Gervigreind

Gervigreind

By Javelin AITechnology
Download on the App Store

All Gervigreind episodes

  • #9 - Gagnaver í geimnum

    Er „skýið“ að fara út í geim?

    Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í eina villtustu hugmynd tæknigeirans í dag: Að flytja gagnaverin út fyrir gufuhvolfið.

    Við ræðum verkefni á borð við Project Suncatcher og Project Natick og veltum fyrir okkur hvort þetta sé raunhæft eða bara sci-fi draumar ríkustu manna heims.

    Í þættinum er farið yfir:

    • Gagnaver í geimnum: Hvers vegna vilja Google og fleiri senda tölvur út í geim? Við skoðum kosti sólarorku á sporbaug og lækkandi kostnað við geimskot þökk sé SpaceX.

    • Hvernig kælir maður tölvu í lofttæmi? Það hljómar eins og geimurinn sé kaldur, en það er flókið að losna við hita þar. Við ræðum geislun, vatnskælingu og risastórar snúrur.

    • Geimsópar og árekstrar: Hvað gerist ef gagnaverið klessir á gervihnött? Við útskýrum Kessler syndrome og hættuna á keðjuverkun árekstra í geimnum.

    • Project Natick: Þegar Microsoft sökkti gagnaveri ofan í sjó. Hverjir voru kostirnir við að geyma gögnin á sjávarbotni og er ekkert ryk í sjónum?

    • Ísland og orkumálin: Gætum við nýtt varmann frá gagnaverum betur, t.d. í hitaveituna, eða erum við að verða uppiskroppa með rafmagn?

    Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.

    Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:👉 ⁠javelin.is/courses⁠

    Tæknimaður: Vagn Margeir SmeltKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

    28 min
  • #8 - Gervigreind sem boðar heimsendi eða útópíu

    Er gervigreind að fara að taka yfir heiminn?

    Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í stærstu spurninguna af öllum: Hvert er gervigreindin að stefna? Erum við á leiðinni í útópíu eða dystópíu – eða verður þetta kannski bara „fínt“?

    Við ræðum muninn á AGI (Artificial General Intelligence) og ASI (Artificial Super Intelligence) og skoðum þrjár ólíkar sviðsmyndir sem sérfræðingar heimsins eru ósammála um. Allt frá útópískri framtíð þar sem öll vandamál eru leyst, yfir í dökkar spár um endalok mannkyns.

    Í þættinum er farið yfir:

    • AGI og ASI: Hvenær verður tölvan klárari en manneskjan og hvenær verður hún klárari en allt mannkynið til samans?
    • Bjartsýnisspáin: Getur gervigreind læknað alla sjúkdóma, leyst loftslagsvandann og skapað allsnægtir?
    • „Doomer“ sviðsmyndin: Hvað gerist ef við missum stjórn eða ef tæknin lendir í röngum höndum?
    • Eru störfin okkar örugg? Við ræðum hugtakið „copium“ og hvort við séum að blekkja okkur sjálf með því að halda að gervigreindin taki ekki vinnuna okkar.
    • Kapphlaupið: Af hverju tæknirisarnir keppast við að vera fyrstir og pæla ekkert í kostnaðinum.

    Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.

    Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:

    👉 javelin.is/courses

    Tæknimaður: Vagn Margeir Smelt

    Klipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

    1 hr 11 min
  • #7 - Eru listamenn búnir að vera? Myndsköpun með gervigreind

    Bylting í myndsköpun og Nano Banana

    Myndir segja meira en þúsund orð, en hvað gerist þegar tölvur búa þær til?Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í heim myndsköpunar með gervigreind. Þeir ræða ótrúlega þróun síðustu ára, allt frá fyrstu tilraunum DALL-E til nýjustu tækni Google sem ber hið stórfurðulega nafn „Nano Banana“.Það er áhugavert að sjá hvernig bilið á milli ímyndunarafls og veruleika er að minnka.

    Í þættinum er farið yfir:

    • Hvaðan nafnið Nano Banana kemur og hvers vegna líkanið er svona öflugt.

    • Hvernig þekkum við gervigreindarmyndir og myndbönd í dag (og hvers vegna það er að verða ómögulegt).

    • SynthID tæknina frá Google sem felur ósýnileg vatnsmerki í pixlum.

    • Djúpfalsanir (Deepfakes), siðferðislegar spurningar og áhrif á lýðræðið.

    • Áhrif gervigreindar á listamenn: Er verðmæti listarinnar að minnka eða tækifærin að aukast?.

    • Hvernig nýjustu módelin skilja samhengi, texta og breytingar betur en nokkru sinni fyrr.

    Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.

    Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:👉⁠ javelin.is/courses⁠

    Tæknimaður: Vagn Margeir SmeltKlipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

    1 hr 33 min
  • #6 - Google eru bestir í Gervigreind

    Google er leiðandi í AI-kapphlaupinu.

    Í þessum þætti kafa Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson ofan í það sem gerðist í fyrradag þegar Google gaf út Gemini 3 og kom sér vel fyrir á toppinum þegar kemur að bestu gervigreindarlíkönunum.

    Það er fátt jafn skemmtilegt og þegar tæknirisi tjaldar öllu til - og það var einmitt að gerast.

    Í þættinum er farið yfir:

    • Gemini 3 og hvers vegna þetta er risastórt stökk

    • Hvernig DeepMind eiga heiðurinn að mörgum stærstu uppgötvunum síðustu áratuga

    • Hvers vegna Google er allt í einu aftur á toppnum í gervigreind

    • Forskot Google á öllum sviðum gervigreindarinnar

    • Hvað breyttist fyrir forritara, fyrirtæki og samkeppnisumhverfið í gervigreind

    Að venju gefum við efnið út ókeypis og án auglýsinga. Ef þú ert að fá virði úr þættinum, sendu hann áfram á einhvern sem myndi líka hafa gaman af. Það hjálpar okkur gríðarlega.

    Ef þig langar að læra að nota þessi verkfæri, kíktu þá á námskeiðin okkar:

    👉 javelin.is/courses


    Tæknimaður: Vagn Margeir Smelt

    Klipping og eftirvinnsla: Sindri Þór Grétarsson

    1 hr 29 min
  • #5 - Nýjustu fréttir: AI bólan, SlopTok, AgentKit & Orðrómar

    Er gervigreind bara bóla?


    Í fimmta þætti hlaðvarpsins Gervigreind ræða Sverrir og Pétur um nýjustu vendingarnar í heimi gervigreindar.


    Í þættinum fara þeir m.a. yfir:


    - Erum við stödd í gervigreindarbólu?

    - ChatGPT Apps: Ný leið til að leyfa ChatGPT að tengjast ytri þjónustum

    - Sora 2 : Nýr AI samfélagsmiðill sem hefur fengið viðurnefnið “SlopTok”

    - AgentKit: verkfæri til að smíða sín eigin verkflæði

    - OpenAI opnar fyrir gerð erótísks efnis í ChatGPT

    - Samstarf OpenAI og Broadcom um nýja örgjörva


    Og margt margt fleira…


    Við erum líka á öllum helstu samfélagsmiðlum, endilega fylgið okkar á LinkedIn, Facebook og Instagram til þess að fylgjast með öllu því helsta sem er að gerast í heimi gervigreindar!



    Editor: Sindri Þór Grétarsson

    1 hr 15 min
  • #4 - Mýtur og misskilningur

    Gervigreind er á allra vörum en skiljum við hana í raun og veru?

    Velkomin í fjórða þáttinn af hlaðvarpinu okkar, Gervigreind!

    Í þessum þætti ræða Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson um algengar mýtur og misskilning varðandi gervigreind.

    Í þættinum ræða þeir meðal annars um:

    - Er ChatGPT að læra af samtölunum þínum og hefur það áhrif á svörin sem þú færð?

    - Af hverju skýr og góð samskipti við gervigreind eru oft mun mikilvægari en flókin kvaðning (e. prompt)

    - Getur ChatGPT komið með frumlegar hugmyndir eða er hún bara að endurtaka það sem hún hefur séð áður?

    - Áhrif gervigreindar á störf okkar, samfélagið í heild sinni og hvernig framtíðin gæti litið út


    Tæknimaður: Kristján Gíslason

    Editor: Sindri Þór Grétarsson

    1 hr 18 min
  • #3 - Erindrekar

    Hefur þú velt því fyrir þér hvernig framtíðin með gervigreind mun líta út þegar hún fer sjálf að vinna verkefni fyrir okkur?


    Velkomin í þriðja þáttinn af hlaðvarpinu okkar, Gervigreind!


    Í þessum þætti ræða Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson um erindrekar (e. Agents). Í þættinum ræða þeir meðal annars um:

    - Hvað erindrekar eru og af hverju þeir eru orðnir svona heitt umræðuefni

    - Hvernig þeir virka og helstu hugmyndir á bakvið þá

    - Nýjustu lausnirnar sem eru í boði í dag

    - Tækifæri, áskoranir og framtíðarsýn erindreka


    Tæknimaður: Kristján Gíslason

    Editor: Sindri Þór Grétarsson

    54 min
  • #2 - Gervigreind fyrir foreldra

    Hvað á ég að ráðleggja börnum mínum að gera eða læra í skóla með tilkomu gervigreindar?

    Hvernig geta foreldrar nýtt sér gervigreind í uppeldi barna?


    Velkomin í annan þátt af hlaðvarpinu okkar, Gervigreind!


    Í þessum þætti ræða Sverrir Heiðar Davíðsson og Pétur Már Sigurðsson um gervigreind fyrir foreldra. Í þættinum ræða þeir meðal annars um:

    • Leiðir til að nýta gervigreind hvort sem þú ert með ungabarn eða unglinga
    • Algengar spurningar frá námskeiðum um gervigreind frá foreldrum
    • Hvernig gervigreind getur bæði hjálpað og skemmt fyrir lærdómi
    • Viðbrögð almennings við GPT-5 viku seinna



    Tæknimaður: Kristján Gíslason

    Editor: Sindri Þór Grétarsson


    55 min