Handkastið

Handkastið

By HandkastiðSports
Download on the App Store

All Handkastið episodes

  • Vanmátu íslensku stelpurnar Færeyjar og misjafnt gengi fyrir Norðan
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættu í Handkast stúdíóið og gerðu upp vikuna í handboltanum á Íslandi og erlendis.
    Íslenska kvenna landsliðið tapaði gegn Færeyjum í vikunni í undankeppni EM.
    Fram stóðu í Porto framan af en lentu svo á vegg síðustu 15 mínúturnar.
    Haukar halda áfram að vinna og eru komnir á topp deildinnar.
    KA hafa komið öllum á óvart í vetur og eru komnir í 3.sætið.
    Viðvörnunarbjöllur farnar að heyrast í Þorpinu?
    Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 5 min
  • Það er allt í lagi að vera með grín, svo framarlega sem það fer ekki út í sprell
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars komu í Handkast stúdíóið á þessu sunnudagskvöldi og gerðu upp helgina í handboltanum.
    Stelpurnar okkar eru að fara í 2 leiki gegn Færeyjum og Portúgal í vikunni.
    HK skildu ÍR eina eftir á botninum og KA sigraði Fram í Úlfarsárdalnum en fékk að nota 8 leikmenn til þess.
    Haukar rúlluðu yfir ÍBV í Eyjum í dag án Arons Rafns sem var í löngu planaðari golfferð.
    Aðalsögulína leiksins voru þó meiðslin sem Daníel Þór Ingason leikmaður ÍBV varð fyrir í gær þegar verið var að taka um samfélagsmiðlaefni fyrir Olísdeildina.
    Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 8 min
  • Er erfitt að reka þjálfara í deildinni og sleppur Ívar Logi við bann?
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi gerðu upp vikuna í handboltanum.
    Bikarkeppnin var í fullum gangi í upphafi vikunnar og voru óvænt úrslit þar.
    Landsleikjahlé komið hjá stelpunum í Olísdeildinni fyrir leiki gegn Færeyjum og Portúgal.
    6.umferð Olís deildar karla hófst í gær og voru Þórsarar með svakalega endurkomu í Kaplakrika.
    Boltabloggið finnst lítil þjálfaravelta á Íslandi. Er erfitt að rekja þjálfara í handbolta?
    Þetta og svo miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 9 min
  • Stórveldi í vanda, sterkir nýliðar og gæða útlendingar
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Sly fóru yfir allt það helsta frá helginni í handboltanum.
    Bikarkeppnin er í fullum gangi og ævintýri ÍBV 2 lauk í gær þegar KA menn komu í heimsókn.
    ÍR unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í gær og eru komnir í 8 liða úrslit.
    4. umferðin í Olísdeild kvenna lauk um helgina og það er eru svakalegir leikir í vikunni hjá stelpunum.
    Topp 5 listar voru allsráðandi undir lok þáttar og fengu strákarnir allir sína heimavinnu fyrir þátt.
    Þetta og svo miklu miklu meira í þætti Handkastsins.
    1 hr 3 min
  • Erlingur nennir Handkastinu ekki og loksins vann HK
    Stymmi Klippari, Davíð Már og Geiri Gunn mættu í Handkast stúdíóið í kvöld og gerðu upp 5.umferðina í efstu deild karla í kvöld.
    Þór og Stjarnan skildu jöfn í háspennu leik fyrir Norðan meðan KA og ÍR voru með markaveislu í kvöld.
    ÍBV tapaði gegn Selfoss og Erlingur Richardsson nennti ekki að ræða við Handkastið eftir leik.
    Afturelding eru einir á toppi deildinnar með fullt hús stiga eftir að hafa unnið meiðslahrjáð lið Fammara í kvöld.
    Hvað er í gangi hjá FH?
    HK tóku vel á móti Skólphreinsun Ásgeirs og unnu fyrsta leikinn síðan 21.febrúar.
    Eru Haukar farnir að hóta því að taka deildarmeistaratitilinn?
    Þetta og miklu meira í Handkast þætti kvöldsins.
    58 min
  • Ár og aldir síðan HK vann leik og svakalegur fimmtudagur framundan
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp helgina í boltanum.
    Gaupi fór yfir brottrekstur Gumma Gumm í Danmörku og Janus Daði Smárason varð fyrir skelfilegum meiðslum í gær.
    Haukar og Fram gerðu jafntefli um helgina en Haukar verða án Rutar í vetur þar sem hún er ólétt.
    Valskonur unnu fyrri viðureign sína í Evrópukeppninni í Hollandi meðan Selfoss tapaði með 6 mörkum í Aþenu.
    HK hafa ekki unnið leik í deildinni síðan 21.febrúar og frábær varnarleikur Stjörnunnar í síðari hálfleik skóp sigurinn gegn FH.
    Heimkomu Kára Kristjáns til Vestmannaeyja lauk með 6 marka sigri ÍBV og við heyrðum í Tedda Ponzu í lok þáttar og spáðum í rosalega umferð sem fram fer á fimmtudaginn.
    Þetta og miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 9 min
  • Ristarspyrna Einars Jóns reyndist dýrkeypt og hverjir eru þessir menn?
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Andri Berg mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum, bæði hér heima og erlendis.
    Frammarar eru að glíma við gífurlega mikil meiðsli í leikmannahóp sínum og evrópukeppnin er handan við hornið.
    Darri Aronsson er mættur aftur á parketið eftir rúmlega 1.000 daga fjarveru frá handbolta.
    ÍR-ingar verða að fara að byrja leikina ef þetta á ekki að enda illa hjá þeim.
    Valskonur jarðtengdu ÍR stelpur eftir góða byrjun á tímabilinu og nýliðar KA/Þór eru á toppi deildinnar með fullt hús stiga.
    Nóg af handbolta um helgina bæði hérlendis og erlendis.
    Séffinn setti strákana í próf um hversu vel þeir þekktu leikmennina í Olís deildinni.
    Þetta og miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr
  • Óvænt úrslit í Olís og Arnar að setja saman nýtt lið
    Stymmi Klippari fékk til sín Gunnar Val og Sigurjón Friðbjörn til að ræða síðustu daga í handboltanum.
    Stelpurnar Okkar fór til Danmerkur og fengu skell gegn Dönum. Breytingarnar sem hafa orðið á landsliðinu undanfarin ár voru ræddar og þær áskoranir sem Arnar Pétursson landsliðsþjálfari stendur frammi fyrir.
    Óvænt úrslit voru í Olís deildinni á föstudaginn og allir þrír leikirnir enduðu með 1 marks sigrum. Hefur deildin aldrei verið jafnari?
    Cell-Tech Lið 3.umferðar í Olís-deild karla á sínum stað, Skólhreinsun Ásgeirs á ferðinni og heil umferð í karla og kvenna í vikunni.
    Hlustið á nýjasta þátt Handkastsins.
    46 min
  • Róbert Geir hættur og allt vitlaust í Eyjum
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættur í stúdíó Handkastsins og fóru yfir annasama viku.
    Róbert Geir hættir um áramótin hjá HSÍ eftir 22 ára starfsferil.
    Ásgeir Snær dæmdur í þriggja leikja bann eftir myndbandsupptöku. Erum við búin að opna pandórubox þar?
    Hitamálið í Eyjum sem allir eru að tala um. Klúðraði ÍBV framkvæmd leiksins algjörlega?
    3.umferðin er komin af stað og klárast í kvöld.
    Þetta og miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 5 min
  • Aukakastið - Rúnar Kárason
    Aukakastið er ný hliðarþáttarröð frá Handkastinu sem er stýrt af Stymma Klippara og Kidda Björgúlfss.
    Í Aukakastinu munum við fá góða gesti sem allir eiga það sameiginlegt að tengjast handbolta. Hvort sem um er að ræða leikmenn, þjálfara, stjórnamenn eða sjálfboðaliða.
    Markmið þáttarins er að kynnast viðmælandanum betur, allt frá fyrstu kynnum þeirra að íþróttinni, hápunkta ferilsins og hvernig lífið eftir handboltann er.
    Gestur þáttarins er Rúnar Kárason.
    1 hr 14 min