Mannlegi þátturinn

Heyrnarskerðing - Heyrnarhjálp, Neyðartónleikar og Póstkort


Listen Later

Halla B. Þorkelsson, formaður Heyrnarhjálpar, landsfélags heyrnarskertra á Íslandi, kom í þáttinn í dag. Félagið var stofnað árið 1937 af hugsjónarfólki sem leitaði úrbóta vegna heyrnarskerðingar og hóf innflutning á heyrnartækjum og tækjum til að mæla heyrn. Ein af mörgum afleiðingum ómeðhöndlaðar heyrnarskerðinga er félagsleg einangrun og skert lífsgæði vegna þessa. Halla fræddi okkur um starfsemi félagsins og félagsfólkið og til dæmis eyrnasuð, tinnitus og hljóðóþol.
Fjöldi listamanna kemur fram á neyðartónleikum í Hörpu vegna ópíóðafaraldurs sem er að kosta mörg mannslíf, mánudagskvöldið 29. maí kl. 19.30. Um styrktartónleika er að ræða sem verða einnig sendir í út í beinni útsendingu á RÚV. Tilgangur söfnunarinnar er að safna fyrir Frú Ragnheiði og öðru skaðaminnkunarstarfi Rauða krossins. Ellen Kristjánsdóttir er ein þeirra sem koma fram á tónleikunum og ein af þeim sem er í forsvari fyrir þá, hún kom til okkar og svo heyrðum við í Hafrúnu Elísu Sigurðardóttur teymisstjóra skaðaminnkunar hjá Rauða Krossinum.
Við fengum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Póstkort dagsins fjallaði um tvennt að þessu sinni. Í fyrsta lagi sagði Magnús af áhyggjum Eyjamanna vegna hugsanlegrar bilunar á einu vatnsleiðslunni sem liggur neðansjávar til Eyja. Hún er orðin fimmtán ára og spurningin er ekki hvort heldur hvenær hún mun bila eins og hinar tvær leiðslurnar sem hafa verið lagðar út til Eyja en eru nú ónýtar. Í öðru lagi velti hann fyrir sér hvað það er sem rekur menn til að stunda hættulegar íþróttir eða koma sér í lífshættulegar aðstæður eins og maðurinn sem ætlar að dvelja á pínulitlum kletti út í Atlanshafi í átta vikur.
Tónlist í þættinum í dag:
Refrain / Lys Assia (Geo Movard og Émilie Gardas) Vann fyrstu Eurovision 1956)
Kiddi Kadilakk / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
Góða nótt / Ellen Kristjánsdóttir (Ólafur Bjarki Bogason, Baldvin Snær Hlynsson)
Ég veit þú kemur / Birgir Nielsen (Oddgeir Kristjánsson og Ási í Bæ)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners