Mannlegi þátturinn

Hara systur föstudagsgestir og ítalskt matarspjall


Listen Later

HARA systur frá Hveragerði komu sáu og næstum því sigrðu X Factor keppnina árið 2007. Þær lentu í öðru sæti eftir spennandi einvígi við Jogvan Hansen, sem þær höfðu reyndar nokkrum mánuðum áður skráð til leiks ásamt sér. Systurnar urðu á skömmum tíma gríðarlega vinsælar og í kjölfarið gáfu þær út plötu og voru bókaðar út um allt land. En það hefur ekki mikið heyrst til þeirra undanfarin ár. Hvar eru þær í dag og hvað hefur á daga þeirra drifið? Við tókum vel á móti Hara systrum, Rakel og Hildi Magnúsdætrum í dag og fórum með þeim yfir þessa miklu reynslu sem keppnin var, æskuárin í Hveragerði, aðdraganda þess að þær skráðu sig í keppnina sem breytti lífi þeirra, skuggahliðar þess að slá í gegn svona snögglega og svo hvað þær hafa verið að gera undanfarið.
Matarspjallið var svo á sínum stað og í dag var ítalskt þema þar sem leikkonan Sophia Lauren var í aðalhlutverki, en Sigurlaug Margrét keypti matreiðslubók fyrir 15 árum þar sem Sophia deilir uppskriftum sínum og sögum á bak við þær og okkur skilst að Sigurlaug hafi prófað að matreiða hverja einustu þeirra.
Tónlist í þættinum í dag:
Við saman / Hljómar (Gunnar Þórðarson og Þorsteinn Eggertsson)
Hvernig veit ég? / Hara systur (Hildur Magnúsdóttir og texti Rakel Magnúsdóttir)
Framtíðin / Hara systur (Pernille Rosendahl, Jonas Struck, Emil Jörgensen og texti Rakel Magnúsdóttir og Hildur Magnúsdóttir)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

477 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

32 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners