Heimsmálin

Haukur Hauksson, fréttaritari Útvarps Sögu er nýkominn frá Donbass í Úkraínu


Listen Later

Haukur Hauksson, fréttaritari útvarps Sögu er nýkominn frá Donbass, þar sem stríð hefur nú geisað í næstum því tvö ár á milli rússneskra aðskilnaðarsinna og úkraínska stjórnarhersins. Pétur Gunnlaugsson ræddi við Hauk um ferðina og annað í þættinum Heimsmálin. Meðal annars kom fram að það sé nánast útilokað að Vladimir Pútín forseti Rússlands vilji ræða við Joe Biden forseta Bandaríkjanna og Olaf Scholtz kanslara Þýskalands um frið í Úkraínu og því eru áætlanir kanslarans og Biden um að vilja binda enda á stríðið í Úkraínu andvana fæddar. 

Haukur segir það að sú staðreynd að Vesturlönd og Bandaríkin hafi vopnað Úkraínu gera það að verkum að þau lönd hafi í raun útilokað sig frá því að geta komið að því að reyna að miðla málum og koma á friði í Úkraínu og ekki bæti úr skák að Zelensky forseti Úkraínu hafi sjálfur látið setja lög í Úkraínu sem bannað að rætt sé við Rússa um vopnahlé eða frið.

Staðan sé alls ekki góð fyrir Úkraínu enda hafi þeim fækkað mjög sem séu tilbúnir til þess að styðja áframhaldandi stríðsrekstur Úkraínumanna með vopnasendingum því ekki sé sýnilegur árangur af þeim vopnasendingum. Staðan er því sú að gagnsókn Úkraínumanna hefur mistekist. Það hefur einnig mistekist að hrekja her Rússa til baka eins og ráðamenn þeirra landa sem stunduðu vopnasendingar héldu fram að vop þeirra gætu komið til leiðar.

Hefði átt að semja útaf NATO í upphafi

Haukur segir að ráðamenn í Bandaríkjunum og á Vesturlöndum hefðu mátt vita að slíkar áætlanir myndu ekki heppnast enda sé her Rússa mun stærri en her Úkraínumanna auk þess sem þjóðin sjálf sé margfalt fjölmennari og því hafi staðan í raun alveg vonlaus fyrir Úkraínu frá upphafi. Í stað þess að semja við Rússa í upphafi vegna kröfu þeirra um að NATO myndi ekki breiða sig út lengra í austur sé staðan nú orðin mun erfiðari og flóknari en hún hefði þurft að verða. Enn sé pattstaða í stríðinu og enn séu herir beggja landa í skotgrafarhernaði.

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

HeimsmálinBy Útvarp Saga


More shows like Heimsmálin

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

149 Listeners

Morðcastið by Unnur Borg��rsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

13 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

8 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

33 Listeners

Síðdegisútvarpið by Útvarp Saga

Síðdegisútvarpið

4 Listeners

Fréttir Vikunnar by Útvarp Saga

Fréttir Vikunnar

0 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

10 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners