Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 40 - Pælum í pólitík, pólitík á mannamáli og pólitík 101 með Maríu Rut
    Þessi þáttur er í boði Chitocare og Dominos -
    Afsláttarkóði á Chitocare.is: Helgaspjallið
    Ég fékk til mín Maríu Rut sem vinnur á alþingi og gegnir öðrum skemmtilegum verkefnum, eins og Pælum í Pólitík á Instagram, meðeigandi og stjórnandi Hinseginleikans og svo margt annað. María er hafsjór af visku og sérstaklega þegar kemur að pólitík. Við settumst niður og fórum yfir allskonar málefni og ég drita yfir hana hinum ýmsu spurningum um alþingi, framtíðina í pólitík, nýju stjórnarskránna og allt þar á milli. Markmiðið með þessum þætti er að allir, fólk sem hefur áhuga á póltík og ekki gæti hlustað og verið aðeins klárari í kringum hvað er að gerast hér á Íslandi. Er spilling? Er gott vibe á Alþingi? Name it. Við förum yfir það - mæli með þessum þætti og þakka Maríu svo mikið að hafa komið og gert mig vitrari.
    www.instagram.com/helgiomarsson
    www.instagram.com/mariarut
    www.instagram.com/chitocare
    www.instagram.com/dominos_iceland
    1 hr 34 min
  • Þáttur 38 - Ester Ingvars sálfræðingur um Gaslighting, algengt og sláandi!
    Þessi þáttur er í boði Chitocare Beauty og Dominos -
    Fyrir ekki svo löngu heyrði ég þetta hugtak, gaslighting eða gaslýsing eins og hægt er að kalla á íslensku. Ég varð forvitinn og kynnti mér þetta örlítið og vissi að ég þyrfti að vita allt, enda var þetta eitthvað sem ég sjálfur en ekki haft hugmynd um það. Ég fékk til liðs með mér Esteri Ingvars sem er sálfræðingur og snillingur með meiru. Hún fræðir okkur um gaslighting, tilfinningalega kúgun, ráð, afleiðingar og allt þar á milli. Mér fannst sláandi að heyra allt þetta og finnst magnað að þetta sé ekki meira rætt og hvað við vitum lítið um þessa aðferð af andlegu ofbeldi. Vona að þessi þáttur nýtist einhverjum til góðs.
    Afsláttakóði á chitocare.is: Helgaspjallið / Helgaspjallid
    www.instagram.com/helgiomarsson
    www.instagram.com/chitocare
    www.instagram.com/dominos_iceland
    1 hr 9 min
  • Þáttur 37 - Hættu að vera besta útgáfan að sjálfum þér?
    Þessi þáttur er í boði ChitoCare Beauty og Dominos -
    Í þessum þætti setjumst Ragga Nagli niður og ræðum hugmynd sem Dagný systir smellti á borðið. Afhverju þurfum við að verða besta útgáfan á sjálfum okkur og ekki bara vera nóg eins og við erum á degi hverjum. Við grófum svolítið í þessi mál ásamt öðru.
    Afsláttarkóði á chitocare.is er Helgaspjallid -
    www.instagram.com/helgiomarsson
    www.instagram.com/ragganagli
    www.instagram.com/chitocarebeauty
    www.instagram.com/dominos_iceland
    Stef eftir Arnar Boga/Boji
    Logo eftir Andreu Jóns hjá 29 línum -
    Njótið vel!
    52 min
  • Þáttur 36 - Eva Dögg Rúnars með hugleiðsluráð, hvað er fight or flight & ráð við people pleasing
    Eins og í hin skiptin sem fastagesturinn Eva Dögg Rúnars hjá RvkRitual þá förum við yfir hin ýmsu viðfangsefni. Meðal annars hvernig hún gerði íbúðina sína græna frá grunni, korkgólf. Hvað er fight or flight og hvernig skiljum við það betur í daglegu lífi, við ræðum people pleasing og hvernig hægt er að vinna úr því, áhrif Aquarius aldarinnar, hugleiðsluráð og uppbyggingu Self Mastery Class hjá RvkRitual.
    Þessi þáttur er í boði Dominos og Chitocare -
    www.instagram.com/helgiomarsson
    www.instagram.com/evadoggrunars
    www.instagram.com/chitocare
    www.instagram.com/dominos_island
    1 hr 28 min
  • Þáttur 35 - 12 skref að sjálfsrækt með komandi hausti með Röggu Nagla
    Helgaspjallið er komið aftur eftir sumarfrí. Við Ragga Nagli setjumst niður og förum yfir 12 skref sem eru góð að hafa íhuga með komandi hausti og vetri. Sálfræðiheilinn á Röggu og heilinn á mér er ágætt kombó og náum við að dekka ansi mikið á þessum rétt rúmlega klukkutíma. Hlusta á innsæið, setja mörk, læra að segja hið hreinskilna nei, við förum enn og aftur yfir ráðið sem breytti mínu lífi persónulega og ráð við afbrýðissemi.
    Þátturinn er í boði Dominos og Chitocare -
    www.instagram.com/helgiomarsson
    www.instagram.com/chitocare
    www.instagram.com/dominos_iceland
    1 hr 2 min
  • Þáttur 34 - Bylga Borgþórs úr Morðcastinu - Ættleiðing, réttlæti, líkamsímynd & Eurovision
    Bylgja Borgþórsdóttir sló rækilega í gegn á hinu vinsæla Morðcasti með geggjuðum persónuleika, einlægni og réttlætiskennd. Í þessum þætti fáum við að kynnast henni betur og förum við yfir hin ýmsu mál eins og ættleiðingaferli son hennar, gröfum djúpar í réttlætiskennd hennar og svo yfir það sem tengjum mig og hana nokkuð vel: Eurovision -
    Bylgja er svo sannarlega magnaður karakter og persónuleg skoðun mín er að hún ætti að skella sér á þing eða skora á Guðna Th í næstu forsetakosningum. Það var mikil ánægja að fá að spjalla við hana og veit að þessi þáttur á eftir að kalla fram bros á vör.
    Þátturinn er í boði Smáralindar -
    Stefið er eftir Arnar Boga/Boji
    Logo eftir Andreu Jóns hjá 29Línum
    Instagram: @helgiomarsson
    trendnet.is/helgiomars
    2 hr 6 min
  • Þáttur 33 - Helgaspjallið 3.0 - Að bera sig saman við aðra & impostor syndrome með Röggu Nagla -
    Innblásturinn af þessum þætti kemur frá upplifun minni. Ég skríðandi leitaði til Röggu Nagla og bað hana um sálfræðiaðstoð. Hausinn á mér var á ótrúlega sérstökum stað og hjálpaði hún mér aftur á beinu brautina. Eftir allt saman þá áttaði ég mig á því að ég var ekki einn á þessum skrýtna stað innra með mér. Við brjótum niður viðfangsefnið sem aðallega tengist að vera sig saman við aðra, og þetta nýja hugtak - impostor syndrome/experience. Það var magnað að kynnast því og sérstaklega að hugsa til þess hvað við mörg höfum lent í þessari upplifun. Hugsanir sem koma hjá öllum, en hvernig dílum við það? Hvaða verkfæri notum við? Og hvað er þetta? Ragga Nagli er með mér að fara í gegnum þetta allt saman. Hún er jú sálfræðingur og er sólkerfi af visku, svo óbeinn sálfræðitími handa öllum!
    Þessi þáttur er handa okkur. Njótið vel og vona að þetta gefi ykkur eitthvað gott í hjartað og hausinn.
    Instagram:
    @helgiomarsson
    @ragganagli
    Þessi þáttur er í boði Smáralindar
    @smaralind
    Tónlist eftir Arnar Boga/Boji
    Logo eftir Andreu Jóns hjá 29Línur
    1 hr 4 min
  • Þáttur 32 - Helgaspjallið 3.0 - Sótthvíld, ráð og hjálpartæki á kórónutímum með Naglanum
    Við Naglinn settumst niður og ræddum þessa ótrúlega skrýtnu tíma. Þar á meðal hvernig hægt er nýta tímann á uppbyggjandi hátt, hvernig við getum lært að þekkja og tækla heilsukvíðann og kvíðann almennt sem þessir tímar geta kallað fram. Ragga Nagli með síma þekkingu kemur með frábær ráð fyrir hlustendur.
    ATH Þessi þáttur var tekinn upp í 15 mars -
    .. og Söndru Bullock myndin sem við tölum um heitir Birdbox
    Þessi þáttur er í boði Smáralind
    Instagram:
    @helgiomarsson
    @ragganagli
    @smaralind
    Lag eftir Arnar Boga Ómarsson / BOJI
    Logo eftir Andreu Jóns hjá 29Línur
    1 hr 2 min
  • Þáttur 31 - Helgaspjallið 3.0 - Meðvirkni masterclass og hróspungar með Röggu Nagla
    Master Ragga Nagli, með nokkrar sálfræðigráður í vasanum og mögulega gáfaðasta manneskja sem ég þekki. Ég var spenntur að heyra frá henni varðandi meðvirkni, en það er hægt að grafa endalaust í það hugtak og hún kemur í öllum stærðum, gerðum, litum og tegundum.
    Þátturinn endaði með að vera hinn stórkostlegasti masterclass með Röggu, enda alveg frábært að fá upplýsingar frá sálfræðilegum sjónarhornum.
    Ásamt meðvirkni ræddum við að setja mörk, hvernig og afhverju. Hreinskilnu nei og já-in ásamt smá Eurovision, hróspungalífið og smá af allskonar.
    Njótið vel!
    Þessi þáttur er í boði Smáralindar -
    Instagram:
    @helgiomarsson
    @ragganagli
    @smaralind
    Heilsuvarp Röggu Nagla á Apple Podcast og Spotify
    Tónlist eftir Boji
    Logo eftir Andreu Jóns frá 29linur.com
    1 hr 1 min
  • Þáttur 30 - Helgaspjallið 3.0 - Eva Dögg Rúnars, töfrar öndunar, sleipiefni & sjálfsást
    Eva Dögg er frumkvöðull af bestu gerð og er ein af stofnendum RvkRitual. Alfróð grasagudda, jóga gúru, og markaðskona. Við náum að fara yfir ótrúlega yfir alveg ótrúlega margt í þessum fræðandi þætti. Hvert er raunverulegt mikilvægi öndunar? En Eva segir meðal annars að ef við stjórnum önduninni þá stjórnum við lífi okkar. Stór orð en í þessum þætti segir hún okkur frá afhverju og hvernig. Tengingin okkar við boðefnin og líkamann okkar. Við ræðum samansem merki milli sjálfsaga og sjálfsástar ásamt því að fá mjög skemmtilega fræðslu um ilmkjarnaolíur og áhrif þeirra.
    Eva sprengdi Ísland um jólin með heimagerða sleipiefninu sínu og þar segir hún frá því ævintýri. Snar uppselt sleipiefni og biðlistar. Þið þurfið að heyra meira!
    Þessi þáttur er gríðarlega fræðslumikill og hollur fyrir alla á öllum aldri.
    Þessi þáttur er í boði Smáralindar -
    Instagram:
    @helgiomarsson
    @evadoggrunars
    @smaralind
    1 hr 33 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is