Mannlegi þátturinn

Grasið í garðinum, sumarfrí grunnskólabarna, og Kontóristinn


Listen Later

Eitt af einkennum sumarsins er lyktin af nýslegnu grasi. Flestum þykir hún afskaplega góð en ekki er eins víst að allir kunni að sinna garðinum sínum almennilega, sem sagt grasfletinum. Þar getur ýmislegt sett strik í reikninginn, eins og til dæmis mosi, fíflar og fleira. Því var ekki úr vegi að fá í þáttinn lærða manneskju, sem titlar sig í símaskránni grasvallatæknifræðing. Hann heitir Bjarni Þór Hannesson og lærði í Skotlandi og Englandi, hefur séð um golfvelli og knattspyrnuvelli og gaf góð ráð til garðeigenda sem viðkoma grasinu.
Nýlega skrifaði Margrét Júlía Rafnsdóttir verkefnastjóri innlendra verkefna hjá Barnaheillum ? Save the Children á Íslandi, grein í fjölmiðla þar sem hún vekur athygli á ósamræmi í sumarfríum foreldra og grunnskólabarna. Flestir foreldrar fá mest 6 vikur í sumarfrí en börn á grunnskólaaldri eiga hins vegar tvöfalt lengra frí. Barnaheill hvetja stjórnvöld og ekki síst sveitarfélög til að taka til skoðunar að koma á uppbyggilegum úrræðum fyrir börn á yngsta stigi grunnskóla í skólafríum og hvetja jafnframt fyrirtæki og stofnanir að sýna foreldrum skilning þegar hliðra þarf til vegna frídaga barna. Margrét Júlía kom í þáttinn í dag.
Við fengum annan pistilinn í nýrri röð af Kontóristanum frá Steinari Þór Ólafssyni. Í þetta sinn veltir hann fyrir sér mötuneyti og mat í fyrirtækjum, sem spila auðvitað mikilvægt hlutverk í starfsánægju og afköstum og geta jafnframt dregið úr veikindum og fjarveru starfsmanna. En ætli mötuneyti spili stærra hlutverk en bara að gefa svöngu starfsfólki að borða? Þetta skoðaði Steinar Þór kontórsti í pistli dagsins, þar sem hann talaði meðal annars við Olgu Eir Þórarinsdóttur, hjúkrunarfræðing hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu og Alexöndru Kjeld, umhverfisverkfræðing hjá Eflu verkfræðistofu
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners