Mannlegi þátturinn

Geðlestin, Dagur heyrnar og Davíð Ólafsson


Listen Later

Geðlestin er geðfræðsla fyrir nemendur í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla sem byggir á þeirri staðreynd, eins og segir á gedlestin.is, að við búum öll við geð rétt eins og við erum með hjarta. Á lífsleiðinni er mjög líklegt að við lendum í mótvindi og þurfum jafnvel að leita okkur aðstoðar. Öflug geðrækt frá unga aldri út lífið er besta ráðið til að takast á við þær áskoranir sem lífið færir okkur. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, kom í þáttinn í dag og sagði betur frá Geðlestinni, en hún er einmitt samvinnuverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða Krossins, 1717. Grímur fór einnig yfir sláandi tölur, til dæmis hvað varðar líðan ungs fólks og sjálfsvíg, þar sem þróunin er því miður ekki að fara í rétta átt.
Á fimmtudaginn, 3.mars, er alþjóðlegur Dagur heyrnar. Kjörorð dagsins í ár er: Hlustum varlega, heyrum alla ævina! Sjónum er beint að þeirri hættu sem rúmur milljarður fólks um allan heim, ekki síst ungmenni, er í varðandi langvinna hlustun í miklum hávaða. Sem sagt með tónlistarspilurum, á tónleikum, íþróttaviðburðum, á líkamsræktarstöðvum o.s.frv. Með skilaboðum Dags heyrnar 2022 er lögð áherslu á að fyrirbyggja heyrnartap af völdum hávaða með svokallaðri öruggri hlustun. Kristbjörg Gunnarsdóttir, heyrnarfræðingur, kom í þáttinn og sagði frá því hvað er örugg hlustun og hvernig við getum varist heyrnarskaða.
Davíð Ólafsson sagnfræðingur hefur varið miklum tíma við rannsóknir á efni Handritadeildar Landsbókasafns. Mikið af handritum þar eru skráð af Sighvati Borgfirðingi sem dvaldi nokkur ár á bænum Klúku í Bjarnarfirði. Kristín okkar Einarsdóttir hitti Davíð og ræddi við hann um Sighvat Borgfirðing og almennt um fjársjóði handritadeildarinnar.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners