Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 10 - Helgaspjallið: Brynja Dan
    Hin heilsteypta og gullfallega Brynja Dan er gestur þáttarins. Við ræðum um æskuárin, foreldrahlutverkið, tilfinningalífið, erfiðan foreldramissi og hið ótrúlega ættleiðingar ævintýri og tenging við blóðfjölskyldu sína. Ásamt því ræðum við um allt milli himins og jarðar.
    1 hr 17 min
  • Þáttur 9 - Helgaspjallið: Fanney Ingvars
    Gestur þáttarins er hin ljúfa og yndislega Fanney Ingvars. Hún ræður Ungfrú Ísland ævintýrið og áhrif keppninnar á lífið hennar. Móðurhlutverkið, andlegu hliðina og lífið eins og það leggur sig.
    1 hr 20 min
  • Þáttur 8 - Helgaspjallið: Svala Björgvins
    Gestur þáttarins er hin eina sanna Svala Björgvins. Við ræðum æskuna, unglingsárin, poppstjörnu ævintýrið í LA, bílslysið sem breytti lífi hennar ásamt því að við ræðum hvernig hún dílar við kvíða og almennt andlegu hliðina, tilfinningalífið þá og í dag.
    1 hr 25 min
  • Þáttur 7 - Helgaspjallið: Binni Löve
    Gestur þáttarins er snapkóngurinn Binni Löve. Við ræðum allt milli himins og jarðar. Þyngdartapið, andlegu hliðina, snaplífið og snapævintýrið, æskuna og unglingsárin ásamt allt annað þar á milli.
    1 hr 27 min
  • Þáttur 6 - Helgaspjallið: Sara María Forynja
    Sara María Forynja er gestur þáttarins. Hún er þekkt fyrir að hafa startað Nakta Apanum ásamt því hafa startað öðrum merkjum með prenti í aðalhlutverki. Við kíkjum inná við í hinn gullfallega andlega hugarheim Söru og ræðum hvernig henni hún komst í gegnum fósturmissi, hvernig hún fyrirgaf árásamanni sínum, hvernig hún lærði að elska sjálfa sig ásamt því að fara í gegnum sögu þessarar mögnuðu náttúrukonu.
    1 hr 12 min
  • Þáttur 5 - Helgaspjallið: Sólrún Diego
    Ein áhrifaríkasta manneskja Íslands Sólrún Diego er gestur þáttarins. Hún ræður upphaf Snapchat ævintýrsins, Frans, slúðursögurnar, sjálfsþekkingu, tilfinningalífið, fjölskyldulífið og opinberar mjög áhrifaríka staðreynd sem gæti komið hlustendum á óvart. Þátturinn er í lengri kantinum enda nóg af viðfangsefnum að ræða.
    1 hr 31 min
  • Þáttur 4 - Helgaspjallið: Elín Kristjáns
    Elín Kristjáns er gestur þáttarins. Hún er eignandi Gekkó.is og mikill ferðalangur og hugsuður. Við tölum um föðurmissi, tælenska menningu, ferðalög, bílferð til Mosó með glæpamanni, slagsmál á Seyðisfirði og hvernig við lærum að elska sjálf okkur.
    1 hr 18 min
  • Þáttur 2 - Helgaspjallið: Ragga Nagli
    Íþróttasálfræðingurinn og athafnarkonan Ragga Nagli er gestur Helga að þessu sinni og þau ræða mindful eating, þeirra samband, Þýska bóndabæi, almennar vangaveltur og mátt sálfræðinnar.
    1 hr 8 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is