Mannlegi þátturinn

Hjólafærni, risakýrin Edda og Erna Kristín lesandi vikunnar


Listen Later

Það er yndislegt að fylgjast með vorinu vakna um þessar mundir. Farfuglarnir eru að koma til landsins og grasið að grænka. Reiðhjólum fer fjölgandi í umferðinni og það er líka ákveðin vorboði þótt reiðhjólin séu nú í auknum mæli í notkun allan ársins hring. Sesselja Traustadóttir hefur verið framkvæmdastýra Hjólafærni frá stofnun þess, hún er handhafi Samgönguviðurkenningar Reykjavíkurborgar frá árinu 2014, fyrir frumkvöðlastarf. Hún hefur á liðnum árum farið um allt land og alla leið til Ástralíu með fyrirlestra, ástandsskoðun Dr. Bæk og kennt hjólviðgerðir á námskeiðum og í skólum. Sesselja kom í þáttinn í dag.
Við hringdum norður í land og fengum upplýsingar um söfnun fyrir smíði á styttu af risakúni Eddu. Styttan verður þriggja metra há og fimm metra löng og verður heiðursvarði um allar Búkollur, Auðhumlur, ló ló mínar Löppur og aðrar gæðakýr þessa lands. María Pálsdóttir er í stjórn ferðamálafélagsins sem ýtti þessari söfnun úr vör og sagði okkur frekar frá þessari risakú.
Lesandi vikunnar í þetta sinn var Erna Kristín Stefánsdóttir, hún er guðfræðimenntuð, kláraði diplómu í sálgæslufræðum og er rithöfundur. Hún er talskona fyrir jákvæðri líkamsímynd og heldur fyrirlestra sem slík auk þess að halda úti Ernulandi, sem við fáum hana til að segja okkur hvað er. En auðvitað sagði hún okkur líka frá því hvað hún hefur verið að lesa og hvaða bækur og höfundar hafa haft áhrif á hana í gegnum tíðina.
UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

20 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

89 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

19 Listeners

Einmitt / Menn eins og við by Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

10 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

22 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners