Af handahófi gröfum við upp gömul hljóðbrot úr safni RÚV og hlustum á þau með eyrum ársins 2020. Rætt er við samtímafólk og, þegar möguleiki gefst, einhvern sem tengist umræddri upptöku.
„Söfnunarhneigðin er flestum í blóð borin og margir verja tómstundum sínum til að safna að sér mörgum munum, meira eða minna sjaldgæfum, eftir því sem efni og aðstæður leyfa,“ sagði Loftur Guðmundsson í þættinum Glatt á hjalla árið 1954. Við beinum eyrum okkar að söfnunarhneigð í þætti dagsins. Fólk safnar hinu og þessu, misverðmætum hlutum allt frá plastpokum, kóktöppum og eldspýtustokkum, til stærri, eldri og verðmætari dýrgripa. Í dag er fátítt að fólk finni sjaldgæfa dýrgripi á víðavangi á Íslandi en það virðist ekki hafa verið svo sjaldgæft um og fyrir miðbik síðustu aldar þegar maður einn fann iðulega ýmsar gersemar í fjörunni við Eiðisgranda, skammt frá öskuhaugum Reykjavíkurborgar. Hann safnaði kjörgripum í miklum mæli og fór svo um landið með sýningar á mununum sem hann fann. Maðurinn var Pétur Hoffmann Salómonsson. Við kynnum okkur sögu Péturs í þætti dagsins, hlustum gamalt viðtal Sveins Skorra Höskuldssonar, þar sem Pétur segir sjálfur frá gulli og gersemum sem hann hefur sankað að sér, og heimsækjum að lokum son hans, Hörð Pétursson.
Umsjónarmaður: Anna Gyða Sigurgísladóttir