Loðin, lítil, villt, tryllt, stór, hljóðlát, hæglát, hávær, hárlaus, fiðruð, margfætt, með trýni og loppur eða klaufir, já eða átta augu. Þau eru alls konar dýrin sem byggja þennan heim. Um 1,5 milljónir dýrategunda eru þekktar á jörðinni um þessar mundir. Vísindamenn og sérfræðingar telja hins vegar líklegt að tegundirnar séu nær níu milljónum, það eigi bara enn eftir að bera kennsl á þær flestar.
Það er þó aðeins brotabrot af þessum tegundum sem talið er henta nútímalífi manndýrsins og okkar hefðbundna heimilishaldi. Það sést á því að vinsælustu gæludýr landsmanna eru hundar, kettir, nagdýr, páfagaukar og fiskar. Það virðist því mikið vera lagst á sortir þegar kemur að því að velja sér fjölskyldumeðlimi úr dýraríkinu.
Í þessari seríu af Glans ætlum við sem sagt að beina sjónum okkar að dýrum - öðrum en manninum - og þá helst þeim dýrum sem við mennirnir höfum ákveðið að gott sé að eiga eða hafa heimavið og njóta náinna samvista við, það er; gæludýrum.
Af hverju verða þessar framangreindu dýrategundir helst fyrir valinu sem gæludýr landsmanna? Er algengt að eiga gæludýr hér á landi? Hver hefur þróunin verið? Hverjir eru það sem fá sér gæludýr og af hverju? Hvaða þýðingu hafa gæludýrin fyrir okkur mennina? Hvaða þýðingu hefur það að gefa dýri nafn?