MANNLEGI ÞÁTTURINN FÖSTUDAGINN 2.FEB. KYNNING Á EFNI
Umsjón í dag Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta skiptið er maður hokinn af reynslu. Það eru ekki margir sem hafa fengið þjóðina til að hlægja oftar og meira, hann hefur skrifað, þýtt, leikstýrt og leikið og þá er engan veginn allt upp talið. Við fáum Gísla Rúnar Jónsson í kaffi og spjall hér eftir nokkrar mínútur og spjöllum við hann um allt milli himins og jarðar.
Við heyrum brot úr þættinum Heima og Heiman sem var á dagskrá Útvarpsins 11. september 1960 . Umsjón höfðu Haraldur J Hamar og Heimir Hannesson. Í þættinum talar Birgir Þórhallsson deildarstjóri Flugfélags Íslands þar sem hann fer yfir stöðu ferðamála hér á landi. Hann talar um vöntun á hótelrými og framtíðarhorfur.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir kemur til okkar í dag eins með sitt vikulega matarspjall. Í síðustu viku fjallaði hún um matarvenjur Loðvíks 14. Frakkakonungs en í þetta skiptið fjallar hún um matarvenjur annars konungs, konungs rokksins, Elvis Presley. Hann borðaði kannski ekki hollasta mat sem fyrir fannst, hann lét eftir sér eitt og annað. En við heyrum meira af því hjá Sigurlaugu síðar í þættinum.