Helgaspjallið

Helgaspjallið

By Helgi ÓmarsSociety & Culture
Download on the App Store

Helgaspjallið episodes

  • Þáttur 20 - Helgaspjallið 2.0 - Hildur Sif Hauks
    Hildur Sif Hauksdóttir er gestur þáttarins, en hún er bloggari á Trendnet ásamt því að vera mikill heilsugúru en hún borðar aðeins plöntufæði og ég forvitnast örlítið á bakvið hvernig það er að vera á plöntufæði og hvernig maður getur fært sig nær því að borða meiri plöntufæði. Hildur talar einnig hreinskilið um hvernig grunnskólaárin hafa áhrif á hver hún er í dag og hvernig maður lærir af mistökum. Við ræðum einnig hvernig andlega heilsu, hver tók fyrsta skrefið milli hennar og Begga, hvað það er dæma aðra og hver áhrifin eru á mann sjálfan ásamt að tala um allt milli himins og jarðar.
    1 hr 14 min
  • Þáttur 19 - Helgaspjallið 2.0 - Guðrún Sørtveit
    Hin yndislega og ljúfa Guðrún Sørtveit er gestur þáttarins. Við ræðum meðal annars body positivity, hvernig hún fór frá því að vera fangi sjálfsniðurbrots yfir í að læra að elska sjálfa sig, ásamt því að við spjöllum um hvernig hún fór á því að vera feimin og labbandi meðfram veggjum yfir í að vera ein vinsælasta á Íslandi á samfélagsmiðlunum. Við ræðum tólin og leiðirnar til að sigrast á púkanum í hausnum á okkur og hið uppbyggilega í lífinu.
    1 hr 16 min
  • Þáttur 18 - Helgaspjallið 2.0 - Apríl Harpa / Rvk Gypsy - Part ll
    Í þessum seinni hluta af spjallinu við Apríl Hörpu, einnig þekkt sem Rvk Gypsy ræðum við meðal annars hvað jóga er í raun og veru og hvernig hún byrjaði, einnig förum við útí átakanlega reynslu hennar varðandi kynferislega misnotkun og áhrif hennar. Við tölum um hvernig við finnum blissið okkar og hvað það er, ástarsorg og hverju henni fylgir. Einnig segir Apríl frá óvæntri tveggja og hálfs vikna göngu með munkum frá Indlandi til Tælands í 16.000 feta hæð, hver hennar stærsti lærdómur hefur verið í öllum þessum ævintýrum og hver hennar ráð eru til hlustenda. Njótið vel!
    1 hr 17 min
  • Þáttur 17 - Helgaspjallið 2.0 - Apríl Harpa / Rvk Gypsy - Part l
    Gestur þáttarins er Apríl Harpa Smáradóttir betur þekkt sem Rvk Gypsy. Hún segir frá magnaðari sögu sinni og fer yfir æskuna, tenginguna og tilfinningarnar. Baksagan á bakvið þann stað sem hún er á í dag ásamt því hvernig hún endaði á Bali í mörg ár og hvernig það ferðalag átti sér stað. Þetta er þáttur af tveimur, en í seinna þætti förum við enn dýpra í sögu Aprílar.
    1 hr 14 min
  • Þáttur 16 - Helgaspjallið 2.0 - Helgi Ómars
    Í þessum þætti snúum við hlutunum örlítið við, en Ragga Nagli tekur viðtal við mig. Ég fer t.d yfir æskuna, byrjunina á sjálfsvinnunni, ofbeldisatvik sem setti strik í reikninginn, hvernig ég komst í gegnum afbrýðissemi og það sem ég hef lært í gegnum tíðina ásamt mörgu öðru.
    1 hr 15 min
  • Þáttur 15 - Helgaspjallið 2.0 - Arnhildur Anna
    Arnhildur Anna Árnadóttir er einstaklega einlæg fyrirmynd. Við setjumst niður og ræðum kraftlyftingarsportið, hvað liggur á baki og hvað hún fór í gegnum til að komast á þann stað sem hún er í dag. Einnig ræðum við meðal annars meðvirkni og hvernig hún heldur andlegu hliðinni sinni í jafnvægi og hvaða verkfærum hún beitir til þess ásamt svo mörgu öðru.
    1 hr 19 min
  • Þáttur 14 - Helgaspjallid 2.0 - Björt Sigfinns
    Björt hefur áður komið til sögu í Helgaspjallinu, en hún er minn umtalaði Life Coach sem tók mig að sér á sínum tíma og lét mig hefja ferðalagið mitt í sjálfsvinnu. Hún er einnig einn af mastermindum á bak við LungA Festival ásamt því að hafa afrekað svo margt meira. Við kynnumst Björt og ræðum ýmislegt, meðal annars tungumál ástarinnar sem er einstaklega áhugavert
    1 hr 18 min
  • Þáttur 13 - Helgaspjallið 2.0 - Edda Falak
    Gestur þátturins er hin sterka og magnaða Edda Falak. Við förum yfir móðurmissi Eddu og að vera alin upp af Líbönskum föður á Íslandi. Við förum einnig yfir Crossfittið, sjálfsagan og mataræði þar sem pizza með döðlum og rjómaosti kemur við sögu.
    59 min
  • Þáttur 11 - Helgaspjallið: Eva Dögg Rúnarsdóttir
    Gestur þáttarins er yoga og hollustu drollan Eva Dögg Rúnarsdóttir. Við spjöllum um hið andlega og hið slæma og góða sem býr innra með okkur ásamt líf og tilveru Evu. Við tölum um sjúkdóma sem hafa sett strik í lífið og um allt hið andlega og líkamlega sem hægt er að græða á við að stunda jóga og hugleiðslu, ásamt svo mörgu öðru milli himins og jarðar.
    1 hr 5 min

About Helgaspjallið

From the publisher's feed

Helgaspjallið er podcast útgáfa af lið á Trendnet.is