
Sign up to save your podcasts
Or


Ósöðugleiki Liverpool er eini stöðugleiki liðsins. Liverpool leiðrétti hærðilegt tap gegn Wolves með 1-3 sigri á sama velli í bikarnum en tapaði svo í annað skipti í vetur 0-1 gegn Galatarsaray í Tyrklandi. Liverpool er því núna búið að tapa gegn Wolves og Galatarsaray á einni viku sem er bara alls ekkert nógu gott. Næst er það Tottenham sem hafa ekki unnið leik á þessu tímabili en voru vissulega með Liverpool í köðlunum í fyrri leiknum þrátt fyrir að vera 9 gegn 11 undir lokin.
Minnum annars áfram á Árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í Kaplakrika sem við hvetjum alla til að tryggja sér miða á.
Stjórnandi: Einar Matthías
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
MP3: Þáttur 560
Gullkastið var tekið upp í Smárabíó að þessu sinni þar sem Liverpool klúbburinn var með viðhafnarsýning á heimildarmynd um King Kenny Dalglish sem er 75 ára í dag. Björg Arna formaður Liverpool Klúbbsins mætti í byrjun þáttar og kynnti einnig árshátíð Liverpool klúbbsins í 21.mars í Kaplakrika sem við hvetjum alla til að tryggja sér miða á.
Liverpool spilaði tvo leiki í vikunni, flottur 5-2 sigur á West Ham og allt í blóma en svo algjört skiptsbrot í gærkvöldi gegn Wolves sem var svolítið tímabilið í hnotskurn.
Bikar og Meistaradeild framundan í næstu viku
Stjórnandi: Einar Matthías
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
MP3: Þáttur 559
Fógetinn í Nottingham var vondi kallinn í Hróa Hetti og það á svo sannarlega líka við um vægast sagt skrautlegan fógeta Nottingham Forrest liðsins og því sérstæklega sætt að sækja öll þrjú stigin þangað á eins ógeðslegan hátt og mögulegt var. Frammistaða Liverpool var vægast sagt áhyggjuefni en tvö flautumörk dugðu til að breyta allri umfjöllun um leikinn til hins betra.
Stjórnandi: Einar Matthías
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
MP3: Þáttur 558
Liverpool var mun líkara liðinu sem við þekkjum í síðustu viku, tveir sigrar, ekkert mark fengið á sig og leikjaprógram framundan þar sem krafan er áframhald af þessum frammistöðum.
Stjórnandi: Einar Matthías
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
MP3: Þáttur 557
Það fellur gjörsamlega ekkert með Liverpool þessa dagana og sæti í Meistaradeild á næsta ári að verða ólíklegra með hverri umferð. Hópurinn er orðin verulega þunnur í ofanálag og það lagaðist ekki fyrir leikina í þessari viku.
Stjórnandi: Einar Matthías
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
MP3: Þáttur 556
Tveir góðir sigrar á Anfield þar sem Liverpool skoraði samanlagt 10 mörk gegn 1. Nauðsynleg þrjú stig í deildinni og 3.sæti tryggt í Meistaradeildinni og situr Liverpool því hjá í næstu umferð. Öguverk liðið var á sínum stað og um næstu helgi mætir Man City á Anfield.
Stjórnandi: Einar Matthías
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Ögurverk ehf
MP3: Þáttur 555
Uppfært 11:30: Paul Joyce, sem er alla jafnan sá áreiðanlegasti af Liverpool pennunum, greindi frá því rétt í þessu að Spurs séu að reyna að fá Andy Robertson til sín. Maður hefur að vissu leyti skilning á að Robbo vilji fleiri mínútur á HM ári, en ég held að @PaulSenior1 í skjáskotinu fyrir neðan tali fyrir okkur flest…
Flottur sigur í Marseille í gærkvöldi og nokkuð góð staða í Meistaradeildinni fyrir lokaumferðina. Hinsvegar afleit úrslit í annars frábærri Kop.is ferð á Anfield þar sem Burnley náði í verulega pirrandi stig. Stigasöfnun í deildinni undanfarið klárlega töluvert áhyggjuefni en viss batamerki á liðinu inn á milli. Leikjaprógrammið framundan er töluvert þyngra á pappír, hentar það Liverpool?
Bournemouth á útivellli er næsta verkefni seinnipartinn á laugardaginn.
Stjórnandi: Einar Matthías
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
MP3: Þáttur 553
Þjálfaramarkaðurinn er öllu líflegri þessa dagana en leikmannamarkaðurinn þó hvorugur hafi mikið með Liverpool að gera.
Stjórnandi: Einar Matthías
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
MP3: Þáttur 552
Fyrir utan ákaflega ósannfærandi stigasöfnun undanfarið er eitt helsta vandamál Arne Slot þessa dagana hvaða leikur Liverpool liðsins er hrútleiðinlegur. Það er ekkert hugrekki í leik liðsins, leikplanið virðist meira snúast um að tapa ekki frekar en að vinna og flest öll tölfræði sem við tengjum við leik Liverpool er orðin áhyggjuefni.
Liverpool gerði fyrsta 0-0 jafnteflið sitt í tæplega tvö ár gegn Leeds á Anfield og afrekaði þar með að fara í gegnum báða leikina gegn nýliðum Leeds án þess að vinna. Klárlega einn leiðinlegasti Liverpool leikur í seinni tíð. Því var fylgt eftir með örlítið betri spilamennsku gegn vængbrotnu liði Fulham sem á endanum skilaði sömu niðurstöðu. Fjórða skipti í vetur sem Liverpool fær á sig mark í uppbótartíma og tapar stigum fyrir vikið. Hugarfars skrísmli eru okkar menn alls ekki þessa dagana.
Það voru heldur betur vendingar hjá United og Chelsea sem bæði ráku stjórann í þessari viku en þetta eru helstu keppinautar Liverpool í vetur eins slæmt og það nú er. Áhugavert að skoða hvaða stjórar koma helst til greina hjá þessum liðum.
Leikmannamarkaðurinn er opinn en helstu fréttir þessa dagana eru að flestir þeir leikmenn sem við vorum að vonast til að Liverpool myndu klára í janúar eru á leiðinni til Man City. Ekkert staðfest ennþá samt.
Næstu verkefni eru svo Arsenal á útivelli á fimmtudaginn og svo bikarleikur gegn Barnsley strax eftir helgi.
Stjórnandi: Einar Matthías
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf
MP3: Þáttur 551
Lokaþáttur ársins og þáttur númer 550 af Gullkastinu, geri aðrir betur.
Stjórnandi: Einar Matthías
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf / Happatreyjur.is
MP3: Þáttur 550
From the publisher's feed