Gullkastið

Gullkastið

Download on the App Store

Gullkastið episodes

  • Gullkastið – Man Utd á Anfield um helgina

    Liverpool tapaði þremur leikjum í röð fyrir landsleikjahlé, þar af tveimur deildarleikjum sem töpuðust á marki í uppbótartíma. Það má því léttilega færa rök fyrir því að þetta landsleikjahlé er búið að vera þrjá mánuði að líða en er nú blessunarlega að renna sitt skeið. Alvöru verkefni strax á sunnudaginn þegar Amorim mætir á Anfield með Man United. Liverpool er eitt af örfáum liðum sem ekki hefur enn unnið United undir hans stjórn og því þarf að breyta.

    Spáum í leik helgarinnar, gefum leikmannahópnum einkunn fyrir tímabilið so far, Ögurverk liðið er á sínum tíma og eins spáum víð í þeim tímamótum að FSG er búið að eiga félagið í 15 ár í dag.

    Stjórnandi: Einar Matthías

    Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf

    MP3: Þáttur 539

    1 hr 2 min
  • Gullkastið – Hveitibrauðsdagar Slot Á Enda

    Enn ein ósannfærandi spilamennskan hjá Liverpool, þriðji tapleikurinn í röð og annað skipti á rúmlega viku sem Liverpool tapar á flautumarki á útivelli í London. Hveitibrauðsdagarnir eru á enda hjá Arne Slot og stuðningsmenn réttilega farnir að spyrja þyngri spurninga en hingað til.

    Liverpool fer inn í landsleikjahlé með þrjá tapleiki í röð á bakinu en það sem verra er þá hefur liðið ekki ennþá spilað sannfærandi 90 mínútur í neinum leik það sem af er þessu tímabili.

    Stjórnandi: Einar Matthías

    Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf

    MP3: Þáttur 538

    56 min
  • Gullkastið – Tveir Tapleikir!

    <span data-mce-type="bookmark" style="display: inline-block; width: 0px; overflow: hidden; line-height: 0;" class="mce_SELRES_start">?</span>

    Heldur betur þung vika hjá okkar mönnum og tveir ákaflega ósannfærandi og pirrandi tapleikir staðreynd. Annar í London sem tapaðist á flautumarki og hinn í Istanbul þar sem boltinn var í leik 50% af leiktímanum. Chelsea bíður um næstu helgi, enn einn útileikurinn.

    Stjórnandi: Einar Matthías

    Viðmælendur: SSteinn

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    Gull Áfengislaus / Verdi Travel / Delottie / Ögurverk ehf

    MP3: Þáttur 537

    45 min
  • Gullkastið – Borgin er Rauð

    Liverpool borg er að sjálfsögðu rauð, góður sigur á Everton í kjölfarið á sigri í miðri viku gegn Atletico Madrid. Liverpool er því með fullt hús stiga áfram en á meðan töpuðu bæði Arsenal og Man City stigum, reyndar í sama leiknum.

    Það var Breiðholtsþema í þættinum að þessu sinni í stjórn Magga sem fékk þá Addó og Garðar Gunnar til sín.

    Stjórnandi: Maggi

    Viðmælendur: Garðar Gunnar Ásgeirsson og Arnar Þór Valsson

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    MP3: Þáttur 536

    1 hr 12 min
  • Gullkastið – 90 mínútur plús uppbótartími!

    Fótboltaleikur er 90 mínútur plús uppbótartími, blessunarlega! Liverpool er búið að klára fimm leiki í röð með sigurmarki á lokamínútunum. Þrír af þeim reyndar eftir að hafa hent frá sér 2-0 forystu. Tveir afar ólíkir leikir í þessari viku og alvöru stórleikur framundan um helgina.

    Stjórnandi: Einar Matthías

    Viðmælendur: SSteinn og Óli Haukur

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    MP3: Þáttur 535

    49 min
  • Gullkastið – Fáum við að sjá Isak?

    Landsleikjahlé að renna sitt skeið og Isak mættur til æfinga klár í slaginn með toppliðinu. Tókum stöðutékk á byrjun mótsins, fréttum vikunnar og næstu umferð.

