Mannlegi þátturinn

Gerður, Sigurður og Stefán rifja upp sögu Ríkisútvarpsins


Listen Later

Við fögnuðum afmæli Ríkisútvarpsins í dag. Ríkisútvarpið hóf formlega útsendingar 21. desember 1930, en fyrir þann tíma höfðu verið starfræktar einkareknar útvarpsstöðvar í Reykjavík og á Akureyri, sú fyrsta var H.f. Útvarp. Fyrstu ár útvarpsins var bara sent út á einni rás og í nokkra klukkutíma á kvöldi. Það hefur ýmislegt verið rifjað upp hér á Rás 1 í morgun og við héldum því áfram í Mannlega þættinum og fengum til okkar góða gestir til að rifja upp gamla tíma.
Gerður G Bjarklind þulur kom fyrst til okkar. Hún sá um hinn vinsæla þátt lög unga fólksins frá árinu 1963-1971 og man hvernig hlutirnir gengu fyrir sig á þeim tíma og síðar varð hún ein af ástkærum þulum þjóðarinnar og sá svo um hinn feykivinsæla þátt Óskastundina sem er enn á dagskrá Rásar 1, en nú í umsjón Svanhildar Jakobs.
Saga Ríkisútvarpsins er líka saga tækni og tækja. Sigurður Harðarson rafeindavirki fór með okkur í gegnum sögu ýmissa tækja og tæknibúnaðar tengdum sögu Ríkisútvarpsins, eins og til dæmis útvarpsviðtækjum sem voru framleidd á Íslandi sérstaklega til að taka á móti útsendingu Ríkisútvarpsins og það sem meira er þá voru sérstök tæki fyrir landsfjórðungana. Sigurður er í forsvari fyrir Hollvinafélag um sögu útvarpstækni á Íslandi, sem vinnur að því að vernda útsendingarbúnað og ýmis tæki frá upphafstíma útvarpsins.
Stefán Jón Hafstein byrjaði ungur sem fréttaritari í Lundúnum áður en hann steig fyrst fæti inní stofnunina sem þá var staðsett á Skúlagötunni. Hann sá um að leika tónlist fyrir hlustendur á fyrstu næturvaktinni í íslensku útvarpi og setti mark sitt á morgunþáttinn Gull í mund, hann var með nýjar hugmyndir sem voru ekki alltaf vel þegnar af yfirmönnunum. Stefán kom í þáttinn í dag.
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

458 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

88 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

9 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

9 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

11 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

22 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

5 Listeners