Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Benni Grétars komu í Handkast stúdíóið á þessu sunnudagskvöldi og gerðu upp helgina í handboltanum.
Stelpurnar okkar eru að fara í 2 leiki gegn Færeyjum og Portúgal í vikunni.
HK skildu ÍR eina eftir á botninum og KA sigraði Fram í Úlfarsárdalnum en fékk að nota 8 leikmenn til þess.
Haukar rúlluðu yfir ÍBV í Eyjum í dag án Arons Rafns sem var í löngu planaðari golfferð.
Aðalsögulína leiksins voru þó meiðslin sem Daníel Þór Ingason leikmaður ÍBV varð fyrir í gær þegar verið var að taka um samfélagsmiðlaefni fyrir Olísdeildina.
Þetta og svo miklu miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.