Mannlegi þátturinn

Hjólar 12 þúsund km. í ár, Fúsi og Aggi og söngstund í Hannesarholti


Listen Later

Við heyrðum sögu Einars Guttormssonar í dag. Hann greindist með parkinson fyrir um 5 árum og hafði fundið einkenni í u.þ.b. fimm ár þar á undan. Við greiningu tók Einar þá ákvörðun að hreyfa sig til að vinna á móti einkennunum og hann stóð heldur betur við það, hann hjólar um það bil heilt maraþon á hverjum degi, stundum allt upp í 200 kílómetra á dag. Hann hefur toppað sig á hverju ári og hefur hjólað yfir 11 þúsund kílómetra í ár og ætlar ekki að hætta fyrr en hann nær takmarkinu tólf þúsund kílómetrum. Einar kom til okkar í dag og deildi með okkur sinni sögu.
Svo kynntumst Fúsa í dag. En sýningin Fúsi: Aldur og fyrri störf var frumsýnd um helgina í Borgarleikhúsinu. Leikritið er heimildaleiksýning um Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson, Fúsa, þar sem Fúsi fer yfir ævi sína með hjálp góðra leikara. Agnar Jón Egilsson, leikstjóri og leikari og frændi Fúsa tók viðtöl við Fúsa á meðan á Covid faraldrinum stóð og upp úr þeim er sýningin unnin. Sýningin markar tímamót í íslensku leikhúsi því þetta er í fyrsta sinn sem leikrit um, eftir og leikin af leikara með þroskaskerðingu er sett á svið hér á landi. Þeir frændur, Fúsi og Aggi, komu til okkar í dag og sögðu okkur frekar frá sýningunni, sem hefur fengið afskaplega jákvæða gagnrýni og hlaut Múrbrjótinn, viðurkenningu Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Við fræddumst svo að lokum um söngstund í Hannesarholti þar sem kynslóðirnar geta komið saman og sungið af hjartans lyst á laugardaginn kemur. Syngjum saman er heiti á viðburði sem oft hefur verið boðið uppá í Hannesarholti og í vetur verður stundin tileinkuð Marinellu Ragnheiði Haraldsdóttur, sem var fædd 1933 og hefði því orðið níræð 14.september sl.en hún lést í sumar. Dóttir Marinellu, Ragnheiður J. Jónsdóttir sagði okkur frá móður sinni og því að Hannesarholt er í rauninni til í þeirri mynd sem það er í í dag vegna hennar og hún mætti á alla Syngjum saman viðburðina þar til heimsfaraldurinn truflaði taktinn.
Tónlist í þættinum í dag:
Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson)
Presley / Katrín Halldóra (Grafík-Rúnar Þórisson)
Lítill drengur / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Vilhjálmsson)
Fram í heiðanna ró / KK og Maggi Eiríks (erl.lag, texti Friðrik A. Friðriksson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Mannlegi þátturinnBy RÚV

  • 4
  • 4
  • 4
  • 4
  • 4

4

4 ratings


More shows like Mannlegi þátturinn

View all
Segðu mér by RÚV

Segðu mér

16 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

476 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

132 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

26 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

11 Listeners

Einmitt by Einar Bárðarson

Einmitt

4 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

26 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Með lífið í lúkunum by HeilsuErla

Með lífið í lúkunum

7 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

10 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

6 Listeners