Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is um Liverpool og enska boltann. Þátturinn hóf göngu sína í maí árið 2011... more
FAQs about Gullkastið:How many episodes does Gullkastið have?The podcast currently has 448 episodes available.
April 27, 2025GULLKASTIÐ – LIVERPOOL ENGLANDSMEISTARARÞað er komið (Staðfest) á Englandsmeistaratitilinn og tilfinningin er vægast sagt frábær. Meistarar á Anfield og samt eru fjórar umferðir eftir. Liverpool hafa einfaldlega verið langbestir í vetur sama hvað hávær hópur stuðningsmanna annarra liða hefur grenjað. Loksins fá leikmenn og stuðningsmenn að fagna almennilega saman og líklega er veislan bara rétt að byrja. Stöðutaflan í deildinni er eins og listaverk sem rétt væri að ramma inn og hengja upp á vegg. Njótum kæru vinir og til hamingju með titilinn. Þessi er eins sætur og þeir verða.Liverpool FC. Premier League champions. pic.twitter.com/2Si4xSSsIq— Liverpool FC (@LFC) April 27, 2025 Stjórnandi: Einar MatthíasViðmælendur: Maggi, Einar Örn og Sveinn Waage Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.MP3: Þáttur 519...more52minPlay
April 23, 2025Gullkastið – Eitt Stig!Liverpool er með 79 stig eftir sigur gegn Leicester um helgina, Arsenal getur max náði 79 stigum á þessu tímabili vinni þeir alla leikina sem þeir eiga eftir og markatalan er 10 mörkum Liverpool í vil með leik til góða. Án þess að segja (Staðfest) er óhætt að fullyrða að staðan hefur sjaldan eða aldrei verið betri. Jafntefli Arsenal gegn Palace gerir það að verkum að Liverpool geta klárað fótbolta.net (Staðfest) svigann núna á sunnudaginn í heimaleik á Anfield gegn helstu erkifjendum Arsenal í Tottenham. Það er auðvitað ekkert í hendi en maður getur rétt ímyndað sér partýið sem verið er að smíða, það eru þrjátíu og fimm fokkings ár síðan stuðningsmenn Liverpool gátu fagnað Englandsmeistaratitli án þess að á þeim fögnuði væru nokkrar bremsur og guð minn góður hvað það verður málið þegar þetta er formlega komið. Kampavínið í kæli og Egils Gull í ísskápinn, þetta gæti gerst um helgina. Stjórnandi: Einar MatthíasViðmælendur: Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.MP3: Þáttur 518...more1h 10minPlay
April 16, 2025Gullkastið – Endamarkið NálgastÞað er ennþá styttra í fyrirheitna landið eftir leiki vikunnar. Liverpool náði í þrjú stig á Anfield á meðan Arsenal tapaði stigum. Sex stig duga því til að vinna deildina þannig að tölfræðilega gæti einmitt það gerst núna um helgina. Liverpool mætir Leicester en Arsenal fær Ipswich í heimsókn þannig að við höldum ekkert niðri í okkur andanum.Veljum í Ögurverk liðið og skoðum stöðuna í deildinni almennt og spáum í leiknum á PáskadagStjórnandi: Einar MatthíasViðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.MP3: Þáttur 517...more1h 11minPlay
April 10, 2025Gullkastið – Salah og Van Dijk að semja?Annað tap tímabilsins í deildinni um síðustu helgi og löng vika fram að næsta leik fyrir vikið.Góðar fréttir af Salah og Van DijkStjórnandi: Einar MatthíasViðmælendur: SSteinnÞökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.MP3: Þáttur 516...more53minPlay
April 03, 2025Gullkastið – Liverpool Borg Er RauðLiverpool borg er og hefur alltaf verið rauð, sigur á David Moyes og Everton var aðalatriði í leik sem tók vel á þolrifin og þökk sé því hvernig hann var dæmdur. Tólf stig þarf úr átta síðustu leikjunum til að klára titilinn. Hlóðum í nýtt Ögurverk lið og spáðum í spilin fyrir leikinn gegn Fulham um helgina og leikjaprógrammið í þessum mánuði. Allir leikir Liverpool sem eftir lifa tímabilsins verða á sunnudegi. Stjórnandi: Einar MatthíasViðmælendur: SSteinn og MaggiÞökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.MP3: Þáttur 515...more0minPlay