    Stjórnandi: Einar Matthías

    Viðmælendur: Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    MP3: Þáttur 534

    59 min
  • Gullkastið – Isak mættur

    Alexander Isak er mættur til Liverpool og var síðasta viðbótin við hópinn í sumar eftir ótrúlegan leikmannaglugga og nokkuð fáránlegan lokadag. Marc Guéhi var líka búinn með læknisskoðun og kveðjumyndbönd hjá Palace aðeins til að fá svo ekki að fara þökk sé stjóra Palace sem tapaði alveg gleðinni og hótaði að hætta.

    Liverpool vann svo auðvitað frábæran sigur á flugher Arsenal, það lið ber sannarlega öll merki þess að stóri liðsins var fyrirliði Everton sem leikmaður undir stjórn David Moyes, maður lifandi. Þriðja helgin í röð sem stuðningsmenn Liverpool öskra hressilega á sjónvarpið undir lok leikja og við erum bara í þriðju umferð!

    Spáðum auðvitað einnig í leikmannaglugganum í heild, drættinum í Meistaradeild Evrópu og því helsta frá þessari viku.

    Stjórnandi: Einar Matthías

    Viðmælendur: SSteinn og Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    MP3: Þáttur 533

    0 min
  • Gullkastið – RIO

    Við þurftum að upplifa einn mest pirrandi leik Liverpool í langan tíma til að fá eitt besta augnablikið í tíð Arne Slot. Ngumoah kom inná eftir að hafa beðið í 5-6 mínútur á hliðarlínunni horfandi á háloftabolta Newcastle manna, kom loksins inná og slúttaði stuttu seinna nánast einu góðu sóknaraðgerð Liverpool í seinni hálfleik. Reyndum að ná utan um hvernig við erum núna búin að fá tvö svona augnablik í vetur og það eru bara tvær umferðir búnar.

    Leikmannamarkaðurinn er á lokametrunum í þessari viku og úrslitastund hvað varðar Isak og Guéhi sögunar sem hvað helst hafa verið orðaðir við Liverpool. Hin liðin sitja eins heldur betur ekki auðum höndum.

    Það eru svo ekki minni háloftafimleikar næstu helgi þegar Arsenal mætir á Anfield, frasinn um hornspyrnu á hættulegum stað verður líklega brúkaður af því tilefni.

    Endilega hjálpið okkur að velja Ögurverk liðið skipað efnilegustu leikmönnum í heimi fædda árið 2003 eða seinna. Næst ætlum við að velta fyrir okkur hver er besti vinstri bakvörður í þessum aldurshópi.

    Stjórnandi: Einar Matthías

    Viðmælendur: SSteinn og Óli Haukur

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    MP3: Þáttur 532

    1 hr 4 min
  • Gullkastið – Ballið Byrjað

    Sigur á Anfield í fyrsta leik tímabilsins en frekar ósannfærandi. Lokakaflinn á leikmannamarkaðnum að hefjast og ljóst að Liverpool má ekki vera búið á markaðnum.

    Stjórnandi: Einar Matthías

    Viðmælendur: Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    MP3: Þáttur 531

    54 min
  • Gullkastið – Næstu leikmannakaup í vinnslu

    Fréttir um Marc Guéhi til Liverpool og Leoni frá Parma fóru á yfirsnúning á meðan upptöku stóð og í morgun komu fréttir af Isak sem er heldur betur að gera sitt til að fá sín félagsskipti til Liverpool í gegn. Rosalega spennandi dagar og vikur framundan á leikmannamarkaðnum, Liverpool þarf að fylla í nokkrar stöður áður en glugganum lokar það er ljóst.

    Enska deildin fer af stað á föstudagskvöldið þegar ensku meistarnir fá Bournemouth í heimsókn á Anfield. Er okkar menn klárir í slaginn? Tap á Wembley í Góðgerðarskildinum skilur eftir töluvert af spurningum um liðið en gefur jafnframt tilefni til bjartsýni einnig.

    Stjórnandi: Einar Matthías

    Viðmælendur: Maggi

    Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.

    MP3: Þáttur 530

    1 hr 10 min

About Gullkastið

From the publisher's feed

Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is um Liverpool og enska boltann. Þátturinn hóf göngu sína í maí árið 2011