í því að lifa góðu lífi. Við upplifum öll góða og slæma daga og glíman við þessar sveiflur og leitin að því að lifa í jafnvægi og sátt eru hluti af lífsáskoruninni. En geðheilsa er ekki lengur góð þegar hún skerðir lífsgæði og getu fólks til að taka þátt í samfélaginu. Útmeð'a er forvarnarátak Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins sem stendur yfir þessa dagana. Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar og Hrannar Jónsson, formaður stjórnar Geðhjálpar, komu í þáttinn.
“Fyrst og fremst þurfa innviðirnir að vera lagi “segir Þorgeir Pálsson nýráðinn sveitarstjóri Strandabyggðar. Kristín Einarsdóttir, okkar kona á Ströndum, heimsótti Þorgeir og forvitnaðist meðal annars um framtíðarsýn hans fyrir byggðina.
Baujan er leið til að byggja sig upp eftir áfall og álag eða til að auðvelda okkur að komast í gegnum erfiða tíma. Til að auka orku, styrk og byggja sig upp eftir kulnun eða til að varast hana. Guðbjörg Thoroddsen höfundur Baujunnar komur í þáttinn í dag, en hún hefur kennt aðferðina í 20 ár og er enn að.
Umsjón Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson