Í fyrstu þáttum Glans skoðum við fyrirbæri sem hefur þýðingu fyrir okkur öll, bæði í persónulegu samhengi og samfélagslegu; Ljósmyndir - og þá út frá alls konar sjónarhornum; myndvinnslu, minni, myndlæsi, varðveislu og breytingum og þróun á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar svo fátt eitt sé nefnt. Í þessum þætti beinum við sjónum okkar að fjölskyldu albúminu. Hvaða þýðingu hefur það í dag á stafrænum tímum? Hvaða tilfinningar, eða jafnvel minningar, vakna þegar við flettum í gegnum gamlar ljósmyndir? Og, hvað verður um þær þegar við deyjum?
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Katrín Ásmundsdóttir.