March 27, 2025Gullkastið – Hvað gerir Liverpool á leikmannamarkaðnum?Allar helstu fréttir vikunnar benda til að Trent sé við það að skrifa undir hjá Real Madríd og fari þangað á frjálsri sölu. Afskaplega leiðinlegur viðskilnaður hjá uppöldum leikmanni og lykilmanni í algjöru toppliði. Óháð framtíð Trent er ljóst að Liverpool þarf að láta til sín taka á leikmannamarkaðnum í sumar og tókum við púlsinn á því hvaða leikmenn eru líklegir til að fara og hvað er í boði í staðin í hverri stöðu. Ögurverk liðið er á sínum stað og þrenna að þessu sinni. Deildin fer svo aftur af stað í næstu viku og spilar Liverpool við Everton á miðvikudaginn og Fulham um helgina. Stjórnandi: Einar MatthíasViðmælendur: SSteinn og MaggiÞökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.MP3: Þáttur 514...more1h 23minPlay
March 17, 2025Gullkastið – Allur fókus á deildinaArne Slot valdi hreint afleita viku til að tapa tveimur leikjum í röð í fyrsta skipti á ferlinum. Liverpool lauk leik í 16-liða úrslitum þrátt fyrir að hafa toppað deildarfyrirkomulagið í Meistaradeildinn og tapaði svo með afar þreyttum og ósannfærandi hætti gegn Newcastle Wembley, versta frammistaða Liverpool þar síðan 1988.Alls ekki gott og ágætt að fá bæði landsleikjahlé og bikarhelgi í kjölfarið á því. Nú fer allur fókus á þessa níu leiki sem eru eftir af þessu tímabili. Sigur í fimm þeirra og það er hægt að jafna sig á þessari viku.Stjórnandi: Einar MatthíasViðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.MP3: Þáttur 513...more1h 3minPlay
March 10, 2025Gullkastið – PSG og Anfield SouthBilið breikkaði um tvö stig í viðbót í deildinni og staðan orðin vægast sagt góð. Seinni leikurinn gegn PSG er næst á dagskrá og Wembley um helgina. Liverpool spilar bara stórleiki. Stjórnandi: Einar MatthíasViðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.MP3: Þáttur 512...more1h 2minPlay
March 03, 2025Gullkastið – Farið Að Sjást í EndamarkiðForskotið á toppnum er komið í 13 stig og heldur betur farið að sjást í endamarkið. Þrátt fyrir bókstaflega allan katalóginn af afsökunum frá Arsenal mönnum hafa þeir í raun aldrei komist almennilega í titilbaráttuna og eru með stigasöfnun sem jafnan er meira á pari við liðin í baráttu um Meistaradeildarsæti. Liverpool á Southampton næst á Anfield og er sá leikur á undan leik Arsenal gegn United úti um helgina. Deildin verður hinsvegar í aukahlutverki í þessum mánuði fyrir utan leikinn gegn botnliðinu, PSG einvígið byrjar á miðvikudaginn í París og í næstu viku koma þeir á Anfield áður en Liverpool spilar svo til úrslita í deildarbikarnum. Stjórnandi: Einar MatthíasViðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.MP3: Þáttur 511...more1h 4minPlay
February 24, 2025Gullkastið – Sex stiga helgiSíðasta helgi var líklega besta helgi tímabilsins fyrir Liverpool þegar Man City var loksins lagt á Etihad í deildarleik og það í kjölfarið á tapi Arsenal á Emirates vellinum. Ekki alltaf sem úrslitin á þessum olíuvöllum falla svona með okkur.Það var dregið í Meistaradeildinni, hörku vendingar í deildinni, Everton og Man Utd eru m.a. bara þremur stigum á eftir Liverpool, sko samanlagt. Næst er það svo hið heita/kalda Newcastle lið, generalprufa fyrir úrslitaleikinn í deildarbikarnum.Stjórnandi: Einar MatthíasViðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.Afsláttarkóði í febrúar á WoktoWalk.is – 25% afsláttur með afsláttarkóðanum LiverpoolerubestirMP3: Þáttur 510...more1h 3minPlay
FAQs about Gullkastið:How many episodes does Gullkastið have?The podcast currently has 448 episodes available.